Samvinnan - 01.06.1968, Síða 9
samvinnuverzlunar yfir kaup-
mannaverzlunum og samlags-
eða hlutafélagsverzlunum
verða að birtast öðru hverju.
Og þar má ekki gleyma þeirri
fjármunalegu uppbyggingu,
sem samvinnufélögin standa
að með margvíslegum sjóðum
til varnar samvinnusamtökun-
um og eigin stofnsjóðum fé-
lagsmanna. Og sízt má und-
anskilja félagshyggjuna, sem
þróazt hefir í skjóli þessara
samtaka.
Það er samvinnuhugsjónin,
félagshyggjan, sem leggja
verður kapp á að innræta hin-
um yngri og tilvonandi félags-
mönnum kaupfélaganna, og
þann metnað að gæta þarna
vel fengins arfs og ávaxta
hann í samræmi við kröfur
tímans, sjálfum sér til frama
og þjóðfélagi voru til velfarn-
aðar.
Með vinsamlegri kveðju.
Kristján Jónsson
frá Garðsstöðum.
□
SKOR
r\
A
LJ
á börn og fnllorána
Hr. ritstjóri!
í öðru hefti Samvinnunnar
þ. á. sakar Þórir Baldvinsson
mig um fölsun á tilvitnun í
bók Eisenhowers Mandate for
Change í grein minni um
Vietnam í heftinu á undan.
Tilvitnunina tók ég úr bók-
inni Vietnam! Vietnam! eftir
Felix Green (Penguin Books,
London 1967) þar sem hún er
á bls. 132 orði til orðs eins og
ég tilfæri hana, nema úrfell-
ingarmerki hefur fallið niður
af vangá. Ég tek hér upp enska
textann, svo ekki fari milli
mála: „I have never talked or
corresponded with a person
knowledgeable in Indochinese
affairs who did not agree that
had elections been held . . .
possibly 80 per cent of the
pcpulation would have voted
for the Communist Ho Chi
Minh.“ Ég lýsi því Þóri Bald-
vinsson ósannindamann að því
að ég hafi falsað orð Eisen-
howers í einu né neinu.
Segja má að óvarlegt sé að
taka tilvitnanir frá millilið án
þess að bera saman við frum-
heimild, en ég býst við að allir
sem skrifa um alþjóðamiál á ís-
lenzku kannist við að það
verður oft að gera í góðri trú.
Ég hef á tveim áratugum
skrifað greinar um alþjóða-
mál svo hundruðum skiptir, og
aldrei fyrr verið borinn á brýn
óheiðarleiki í meðferð heim-
ilda. Mér finnst því ósvifni af
Þóri Baldvinssyni að saka mig
um fölsun að óathuguðu máli.
En hvað sem því líður er
meginatriði þessa nuáls ekki
orð Eisenhowers í endurminn-
ingum hans, heldur verk hans
í forsetaembætti. Hann veitti
fulltingi sitt til að hindra að
framkvæmd yrðu ákvæði
Genfarsamningsins um kosn-
ingar til að sameina Vietnam,
og af því samningsrofi frekar
en nokkurri annarri ástæðu
stafar hin hryllilega styrjöld
sem hrjáð hefur þjóðina und-
anfarin ár.
Virðingarfyllst,
Magnús T. Ólafsson.
Vegna rúmleysis í þessu
hefti verða bréf frá Stein-
grími Baldvinssyni, Nesi í
Aðaldal, Guðmundi Inga
Kristjánssyni, Kirkjubóli í
Bjarnardal, og fleirum að
bíða næsta heftis, sem kem-
ur út í ágúst.
9