Samvinnan - 01.12.1960, Síða 7
Dagur Þorleifsson:
„Sumar kirkjur messa sjálfar“
Undirbúningur hafinn að byggingu nýrrar og glæsilegrar
kirkju að Bæ í Borgarfirði
í sambandi við byggingu hinnar
nýju sóknarkirkju, sem nú er hafin
að Bæ í Borgarfirði, átti Samvinnan
viðræður við nokkra þá menn, er rnest
hafa beitt sér fyrir framgangi þessa
málefnis. Fyrst hittum við að máli
Björn Jakobsson, söngkennara í Reyk-
holti. Björn hefur um langt skeið ver-
ið organleikari við Bæjarkirkju og mik-
ill hvatamaður um viðreisn staðarins.
Fórust honum orð á þessa leið:
„Þetta mál á sér töluverðan aðdrag-
anda, en nú má
heita að það sé
komið á allgóð-
an rekspöl, því ef
allt gengur að
óskum, er ætlað
að grunnur
kirkjunnar verði
steyptur nú í
haust og hafist
verði handa um
undirbúnings þess verks næstu daga.
daga. Undirbúningur allra fram-
kvæmda hefur að mestu hvílt á herð-
um sóknarnefndar Bæjarsóknar, en í
henni eiga sæti þeir Jakob Jónsson,
Varmalæk, Guðbrandur Þórmundar-
son, Bæ, og Ólafur Þórmundarson
sama stað, og er hann formaður nefnd-
arinnar.
Fullyrða má að þetta mál hafi feng-
ið góðan hljómgrunn í hugum sóknar-
barnanna, því það er eftirtektarvert,
að hér í sveit hafa aldrei slitnað hin
fornu tengsl milli kirkju og safnaðar,
eins og víða hefur viljað bera við á
seinni tímum. Kirkjusókn er betri og
jafnari að Bæ en nokkrum stað öðrum,
sem ég hefi haft spurnir af.“
Björn réði okkur
eindregið að snúa
okkur til frænda
síns, Jakobs á
Varmalæk, því í
Bæjarsveit þykir
engum ráðum ráðið
nema hann eigi þar
hlut að máli. Verð-
ur naumast ofsög- ,
- , , ðlafur Þórmundarson
um sagt at þvi
trausti er Bæsveitungar bera til hrepp-
stjóra síns, enda mun hann fylilega
verðskulda það.
Jakob vildi hins vegar lítið segja
um málið á þessu stigi; virtist honum
svipað í hug og skáldinu, er kvað.
Hælumst minnst í máli
metumst heldr at val felldan,
er við spurðum hann nánar um hina
fyrirhuguðu kirkjubyggingu;: „Ráða-
gerðirnar skipta tiltölulega litlu máli.
Það eru framkvæmdirnar sem allt velt-
ur á. Um það hvernig þeim verður hag-
að ef vel gengur er Ólafur í Bæ njanna
kunnugastur."
Svo að næst heimsóttum við Ólaf
Þórmundsson er sýndi okkur teikning-
ar þær, er gerðar hafa verið að kirkj-
unni. Var um tvær teikningar að
velja, eftir þá Hörð Ágústsson og
Halldór H. Jónsson, arkitekt. Var þar
úr vöndu að ráða, en svo lauk, að teikn-
ing Halldórs varð fyrir valinu. Báðir
sýndu arkitektarnir þann höfðings-
skap að gera teikningar sínar
endurgjaldslaust, og Halldór,
sem sjálfur er ættaður frá Bæ,
hefur auk þess heitið sveitung-
um sínum margskonar stuðn-
ingi við framkvæmdirnar.
„Samkvæmt teikningu Hall-
dórs,“ sagði Ólafur, „verður
kirkjan 17,60 metrar á hæð,
15,10 á lengd og 7,30 á breidd.
Hún mun rúma um 70 manns
ýif'
Bæjarkirkja í dag
í sæti, og er það mikil framför
frá því sem áður var, því gamla
kirkjan tekur aðeins um 40 manns.
Þetta eru allmiklar framkvæmdir fyr-
ir okkur að leggja í; söfnuðurinn er
fámennur, aðeins 60—65 gjaldendur.
Sóknargjald nemur aðeins 40 krónum
á mann á ári og má hækka upp í 56
:krónur, svo þar verður aldrei um
miklar upphæðir að ræða. Ekki er
heldur nægilegt að fá lán, því í raun-
inni höfum við ekki yfir að ráða nein-
GuSmundur Jónsson Ragnheiður Magnúsd.
um tekjustofnum til að standa straum
af greiðslum á því. Við hér í söfnuð-
inum gerum ráð fyrir að leggja fram
sem mest af vinnunni sjálfir, nema ef
til vill við einstök störf sem fagmenn
þarf til. Stjórn verksins munu þeir
sennilega að mestu hafa á hendi, Jakob
á Varmalæk og Guðbrandur bróðir
minn.
Við höfum þá fengið smálán úr
Kirkjusjóði, að upphæð 20,000 krónur
til að liægt sé að
hefja framkvæmdir.
Það skiptir strax
miklu máli, því
hálfnað er verk þá
hafið er. Lánið
fengum við með
sérstaklega góðum
kjörum, eftir því
sem nú tíðkast.
Þurfum aðeins að
Framhald á bls. 45 Þorsteinsson
Samkomuhúsið að Brún
SAMVINNAN 7