Samvinnan - 01.06.1968, Blaðsíða 6
©AUGLÝSINGASTOFAN
ÞAÐ ER STAÐREYND
að um allan heim hefur notkun plaströra farið
geysilega í vöxt á síðustu árum.
Lagning þeirra er miklu. auðveldari en flestra
annarra röra.
Hreyfing á jarðveginum veldur þeim ekki tjóni.
Jarðvegssýrur vinna ekki á þeim.
Ending frábær: 50—100 ár.
Framleidd í stærðum V2"— 8”.
1 1
í 1
Það er hagkvæmara a5 leggja 300 metra langa lögn
með einu óskiptu, léttu og sveigjanlegu plaströri,
I stað 50 járnröra 6 m langra, 'sem öll þarf að tengja
saman (sjá meðfylgjandi mynd).
REYKJALUNDUR
REYKJALUNDUR, sími 91-66200
Reykjavík: Bræðraborgarstíg 9, sími 22150
að tylla sér á tá með hágóma-
skap og tildri. — Þingkjörna
nefndin ber auðvitað ábyrgð
á hneykslinu.
Sjávarútvegsmálin eru marg-
slungnari nú en nokkru sinni
áður. Má það því teljast vel
til fallið að gefa þeim, sem
þar standa í eldinum, kost á
að láta ljós sitt skína í dálk-
um Samvinnunnar. Áróðurs og
jafnvel gremju gætir í sumum
þessara greina og sízt að ófyr-
irsynju. En allt eru þetta fróð-
legir pistlar og bregða upp
skýrri mynd af ástandinu,
fiskveiðunum, nýtingu aflans,
söluhorfum, rekstursörðug-
leikunum og að síðustu mis-
tökum Alþingis og ríkisstjórna.
— Hér eru alvörumál rædd af
þekkingu og áhuga. Enda seg-
ir málshátturinn að „sá er eld-
urinn sárastur, sem á sjálfum
okkur brennur“.
Sveitamenn ýmsir hafa gott
af að skyggnast um í margvís-
legum örðugleikum sjávarút-
gerðarinnar. Og kaupstaðabú-
ar ýmsir, ekki sízt Reykvíking-
ar, hvort sem þeir verzla við
kaupmenn eða KRON, eru líka
næsta ófróðir í þessum efnum.
Og þó hvílir atvinnuöryggi
þeirra flestu framar á af-
komu sjávarútgerðarinnar.
Samvinnan heilsar árinu
1968 með fjölþættum pistlum,
6