Samvinnan - 01.06.1968, Blaðsíða 20
Stulka í Kaliforníu að lesa vínber. Hún les allt að 2500 kg á dag, og
úr því verða 600 kg af rúsínum, en þcer eru ein þeirra vörutegunda
sem skrifstofa NAF í Kaliforníu annast kaup á.
Þessi skrifstofa er hin yngsta
af erlendum skrifstofum NAF,
og þar hefur verið mjög mikið
að gera frá byrjun. Veltan er
miklu meiri en búizt hafði ver-
ið við, og aðildarsamböndin
hafa staðið af miklum einhug
um þessa starfsemi.
í San Francisco rekur NAF
dótturfyrirtæki, Nordisk And-
elsforbund California Inc., sem
rekið er af bandarískum starfs-
mönnum, Gomperts yngri og
eldri, ásamt aðstoðarmönnum
þeirra. Það er líka mjög eril-
samt á þeirri skrifstofu, þar
sem auðvitað eru keyptar
venjulegar kalifornískar vörur,
svo sem niðursuðuvörur og
þurrkaðir ávextir, en hún
fylgist einnig nákvæmlega
með í viðskiptalífinu og á
framleiðslusviðinu vestanhafs
og lætur aðildarsamböndin
vita af því markverðasta sem
þar er á ferðinni hverju sinni.
í Buenos Aires er maður frá
NAF yfir ávaxtatímann, þ. e.
a. s. hann er þar allt árið og
hefur verið þar í meira en
þrjátíu ár, en aðra hluta árs-
ins starfar hann hjá dóttur-
fyrirtæki KF (sænska sam-
vinnusambandsins), LUMA SA.
Hann er sænskur að þjóðerni,
heitir Rune Petterson og ber
ábyrgð á innkaupum og af-
greiðslu alls þess geysimikla
magns af eplum, perum cg vín-
berjum frá Argentínu, sem
selt er í kaupfélagsbúðum á
Norðurlöndum. Á hverju ári
fær hann sér til aðstoðar við
innkaupin mann frá einhverju
af aðildarsamböndunum — í
fyrra var það Norðmaður, og
í ár er það ungur Finni. Og það
er þannig sem innkaupanet
N7IF lítur út núna. Fulltrúar
neytendanna hafa flutt sig út
í heiminn og myndað beinar
leiðir til þeirra frá framleið-
endunum.
Þeir markaðir, þar sem ekki,
eða ennþá ekki, svarar kostn-
aði að vera á staðnum, eru
undir stöðugu eftirliti frá
skrifstofu NAF í Kaupmanna-
höfn. Þar er keypt kaffi frá
Afríku, epli frá Frakklandi,
niðursuðuvörur frá Formósu
og fjölmargar aðrar vöruteg-
undir. Þar er líka aðalskrif-
stofa, þaðan sem allri starf-
Árið 1965 var stjórnarfundur NAF
af stofnendum NAF), Ebbe Groes
in og kona hans.
seminni er stjórnað, en heild-|i böndm í öðrum löndum fara
arveltan er nú um hálfur millj-
arður danskra króna á ári. í
Kaupmannahöfn koma líka
allir fjarskiptaþræðirnir sam-
an. Fjarritar og sími eru óhjá-
kvæmileg hjálpartæki í nú-
tímaviðskiptalífi, en þessi
hjálpartæki eru líka dýr. Sá
kostnaður er miklu minni en
annars væri, vegna þess að öll
samskipti fara fram um aðal-
skrifstofuna, þar sem fjarrit-
arnir tifa allan daginn.
Og hverju má svo búast við
í framtíðinni?
Á einu sviði hefur starfsem-
in þegar fært út kvíarnar, og
eru það innkaup fyrir sam-
vinnumenn í öðrum löndum.
Fyrir frumkvæði Alþjóðasam-
vinnusambandsins hafa sam-
vinnusambönd Vestur-Evrópu
byrjað að láta innkaupaskrif-
stofur sínar veita öllum sam-
bandslöndunum gagnkvæma
þjónustu. Það hefur leitt af
sér, að NAF annast nú inn-
kaup á kaffi frá Brasilíu, nið-
ursuðuvörum frá Kaliforníu og
vissum vörutegundum frá
Spáni fyrir öll systursambönd
sín í Vestur-Evrópu. Og sam-
starfið er gagnkvæmt — NAF
kaupir allar ástralskar niður-
suðuvörur, sem það þarfnast,
fyrir milligöngu innkaupaskrif-
stofu brezka samvinnusam-
bandsins í Sydney.
Það þarf ekki mikið hug-
myndaflug til að ímynda sér,
hversu langt þetta samstarf
geti þróazt, þegar rætt er um
grundvöll fyrir nýjar inn-
kaupaskrifsto'fur og aðstöðu
NAF á heimsmarkaðnum.
Samskiptin við systursam-
um hendur dótturfyrirtækis
NAF, Nordisk Andels-Eksport
(NAE), sem þar að auki hefur
fengið annað skemmtilegt
verkefni. NAE hefur tekið að
sér að sjá um innkaup fyrir
allmargar bandarískar stór-
verzlanir í eigu samvinnu-
manna. Þar er fyrst og fremst
um að ræða húsgögn og skyld-
ar vörur frá öllum Norður-
löndunum. Þessi viðskipti eru
þegar farin að nema um 10
milljónum danskra króna ár-
lega, og án mikillar bjartsýni
má reikna með að sú upphæð
tvöfaldist á næstu árum. Þessi
starfsemi hefur sparað banda-
rískum samvinnumönnum
miklar fjárhæðir, auk þess
sem hún hefur að sjálfsögðu
styrkt aðstöðu NAE.
Fram til þessa hefur starf-
semin þannig í megindráttum
takmarkazt við innkaup. En á
þessum tímum alþjóðlegs
samstarfs og með hliðsjón af
sívaxandi norrænu samstarfi
gefur að skilja að innan
NAF hafa einnig verið ræddar
leiðir til samstarfs á fleiri svið-
um. Stjórn NAF, sem skipuð er
æðstu stjórnendum samvinnu-
sambandanna á Norðurlönd-
um, hefur ekki aðeins að baki
sér verulegan hluta af smá-
söluverzluninni í þessum lönd-
um, heldur einnig meginhluta
framleiðslunnar á mörgum
sviðum.
Það leiðir af sjálfu sér, að
mikill ávinningur myndi nást,
ef hægt yrði að koma á auk-
inni hagræðingu og innbyrðis
verkaskiptingu á sviði fram-
leiðslunnar. Fyrstu ákvarðanir
haldinn á íslandi. Á myndinni eru jrá vinstri: Albin Johansson (einn
forstjóri danska samvinnusambandsins, Erlendur Einarsson, Lars Lund-
20