Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1958, Blaðsíða 20

Samvinnan - 01.09.1958, Blaðsíða 20
Ódýrasta trygging, sem hægt er að fá ÞaS er hverjum hugsandi manni nauð- synlegt og skylt að eiga líftryggingu. Þetta er skylda gagnvart fjölskyldu og henni til öryggis, svo að kona og börn standi ekki uppi með tvær hendur tómar, ef fyrirvinnan fellur frá. Líftryggingar hafa hingað til verið með þeim hætti hér á landi, að hver einstakur hefur orðið að tryggja fyrir sig, og hafa því alltof fáir menn gert það. En nú hefur Líf- tryggingafélagið Andvaka tekið upp nýja gerð trygginga, sem er þannig, að bæði munu miklu fleiri menn en áður kaupa sér líftryggingu, og þeir munu geta fengið hana ó- dýrari en nokkru sinni fyrr. Er þetta með svokölluðum hóp- líftryggingum, þar sem heilir hópar manna, til dæmis starfsfólk fyrirtækja, geta tryggt sig í einu lagi. Hóptrygging er aðeins áhættutrygg- ing þannig, að umsamin upphæð er greidd aðstandendum, ef hinn tryggði fellur frá. Hún gildir frá ári til árs, en er ekki samningur til langs tíma og ekki sparnaðarráðstöfun á sama hátt og venjuleg líftrygging. Kynnið yður hóplíftryggingar And- vöku. Verð þeirra er ótrúlega lágt, og það öryggi, sem þér getið skapað fjölskyldu yðar, mjög mikið. Athugið, hvort starfsbræður yðar eða félagar í einhverju félagi geta ekki sameiginlega skapað sér öryggi líftryggingar á hagkvæman hátt. Ef þér eruð að byggja eða afla atvinnutækja að ein- hverju leyti með lánsfé, er það meira virði fyrir fjölskyld- una en nokkru sinni, að þér séuð vel líftryggður. Leitið allra upplýsinga í skrifstofu Andvöku í Sambandshúsinu í Reykjavík eða hjá umboðsmönnum fé- lagsins (t. d. kaupfélögunum) um land allt. Dragið ekki að koma öryggi fjölskyldu yðar í gott lag. Eng- inn veit, hvenær það kann að vera um seinan. Líftryggingafélagið A N D V A K A i i i i ! i Á Orösending til eigenda Massey-Harris- dráttarvéla og -verkfæra f Þar sem HARRI FERGUSON- og MASSEY-HARRIS-fyrirtækin hafa nú verið sameinuð í eitt fyiirtæki, sem ber nafnið MASSEY-FERGUSON, fellur það í okkar hlut að sjá um og útvega varahluti í Massey-Harris- dráttarvélar og -verkfæri. Þar sem mörg af þessum verkfærum eru orðin gömul, er erfitt að gera sér grein fyrir, hvaða varahluti vantar. Er það því ósk okkar, að bændur sendi okkur upplýsingar um, hvaða vélar þeir eiga af Massey-Harris-gerð. Eftirfarandi þarf að taka fram: Nafn tækis, serial-númer, mótor-númer og hvaða ár flutt til landsins. Þessar upplýsingar eru mjög áríðandi, svo að hægt sé að byggja upp nauðsynlegan varahlutalager í vélarnar. Að sjálfsögðu tökum við á rnóti varahlutapöntunum í þessar vélar strax, þó að nokkur dráttur verði, unz hægt verður að afgreiða varahlutina í þær. JOAai£a/Uðé£o/t A/ Snorrabraut 56, Reykjavik, simi 17080 20 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.