Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1963, Blaðsíða 12

Samvinnan - 01.10.1963, Blaðsíða 12
- HJA HONUM HEFÐI EG VILJAÐ FERMAST TVISVAR Aldarminning síra Sigtryggs Guðlaugssonar Rafnseyrarheiði var senn að baki. Bifreiðin fetaði niður neðstu skrið- urnar Dýrafjarðarmegin og hélt hik- laust áfram ferð sinni eftir dalnum, fyrir Sandafell til Þingeyrar. Skömmu eftir miðnætti, eftir stutta viðstöðu á Þingeyri, var lagt í síðasta áfangann, að Núpi. Ferðagázkinn, sem ríkt hafði meðal hópsins allt frá því lagt var upp frá Reykjavík klukkan níu um morg- uninn, og sem stytt hafði stórum hina löngu og illfæru leið, var hljóðnaður. Hvorki olli því þreyta né svefnhöfgi, en nú var ekið helgar slóðir og menn farnir til fundar við liðnar stundir, fornar minningar og nýjar. Hér voru gamlir Núpverjar, komnir um langan veg til að minnast þess að liðin eru hundrað ár frá fæðingu prestsins, skólastjórans og ræktunarmannsins, Sigtryggs Guðlaugssonar. Fjölmenn- astir voru nemendur frá skólastjóratíð síra Sigtryggs auk nokkurra nemenda frá síðari árum, að ógleymdum sam- kennara hans og síðar eftirmanni i prédikunar- og skólastjórastól, síra Eiríki J. Eiríkssyni. Trjágróðurinn í fjarðarbotninum bærðist í næturgolunni sem heilsaði hann sérstaklega nemendum hins víðkunna ræktunarmanns moldar og manna. Nú blasti Mýrarfellið við sjón- um beint framundan. Það reis sem pýramídi og skyggði fyrir útsýn til hafsins, slegið mildum, dulbláum lit. Skólabyggðin kom senn í ljós og ör- litlu nær garðurinn, sem síra Sig- tryggur ræktaði í gróðursnauðum hlíðunum undir Núpnum og upprætti vantrú á skógrækt á Vestfjörðum, Skrúður. Síra Sigtryggur ritaði sjálfur um Skrúð á þessa leið: „Við bræður töluðum um skólahald fyrir börn og unglinga. Fræðslu um menn og menntir fundum við góða og gagnlega, en ekki einhlíta. Grunn- tónarnir lægju í setningu Grundtvigs: „Fyrir guð og föðurlandið." Hver góð- ur skóli yrði að hafa í huga endur- fæðingu sálarlífsins, syngja það til hærri manngöfgi... Eitt meðal til þess væri blómskrúð jarðar. Nú vaknaði hugmyndin um skóla- garð og hversu hann mætti heiðra föð- urlandið og með öðru skapa því góð kærleiksbörn. Og að lokum sagði bróð- ir minn: „Þú mátt velja hvern blett í landareign minni, ræktaðri og ó- ræktaðri, sem þú vilt, til gróðurgarðs.“ Mörgum, er séð hafa, hefur þótt ég hafa illa valið, líkt því er segir í vís- unni: „Brattur melur, stórgrýtt urð.“ Ástæður mínar eru tilfærðar í skrif- aðri Árbók Skrúðs. Tilfæri hér tvær: Mér fannst bruðlunarsemi að gera umrót í bezt búnu bjargarlandi, og: „Þar sem við ekkert er að stríða, er ekki sigur neinn að fá.“ Ég hef líka jafnan sagt gestum, er við bræður höfum fylgt um reitinn, að hér sé um skólagarð að ræða.“ Hinn 27. september 1962 voru liðin 100 ár frá fæðingu síra Sigtryggs. Gamlir nemendur hans ákváðu að minnast afmælisins með tvennu móti: Gefa út bók helgaða minningu hans og reisa honum minnisvarða í Skrúð. Bókin mun koma út á hausti kom- anda, en erindi gamalla og nýrra nemenda til Núps, Verzlunarmanna- helgina síðustu, var að afhjúpa minn- isvarðann. Undirbúning þessara mála hefur annast sérstök framkvæmda- nefnd nemenda, sem kosin var á al- mennum nemendafundi. í nefndinni eiga sæti: Guðlaueur Rósinkrans, fer- maður; Baldvin Þ. Kristjánsson, rit- ari; Sigurður Pétursson, gjaldkeri og Ingimar Jóhannesson. Aðalhöfundur bókarinnar verður Halldór Kristjáns- son, Kirkjubóli, en Ingimar Jóhann- esson mun sjá um sérstakan nem- endaþátt, þar sem heyrast munu raddir úr öllum árgöngum skóla- stjórnartíðar síra Sigtryggs. Næsta dag, laugardaginn 3. ágúst, hvíldust ferðalangarnir fram yfir há- degi, en héldu þá yfir Sandsheiði til Ingjaldssands. Síra Sigtryggur hvílir í kirkjugarði þeirra Sandsbúa, en hann þjónaði kirkjunni þar alla sína prestsskapartíð á Núpi. Á Ingjalds- sandi og nálægum fjörðum lifa marg- ar sagnir af þeirri umhyggju, sem síra Sigtryggur sýndi þessari afskekktu og Formaður nemendanefndar, Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri, afhjúp- ar minnisvarða skólastjórahjónanna — nánustu aðstandendur séra Sigtryggs til hægri. 12 samvinnan

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.