Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1957, Qupperneq 21

Samvinnan - 01.07.1957, Qupperneq 21
Haraldur gekk inn og þreif dómabókina af embœttisbróður sinum. — Broddi játaði, þegar hann sæi gálgann. Hafði hann heitið að gefa honum líf, ef hann „sæi að sér“, eins og sýslumaður orðaði það. Undir hádegið tók fólk að drífa að. Það var við réttarhald, eins og við kirkjuna, það var alltaf vel sótt, en munurinn var sá, að til réttarhalda kom fólk af fúsum vilja, en sótti kirkjuna af því að það þorði ekki annað. Sýslumaður hafði látið draga ferjuna langt upp á land. Hann var öðru hverju úti á hlaði til að skyggnazt eftir manna- ferðum austan árinnar. Loks sá hann hóp manna staðnæmast á bakkanum. Og nú var kallað á ferjumanninn. Einn vinnumannanna stóð úti. Hann sneri sér að Arinbirni sýslumanni og spurði, hvort liann ætti ekki að gegna kallinu. „Láttu það bara kalla“, sagði sýslu- maður. Hann hafði þegar þekkt nokkra af mönnunum. Það var Haraldur sýslu- maður, Torfi gamli á Fjarðarenda og bændur úr nágrenni Haralds, ásamt Þorbirni vinnumanni hans. „Er það sem mér sýnist, að Halldór prófastssonar sé með þeim?“ sagði sýslumaður og skyggði hönd fyrir auga. Mennirnir hinumegin árinnar héldu áfram að kalla á ferjuna. En Arinbjörn sýslumaður og vinnumaðurinn hurfu inn í bæinn Arinbjörn lét kalla alla, sem voru við- staddir, til stofu. Hann ætlaði að setja réttinn strax. — Haraldur sýslumaður sá skjótt, að tilgangur Arinbjarnar var að meina þeim að komast yfir ána. Og ástæðan var augljós. Nú var embættisbróðir hans orðinn hræddur. Hann ætlaði sér að gera út um málið, áður en aðrir kæmu tii skjalanna. Gálginn á hlaðinu var þögult vitni um þetta áform hans. Haraldur nísti tönnum af gremju. Hann skildi áform embættisbróður síns og vissi af reyslunni, að dómur, sem bú- ið var að framkvæma, var oftast álit- inn gildur af æðri yfirvöldum. Og nú mátti hann eiga von á að sjá Brodda leiddan undir gálgann, á meðan hann beið hjálparlaus við ána. Þetta var óþolandi. Maddama Þórunn og Halla dóttir hennar störðu á gálgann og mæltu ekki orð frá vörum. En Halla var eins og liðið lík í framan. „Hver ykkar treystist til að sundríða ána og sækja ferjuna?“ kallaði Harald- ur sýslumaður. Þorbjörn gaf sig fram. „Til lítils hefði ég heitið Brodda lið- sinni mínu, ef ég skoraðist undan, þeg- ar mest liggur á“, sagði hann, „og lát- ið þið mig nú hafa einhvern traustan hest“. „Fells-Gráni er bezti vatnahestur- inn“, sagði Haraldur sýslumaður og strauk hesti sínum. „Þetta er lífshætta“, sagði hann, „en það liggur líka líf við. Ég hefði farið sjálfur, ef ég sæi ekki, hve tvísýnt þetta er, en ég á dálítið ó- talað við minn kæra embættisbróður og það get ég ekki ef ég lendi í ánni“, bætti hann við. Þorbjörn athugaði nákvæmlega beizl- ið á Grána og spennti hnakkgjarðirnar. Síðan sveiflaði hann sér léttilega á bak og reið spölkorn upp með ánni og at- hugaði strauminn gaumgæfilega. Sam- ferðafólkið fylgdist með honum milli vonar og ótta. Ef heitustu árnaðar- óskir mannshugans bæru nokkurntíma sýnilegan árangur, þá trúði fólkið því, að þær myndu duga núna. Allt í einu reið Þorbjörn út í kolmó- rauða ána. Gráni greip strax sundið. Straumurinn greip hestinn og fleygði honum niður ána með miklum hraða. Næstu mínúturnar urðu martröð fyrir fólkið. Spölkorn neðar gengu tveir tang- ar á víxl út í ána og virtust loka henni. Þorbjörn barst niður fyrir tanga þessa og hvarf sjónum fólksins. Neðar voru fossar og hávaðar. Séra Sigurður í Múla og nágranni hans höfðu nú bætzt í hópinn. Nokkur stund leið í þögulli angist og eftirvæntingu. Loks sá fólkið, hvar Þorbjörn þeysti upp með ánni hinumegin. Gráni hafði sigrað í átökunum við beljandi vatns- fallið. Þorbjörn fór af baki hjá ferjunni. En það var augljóst, að einn maður myndi ekki geta róið henni yfir fljótið, þegar það var í slíkum algleymingi. Hann veifaði til fólksins, stökk á bak og þeysti heim að Breiðá. Haraldur sýslumaður fylgdist vel með Þorbirni. Skammt var heim að bænum frá ánni. Þegar Þorbjörn kom í hlaðið, var böðullinn úti við eitthvað að amstra við gálgann. Haraldur sýslu- maður sá að Þorbjörn þreif í öxlina á böðlinum og dró hann með hestinum niður að ánni. Þorbjörn var heljarmenni að burðum og engum þýddi að þrjózkast gegn hon- um. Þorbjörn hratt ferjunni á flot. Böðull- inn varð að róa á móti honum. Þeir reru knálega, og eftir nokkra stund náðu þeir landi hinumegin. Þorbjörn kallaði úr bátnum, sem flaut við bakkann: „Það er réttast að húsbóndinn komi strax, já og ...“ Honum varð litið á Halldór. „Tveir aðrir geta komið með. Böðullinn bíður eftir síðustu ferðinni“. Skipunum Þorbjarnar var tafarlaust hlýtt. Haraldur sýslumaður, Halldór, Torfi gamli og nágrannabóndi sýslu- manns stigu um borð í ferjuna. Eftir skamma stund voru þeir komnir yfir ána. Þorbjörn og bóndinn reru ferjunni aftur yfir til þess að sækja fleira fólk, en sýslumaður, Halldór og Torfi gamli flýttu sér heim að Breiðá. Haraldur sýslumaður gekk rakleiðis inn í stofuna. 1 því er hann hratt upp dyrunum, var Arinbjörn að enda við að lesa upp dóminn yfir Brodda. „... skal hann því fyrir þennan sví- virðilega glæp sitt líf forbrotið hafa og SAMVINNAN 21

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.