Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1957, Qupperneq 19

Samvinnan - 01.07.1957, Qupperneq 19
Ránið í Blesukofi ★ Geysispennandi ★ ásta- og sakamálasaga ★ samkvæmt réttarskjölum ★ frá 18. öld ★ íslenzk framhaldssaga eftir Jón Björnsson, byggö á sögulegum atburðum S Ö G U L O K „Það er ekki okkur að þakka, að Atli sonur okkar losnaði við að lenda í sömu óhamingjunni og Iíalldór. Við ætluð- um að þvinga hann til þess, sem hon- um var þvert um geð — alveg eins og prófasturinn gerði við son sinn. Slíkt hefnir sín“. „Ekki þú,“ sagði maddama Þórunn stillilega. „Ég Iét metnað glepja mér sýn — en nú hef ég lært nóg“. Og nú var það heldur enginn leynd- ardómur lengur, hvernig á því stóð, að Atli hafði komizt í siglinguna, þrátt fyrir það, þótt foreldrar hans hefðu synjað honum farareyris, því að Þor- björn trúði húsbónda sínum fyrir því, að hann og Steini gamli faðir hans hefðu skotið saman peningum handa honum. Þorbjörn bað Harald fyrirgefn- ingar á þessu tiltæki og ennfremur því, að hann hefði ekki skýrt frá því fyrr, en Steini gamli hafði sagt, að einmitt grunurinn á Atla hefði forðað því, að málinu var flýtt mjög, því að hann gekk út frá að foreldrar Atla vildi hreinsa hann alveg, ef þess gerðist kostur. — Sýslumaður þakkaði hinum trygga og vinfasta vinnumanni sínum. Sjálfur hafði sýslumaður kviðið mest þeirri stund, ef Broddi reyndist sekur, að hann nefndi nafn Atla sem meðsekan sér í opinberu réttarhaldi. En konu hans hafði sést yfir þann möguleika, sem þó virtist liggja í augum uppi. Halla varð óumræðilega glöð, þegar móðir hennar sagði henni, að bæði Broddi og Atli væru saklausir af rán- inu í Blesukoti. Hún grét fegins- og gleðitárum. „Heldurðu, að þú treystir þér til að verða við réttarhaldið?“ spurði móðir hennar. „Já, já, mér er alveg batnað. Ég hef Iíklega ofþreytt mig í hríðinni. En gott var það samt að ég fór. Ég er viss um, að hamingjudísirnar hafa leitt mig þangað“. „Nei, guðs hönd hefur leitt þig, kæra barn“, sagði móðir hennar stillilega. „En mamma — af hverju villtu að ég verði viðstödd réttarhaldið?“ spurði Halla, eins og milli vonar og ótta. Maddama Þórunn leit alvarlega á dóttur sína. Svo sagði hún, og röddin var óvenjulega styrk: „Ég átti ríkan þátt í þessum hörmu- lega leik. Og jafnvel þó að öllum verði nú ljóst, að Broddi var hafður fyrir rangri sök, mun verða þvaðrað um mál- ið og ckki alltaf af góðgirni. Ég ætla nú að sýna öllum, að ég vil bæta fyrir mis- gjörð mína með því að kunngera að þið séuð trúlofuð — ef þú ert þá ennþá sama sinnis og áður“. Halla vafði handleggjunum um háls móður sinnar og hélt henni lengi við barm sinn. Haraldur kom inn í þessu. Hann sá, hvað konu hans og dóttur fór á milli og varð óumræðilega glaður. Halla tók eftir honum og sagði: „Getum við ekki farið strax og hrifið hann lir prísundinni? Hann má ekki vera þar einn dag lengur“. „Það er nú vandinn, Halla mín! Ég sendi Þorbjörn vestur að Jökulsá í morgun og hann segir, að hún sé hlaupin fram, og er bæði óreið og ekki ferjufær. Annars hefði ekki staðið á méi’“. Halla varð döpur á svipinn. Ef áin yrði líka ófær réttarhaldsdaginn? Hvað mundi verða af Brodda? Myndi Arin- björn ekki láta skeika að sköpuðu? Hún bað guð þess heitt og innilega, að veðrinu mætti slota, svo að hún gæti hrifið elskhuga sinn frá örlögum, sem voru verri en allt annað í veröldinni. XVIX. Æðsti dómur. Um morguninn, daginn sem réttur skyldi haldinn, liætti að rigna og norð- anátt með vægu frosti tók við. Jakahlaupið í Jökulsá hafði rénað, en áin var þung og vatnsmikil og flæddi yfir bakka sína. Arinbirni sýslumanni leizt ekki svo á, að margir myndu koma austan yfir Jökulsá til réttarhaldsins. Var honum heldur engin aufúsa í því. Án þess að hann gerði sér ástæðuna Ijósa, óskaði hann innst inni, að embættisbróðir hans sækti ekki þetta réttarhald. Hann gat auðvitað ekkert vitað enn um atburði síðustu daga, því að sendi- maður hans hafði teppst austan Jökuls- ár. Talsverður viðbúnaður var á sýslu- mannssetrinu. Sýslumaður lét vinnu- menn sína reisa gálga á hlaðinu, beint fram af stofuglugganum. Böðullinn hafði yfirumsjón með verkinu. Var hann einn af landsetum sýslumanns. Nú stóð gálginn þarna með reipið hang- andi, tilbúinn til notkunar. Arinbjörn sýslumaður hafði verið hjá fanga sínum um morguninn, og gerði síðustu tilraunina til þess að fá hann til að játa á sig glæpinn, en það fór eins og áður, Broddi ýmist svaraði honum ekki eða neitaði harðlega. Sýslumaður var í miklum vanda. Réttarhaldið og gálginn var upphaflega einn liðurinn í að hræða fangann til játningar. Og nú vonaði hann, að SAMVINNAN 19

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.