Samvinnan - 01.06.1968, Síða 49
tanke ret, gaar den ud paa, at et menneske,
der som Jens Munk, hverken tilsmiles av
livet i dets rigdom og herlighed eller vinkes
til side af döden med dens hvile og fred, alene
vil vœre hjemfalden til skœbnen og dens om-
skiftelser. Derfor skulde man i hans historie
vœre i stand til bedre end mange andre
steder at studere, hvad krönikeren med et af
sine gammeldags udtryk kalder menneskets
lod.“
Hér má liggja milli hluta hvort verk
Thorkild Hansens séu fremur „sagn-
fræði“ eða „skáldskapur“ — en víslega
er hann með áhugaverðustu rithöfund-
um í Danmörku um þessar mundir. Saga
hans af Jens Munk er sönn: hún hefur
raunverulega gerzt. En höfundinum
nægir ekki sagnfræði. Sögumaður hans,
„krönikeren“, lýsir afstöðu, lotningu fyr-
ir staðreyndum, trú á veruleika þeirra
sem okkar einu duganlega fótfestu áleið-
is til „sannleika", sem fjölmargir les-
endur og höfundar munu samsinna. Hver
kærir sig um sögulega rómani? En stað-
reyndir þrífast ekki einar sér, í tómu
rúmi; staðreyndir eru ekki samar og
jafnar frá degi til dags, ári til árs, manni
til manns. Hver og einn sögumaður gæðir
staðreyndir frásögu sinnar merkingu og
samhengi að sínum hætti og sinnar tíðar,
greinir „orsök“ og „tilgang“ að baki
þeirra, lífsins sem hann lýsir. „Naar
personerne er virkelige, maa forfatteren
være opdigtet," segir Thorkild Hansen —
í vitund þess að veruleikinn, sannleikur-
inn sjálfur verður þrátt fyrir allt og ætíð
óhöndlanlegur. En slíkur „tilbúinn höf-
undur“ á jafnan aðild að verkum dokú-
mentarista eins og öllum skáldskap öðr-
um.
II
í grein sem Per Olof Sundman birti í
sumar meðan hann var enn að vinna að
skáldsögu sinni Ingenjör Andrées luft-
fárd (Anteckningar och kommentarer,
BLM 1967, 6) segir hann frá sínum fyrstu
kynnum, í bernsku, af Andrée-leiðangr-
inum. „Andrée ár nágot som jag árvt av
min far,“ segir hann. Faðir höfundarins,
sem dó fyrir hans minni, safnaði á sín-
um tíma blaðaúrklippum og plakötum
blaðanna, svonefndum hlaupseðlum, þar
á meðal miklu efni um Andrée og leið-
angur hans. Salomon August Andrée var
verkfræðingur að mennt, forstjóri fyrir
einkaleyfaskrifstofu sænska ríkisins,
frjálslyndur og framfarasinnaður og
átti um skeið sæti í bæjarstjórn Stokk-
hólms, sannarlega enginn draumamaður;
en hann hafði áhuga á loftsiglingum.
„Han greps av en fix idé“, segir Sund-
man: „han skulle bli den förste vid nord-
polen.“ Áhugi Andrées á pólnum og pól-
ferðum stafaði einvörðungu af því að
engum hafði tekizt að komast þangað;
fyrir honum vakti ekki annað en verða
fyrstur á heimskautið, komast í öllu falli
sem næst því. Hugmynd hans var að láta
suðlæga vinda fleyta loftbelg sínum frá
Svalbarða og yfir heimskautið og áfram,
til Ameríku eða þangað sem loftbelginn
bæri að landi. Andrée fullyrti að loftbelg-
ur slnn, sérstaklega byggður fyrir leið-
angurinn, gæti haldizt á lofti í 30 sólar-
hringa, en hingað til hafði ekki tekizt að
halda loftbelg á flugi lengur en tvo eða
þrjá daga; með sérstökum stýrisbúnaði
átti að vera hægt að hafa nokkra stjórn
á ferð loftbelgsins. Sumarið 1896 beið
Andrée árangurslaust byrjar á Svalbarða;
það var sama sumarið sem Friðþjófur
Nansen sneri heim úr sínum fræga
heimskautsleiðangri á Fram — án þess
að hafa komizt á sjálfan pólinn. Árið
eftir var tilraunin endurtekin. 11. júlí
1897 hóf Andrée sig til flugs við þriðja
mann í loftbelg sínum — og þar með
hurfu þeir félagar úr sögunni um meira
en 30 ár. Það var ekki fyrr en 1930 að
líkamsleifar þeirra fundust í þeirra
hinzta næturstað á Hvítey við Svalbarða.
Reynslan reyndist sem sé ólygnari
kenningum verkfræðingsins. Stýrisútbún-
aðurinn eyðilagðist þegar við flugtak. Og
loftbelgurinn sem átti að haldast á lofti
allt að mánuð strandaði í ísnum þegar á
þriðja degi og hafði þá borið töluvert af
réttri leið. En leiðangursmenn voru við
því búnir að brjótast langan veg til
byggða, ef með þyrfti, um auðnir og
torfærur heimskautalanda. Og hófst nú
endalaus ganga þeirra til lands, yfir ís-
breiðuna sem stöðugt virtist reka gegn
þeim. Henni lauk í Hvítey. Þangað höfðu
þeir komizt í október um haustið, búizt
um til vetursetu, en létust allir áður en
langt leið. En það voru ekki einasta
jarðneskar leifar og farangur þeirra sem
fundust í Hvítey heldur einnig dagbæk-
ur sem þeir höfðu haldið í ferðinni,
merkilega vel varðveittar. Þar er að finna
það sem vitað er um leiðangurinn og
örlög leiðangursmanna eftir að lagt var
upp frá Svalbarða, og dagbækurnar eru
helzta heimild Per Olof Sundmans fyrir
sögu sinni sem hófst með úrklippusafni
föður hans. Áður hefur hann að vísu
lesið allt sem skrifað hefur verið um
leiðangurinn, og hann hefur kynnt sér
vandlega minjasafn hans; ennfremur
hefur hann viðað að sér ógrynnum efn-
is um heimskautaferðir almennt til að
efla sannfræði frásögunnar í smáatrið-
um.
