Samvinnan - 01.06.1970, Page 4

Samvinnan - 01.06.1970, Page 4
Reykjavík, 8.5. 1970. Hr. ritstjóri. Beztu þakkir fyrir síðasta hefti Samvinnunnar. Það er verðugt verkefni ritsins að ræða vernd íslenzkrar náttúru svo sem þar er gert, því að sjáanlega þarf að vekja menn til alvarlegrar íhug- unar um þau mál öll, eins og nú er komið þeim málefnum verald- ar. Og gott er að finna þann yl, sem á bak við býr, og þann skiln- ing á þeim verðmætum, sem okk- ur ber að varðveita. Ekki er seinna vænna. En sérstaklega þakka ég grein- ina „Goðsögnin um íslenzka einkaframtakið". Það eru vissu- lega orð í tíma töluð. Mig hefur oft furðað á því nú í seinni tíð, hve sterk og þung sú þögn er, sem um slíka hluti ríkir hjá þeim, sem ættu þó að tala. Ég held að varla hafi verið tek- ið eftir þeirri furðulegu frétt SKIPAMÁLNING um daginn, hvað þá að menn hneyksluðust, þegar einhver sagði frá því, að KRON, sam- vinnufélag fjölda borgara í Reykjavík, hefði aldrei getað fengið lóð undir hús hjá Reykja- víkurborg! Þetta er ótrúleg saga, en mun því miður vera sönn. Svo sterkur er „veggur“ einka- framtaksins. Hvar er Kveldúlfur nú? spurði einhver. Og Alliance? o. fl.? Við sem gamlir erum könnumst við ýmsa „stóra“ á fyrstu áratugum aldarinnar, sem lítið munaði um til lengdar. Sumir fluttu með all- an „aflann" úr landi, aðrir dreifðu honum handa sér og sín- um í óarðbæra hluti, sem smátt og smátt hafa horfið. Slíkt hefur því samfélaginu orðið að litlu gagni. „En merkið stendur þótt mað- ur falli“, má segja um samvinnu- fyrirtækin, þótt óhöpp kunni að henda við og við. En staðreynd er ólygnust sú, að þau eru hald- bezt, þegar allt er skoðað, þrátt fyrir allt. Um það verður varla deilt. Það er því tvímælalaus nauð- syn að alþýðustéttirnar skilji þetta og fylki sér undir merki samvinnunnar eins og nágrannar þeirra gera. Hér er því vissu- lega mikið verk að vinna. Bænd- urnir hófu merkið á sinni tíð og hafa haft gott af. Þess nýtur öll þjóðin nú að nokkru. En nú eiga hinar fjölmennu stéttir verkalýðs og iðnaðar, þorpa og kaupstaða að skilja sinn vitjunartíma. Og til þess á Samvinnan að hjálpa þeim. Með beztu kveðju. Snorri Sigfússon. D J w ' S w 2 < ctí w X w < w 2 w Ctí < o D E- < Ctí '< CREAU CRACKERS OS FRÚN CRACKERS MATARKEX. KRINOLÓTT. LtTIÐ KREMKEX MEB BLONDUDU KREUI ALLAR ADRAR TEOUNDIR AF KEXI 00 KOKUU 4

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.