Samvinnan - 01.07.1957, Síða 26
Ödýrasta líftrygging, sem hægt er að fá
Það er hverjum hugsandi manni nauðsynlegt
og skylt að eiga líftryggingu. Þetta er skylda
gagnvart fjölskyldu og henni til öryggis, svo
að kona og börn standi ekki uppi með tvær
hendur tómar, ef fyrirvinnan fellur frá.
Líftryggingar hafa hingað til verið með þeim
hætti hér á landi, að hver einstakur hefur
orðið að tryggja fyrir sig, og hafa því alltof
fáir menn gert það. En nú hefur Líftryggingafélagið Andvaka tekið
upp nýja gerð trygginga, sem er þannig, að bæði munu miklu fleiri
menn en áður kaupa sér líftryggingu, og þeir munu geta fengið
hana ódýrari en nokkru sinni fyrr. Er þelta með svokölluðum hóp-
líftryggingum, þar sem heilir hópar manna, til dæmis starfsfólk fvrir-
tækja, geta tryggt sig í einu Iagi.
Hóplíftrygging er aðeins áhættutrygging
þannig, að umsamin upphæð er greidd að-
standendum, ef hinn tryggði fellur frá. Hún
gildir frá ári til árs, en er ekki samningur til
langs tíma og ekki spamaðarráðstöfun á
sama hátt og venjuleg líftrygging.
Kynnið yður hóplíftryggingar Andvöku. Verð
þeirra er ótrúlega lágt, og það öryggi, sem þér getið skapað fjölskyldu
yðar, mjög rnikið. Athugið, hvort starfsbræður yðar eða félagar í ein-
hverju félagi geta ekki sameiginlega skapað sér öryggi líftryggingar
á hagkvæman hátt. Ef þér emð að byggja eða afla atvinnutækja að
einhverju leyti með lánsfé, er það meira virði fyrir fjölskylduna en
nokkru sinni, að þér séuð vel líftryggður.
Leitið allra upplýsinga í skrifstofu Andvöku í Sambandshúsinu í Reykjavík eða hjá umboðsmönnum fé-
lagsins (t. d. kaupfélögunum) um land allt. Dragið ekki að koma öryggi fjölskyldu yðar í gott lag. Eng-
inn veit, hvenær það kann að vera um seinan.
Líftryggingafélagið ANDVAKA
Bindigarn, margar tegundir
Saumgarn
Umbúðagarn
Sldturgarn
Fiskilínur
Vörpugarn
Botnvörpur
Allir fiskimenn þekkja hinar viðurkeneidu framleiðsluvörur okkar
"á
★
★
★
★
★
★
★
26 SAMVINNAN