Tveir leiðangursmanna héldu reglu-
legar dagbækur, þeir Andrée og Nils
Strindberg. Sá þriðji, Knut Fraenkel,
gerði veðurathuganir leiðangursins og
hélt bók um þær, en enga dagbók fyrir
eigin reikning eins og félagar hans. En
það er hann sem Per Olof Sundman læt-
ur segja sögu sína af loftsiglingu Andrées
verkfræðings.
III.
Per Olof Sundman hefur áður samið
skáldsögu með ekki ósvipaðri aðferð og
Ingenjör Andrées luftfárd, sem í vetur
hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs; það var Expeditionen sem kom út
1962 og vakti verulega athygli á höfund-
inum erlendis. Hún var byggð á ritum
Henry Stanleys landkönnuðar, einkum
frásögn hans af leiðangrinum til bjarg-
ar Emin pasja, þriggja ára ferð lengst
inn í myrkviði Afriku, 1887—1889. „Min
bok handlar dock inte om denna und-
sáttningsexpedition,“ segir Sundman
seinast orða í örstuttum formála þar
sem hann getur um þessa heimild sína.
Og sama má víst segja um hina nýju
bók hans: hún fjallar ekki um Andrée-
leiðangurinn sem slíkan þó efniviður
hennar sé þangað sóttur. Það er ekki
sjálft hið sanna söguefni sem freistar
Sundmans — þó hann fari með það í
bók sinni af nákvæmni um smáatriði sem
maður gæti freistazt að kalla vísindalega.
Þess er getið um söguna að þar komi
fram allar þekktar staðreyndir sem
máli skipti um leiðangurinn og enda-
lykt hans, og sé rétt farið með þær all-
ar. Engu að síður er Ingenjör Andrées
luftfárd skáldskapur fyrst og fremst,
eitthvað annað og meira en frásögn blá-
berra staðreyndanna um hina hróplegu
pólferð; Sundman á þrátt fyrir allt færra
sameiginlegt með „dokúmentaristum“ en
söguefni hans virðist benda til. Hann er
ekki ádeilu- og áróðursmaður eins og
Peter Weiss og Rolf Hochhuth. Hann hef-
ur ekki sama æsingakennda áhuga á ótíð-
indum, glæp og refsing eins og Truman
Capote. Og hann er ekki eins og Peter
Weiss og Jean-Frangois Steiner að segja
frá sögulegum stórtíðindum, veruleika
sem yfirgengur alla mannlega ímyndun.
Hann hefur eðlisgróna tortryggni, andúð
á hefðbundinni sálfræðilegri frásöguað-
ferð sem þeir þurfa báðir á að halda,
Capote og Steiner, til að gera sín ömur-
legu söguefni aðgengileg, skiljanleg le;s-
andanum. Og Sundman er ekki epískur
höfundur eins og Thorkild Hansen sem
heillast af sögulegri atburðarás, fólki og
örlögum þess, sjálfs þess vegna fyrst og
fremst. Því er reyndar ekki að neita, og
einmitt það gerir samanburð svo for-
vitnilegan, að sitthvað er líkt með sögu-
hetjum þeirra, Munk skipstjóra og
Andrée verkfræðingi. Báðir eru knúðir
áfram af óslökkvandi metnaði, heillaðir
af sjálfri ófærunni — og báðir bíða þeir
hraklegar ófarir og ósigur að lokum. Það
má segja með sanni að báðar þessar ólíku
bækur fjalli um mannlega þráhyggju.
Samt er á þeim meginmunur. Tilraun
Munks að finna „norðvestur-leiðina“ var
þrátt fyrir allt engin fjarstæða, hún kom
heim við skynsamlegt vit þeirra tíma;
loftsigling Andrées verkfræðings var hins-
vegar fjarstæð frá öndverðu. Seinni tíma
menn gera sér grein fyrir því hvernig og
hversvegna leiðangur Jens Munks mis-
heppnaðist, en sjálfur gat hann ekki vit-
að að svo þurfti að fara; öll rök hníga
hinsvegar að því að Andrée hafi vitað
fullvel sjálfur hvílíka fásinnu hann lagði
út í hinn 11. júlí 1897, fangi síns eigin
metnaðar, þráhyggju sinnar. Sá skilning-
ur virðist mér skipta skáldsöguna meg-
inmáli.
Fundur þeirra leiðangursmanna í Hvít-
ey, dagbækur þeirra leysa sem sagt eng-
anveginn úr gátunni um Andrée-leiðang-
urinn. Þær koma mönnum aðeins til að
spyrja annarra spurninga en áður. í
grein sinni í BLM í sumar, sem hér hefur
einkum verið stuðzt við, leiðir Sundman
rök að því að ekki aðeins Andrée, held-
49