Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1963, Qupperneq 22

Samvinnan - 01.10.1963, Qupperneq 22
„Hann á þrjú börn,“ bætti Mac við af greiðvikni sinni. „Það elsta ætlar að bjóða sig fram við næstu forsetakosn- ingar.“ „Ó, er það ekki einum of slærnt?" varð stúlkunni að orði. „Sjálf hef ég markmið með þessari ferð. Að hitta ó- kvæntan Frakka.“ „Ég er viss um að yður tekst það,“ mælti Robert. „Þrjú börn,“ sagði stúlkan. „Jeminn! Hve gamall eruð þér?“ „Þrjátíu og níu ára,“ svar- aði Robert. „Hvar er konan yðar nú?“ spurði stúlkan. „í New York.“ „Ófrísk,“ bætti Mac við, hjálpsamari en nokkru sinni fyrr. „Og hún lætur yður hlaup- ast á brott á skiði einsog núna?“ spurði stúlkan hissa. „Já,“ sagði Robert. „Raunar er ég í Evrópu í viðskiptaer- indum, en stalst hingað tilað létta mér upp í tíu daga.“ „í hverskonar viðskiptaer- indum?“ spurði stúlkan. „Ég er demantakaupmaður,“ svaraði Robert. „Kaupi og sel demanta.“ „Þannig mann hefur mig alltaf langað tilað hitta,“ sagði stúlkan. „Einhvern sem hefði með demanta að gera. En ókvæntan." „Barbara!“ sagði Fíladelfíu- búinn. „Ég verzla mest með dem- anta til iðnaðar,“ sagði Ro- bert. „Það er dálítið annað mál.“ „Þótt svo væri,“ sagði stúlk- an. „Barbara," sagði Fíladel/íu- búinn, „reyndu að láta einsog þú sért dama.“ „Ef maður getur ekki talað af hreinskilni við landa sinn,“ sagði stúlkan, „við hvern á maður þá að vera hreinskil- inn?“ Hún leit útum gluggann. „Ó, vinur minn,“ sagði hún, „hvílíkt skrímsli er þetta fjall, finnst yður ekki? Ég er veik af hræðslu. Hún leit við og horfði aftur á Robert. „Þér lítið út einsog Frakki,“ sagði hún. „Skelfilega fágaður. Þér eruð alveg viss um að þér séuð kvæntur?“ „Barbara,“ sagði Fíladelfíu- búinn vonleysislega. Robert hló, og Mac og hinir Bandaríkjamennirnir hlógu með, og stúlkan brosti undir loðhúfunni, ánægð með frammistöðu sína og það, sem á móti kom. Þeir farþeganna, sem ekki skildu ensku, brostu vingjarnlega. Þótt fyndni orða- skiptanna næði ekki til þeirra, nutu þeir engu að síður glað- værðarinnar, sem þeim fylgdi. Þá heyrði Robert karlmanns- rödd segja gegnum hláturinn, þrungna kaldri, niðurbældri ó- beit: „Schaut euch diese dum- men amerikanischen Gesichter an! Und diese Leute bilden sich ein, sie waren berufen, die Welt zu regieren." Robert hafði í bernsku lært þýzku af afa sínum og ömmu, sem ættuð voru frá Elsass, og skildi því orðin, en stillti sig um að líta við tilað sjá, hver talað hefði. Honum þótti gott að gera sér i hugarlund, að skapsmunir hans hefðu róast með árunum, og hefði enginn annar í klefanum heyrt eða skilið orðin, ætlaði hann ekki að gera þau opinber. Hann var hérna tilað skemmta sér, og kærði sig sízt af öllu um að lenda í erjum eða leiða Mac og unglingana útí nokkuö þessháttar. Hann hafði löngu lært að látast vera heyrnar- laus, þegar svona raus og ann- að verra barst að eyrum hans. Ef einhverjum þýzkum drullu- sokki þóknaðist að segja: „Líttu á þessi aulalegu amer- ísku andlit. Og þetta fólk í- myndar sér að það hafi verið útvalið tilað drottna yfir ver- öldinni,“ skipti það svosem engu máli, og hver skynsamur maður lét það sem vind um eyru þjóta, ef mögulegt var. Robert leit því ekki við tilað sjá manninn, sem talað hafði, vitandi það, að ef hann upp- götvaði hann, hefði hann ekki skap í sér tilað láta hann sleppa. Svo lengi sem röddin væri honum ópersónuleg, gat hann látið orð hennar lönd og leið, einsog svo margt fleira, sem hann hafði heyrt Þjóð- verja segja. Hann átti þó fullerfitt með að stilla sig og klemmdi aftur augun, gramur sjálfum sér fyrir að láta þetta illgirnislega raus hleypa sér upp. Fríið hafði heppnast prýðilega framað þessu, og það var því meira en lítið heimskulegt að láta rödd, heyrða af tilviljun í mannþröng, varpa skugga á það. Þegar farið er á skíði í Sviss, sagði Robert við sjálfan sig, kemst maður varla hjá því að rekast á slangur af Þjóð- Framhald I næsta blaði 22 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.