Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1966, Síða 12

Samvinnan - 01.03.1966, Síða 12
Hertoginn af Alva, höfuðóþokki styrjaldarinnar og mest hataði maður í sögu Hollands. Vilhjálmur af Óraníu, leiðtogi uppreisnarmanna og þjóðhetja HoIIendinga. „Betlarauppreisnin" Þröngsýni og harðstjórn spænskra valdhafa breyttu frjálslyndum og veraldlega sinnuð- um Hollendingum í ofstækisfulla Kalvín- ista, sem engu kaþólsku vildu þyrma. Af- Þegar veldi Karlamagnúsar leystist upp í höndum dáðlít- illa eftirmanna hans, urðu til úr því þrjú aðalríki: Þýzkaland, Frakkland og spilda á milli þeirra, sem prins að nafni Lóthar fékk í sinn hlut; eftir honum er nefnt héraðið Lót- hringen. Þetta þriðja ríki náði yfir ítalíu að miklu leyti, mik- inn hluta Austur-Frakklands og Niðurlönd; skapaðist þann- ig fyrsti vísirinn að sérstöðu aíðastnefndu svæðanna, sem fram að þeim tima höfðu lítt eða ekki verið aðgreind frá ná- grannalöndunum. Undir lok miðalda myndaðist úr kjarna þessara Lótharslanda hið svc- kallaða nýbúrgundíska ríki, sem mikið kvað að á tímum hertoganna Filippusar góða, sem var bandamaður Englend- inga i hundraðárastríðinu 07 framseldi þeim Jóhönnu frá Örk, og Karls djarfa, sonar •hans. í þessu ríki á mörkum hins germanska heims og þess rómanska skapaðist frjó og merkileg menning, sem vel má telja að hafi lagt grundvöll síðari tíma menningar Niður- landa, ekki síst hins óvenju þróttmikla listalífs þjóða þeirra, sem þessi lönd byggja. Ríki Búrgundahertoga leyst- ist upp eftir að Karl djarfi beið ósigur og féll í ófriði gegn Sviss- lendingum, og urðu öll Nið- urlönd þá hluti af þýzka keis- aradæminu. Ekki voru íbúar þessara landa fyllilega ánægð- ir með það samband, til dæm- is á dögum Karls keisara fimmta á fyrri hluta sextándu aldar. Hann átti löngum í stríðum við Frakka og komu þau hart niður á pyngjum skattþegna hans á Niðurlönd- um, sem engan áhuga höfðu á barsmíðum keisarans. Neistar óánægjunnar urðu þó fyrst að ljósum loga að Karli látnum. Þá skiptist hið mikla þýzk-spænska ríki hans í tvennt, og fylgdu Niður- lönd þá Spáni, en ekki Þýzkalandi, eins og eðli- legra hefði verið af þjóðernis- legum og landfræðilegum á- stæðum. Þar við bættist að Filippus annar Spánarkonung- ur, sonur Karls, var þröngsýnn og ofstækisfullur kaþólikki og eindæma þverhaus. Mótmæl- endatrú og þó einkum lútherska hafði þá náð nokk- urri útbreiðslu á Niðurlöndum, o" nana ákvað Filippus að þurrka út af tillitslausri hörku. Þetta var hið mesta óráð, því þrátt fyrir nefnda útbreiðslu 'útherskunnar var mikill meiri- hlut.i Niðurlendinga ennþá ):o"unghollir kaþólikkar, þótt heir væru stórum kærulausari : r.i trúmál en Spánverjar, sem enn voru í krossferðastuði eft- ir stríð sín við Mára og Indí- ána. Efnahagslegar ástæður áttu einnig drjúgan þátt í að kom'j. Niðurlendingum í vígahug. I þá tíð voru þeir mesta verzlun- ar- og iðnaðarþjóð álfunnar; byggðist það ekki hvað síst á vefnaðariðnaði þeirra, sem stóð á gömlum merg. Því hafði myndast í landinu fjölmenn stétt iðnver’’amanna. Hinar gífurlegu verðhækkanir, sem fylgdu góðm ílmaflóðinu frá Ameríku, höfðu mjög slæm á- hrif á kjör verkamanna þess- ara. í gremju sinni yfir versn- andi kjörum og vaxandi þving- unum hinna spænsku yfir- valda snerust þeir nú hópum saman til fylgis við kenningu Kalvíns, sem var snöggtum róttækari og andstæðari ka- þólskunni en Lútherstrúin. Aðalsmenn Niðurlanda sáu að hverju fór og sneru sér til Margrétar, systur Filippusar og landstjóra hans á Niðurlöndum, með kröfur um að létt yrði ofsókninni á hendur mótmæl- endum. Þeir fengu daufar und- irtektir, og um þessar mundir versnuðu kjör landsmanna enn sökum sjö ára stríðsins milli Dana og Svía (1563—70), sem útilokaði alla kornflutninga frá löndunum við Eystrasalt. Brutust þá út óeirðir víða um land og beindust þær gegn hin- um kaþólsku yfirvöldum. Fjöl- margar kirkjur voru rændar og helgir dómar óvirtir. Filippus varð auðvitað ösku- vondur og sendi tuttugu þús- und manna úrvalslið spænskt undir stjórn hertogans af Alva til Niðurlanda. Hertogi þessi var álíka þröngsýnn og of- stækisfullur og herra hans og líklega enn blóðþyrstari. Hann tók þegar höndum fjölda manns og lét taka þá af lífi, þar á meðal marga fremstu höfðingja landsins, svo sem greifana Egmont og Hoorn, sem báðir voru þó trúir ka- þólikkar og konungsmenn. Markmið hertogans var sem sagt ekki fyrst og fremst að hefna kirkjuspjallanna, held- ur að útrýma síðustu leifun- um af sjálfstæði landsins. Þetta hafði þriðji helsti fyr- irmaður Niðurlendinga, Vil- hjálmur prins af Óraníu, séð fyrir og því flúið í tæka tið til Þýzkalands. Greifarnir tveir höfðu talið tortryggni hans á- stæðulausa og kvatt hann með orðunum: „Vertu þá sæll, land- lausi þjóðhöfðingi “ „Sjálfir getið þið verið sælir, höfuð- lausu greifar," svaraði Vil- hjálmur. Óvíst er, hve margir létu líf- ið í sláturtíð Spánverja á Nið- urlöndum, en þeir skiptu mörg- um þúsundum. Þar við bættist, að Alva hertogi hugðist nú þvinga upp á landsmenn öllum hinum sömu lögum og giltu á Spáni, enda gat tignarmaður þessi ekki með nokkru móti komið því inn í höfuðið á sér, að hinir stoltu borgarar og bændur Niðurlanda hugsuðu öðruvísi en þýlyndur almúgi Suður-Evrópu. „Allir vilja þeir halda sig sem þjóðhöfðingja," var sagt um Niðurlendinga þeirra tíma, og minnir það á svar víkinganna, frænda 12 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.