Samvinnan - 01.12.1971, Blaðsíða 3
Samvinnubankinn starfrœkir
útibú á cftirtoldum stöðum:
Akranesi, Grundarfirði, Pat-
reksfirði, Sauðárkróki, Húsavík,
Kópaskeri, Stöðvarfirði, Vík í
Mýrdal, Keflavík, Hafnarfirði
og Háaleitisbraut 68, Reykja-
vík.
Bankastræti 7, Reykjavík
Sími 20:700.
Siglufirði 9. nóvember 1971.
Herra ritstjóri.
Ég vil nú hafa sama háttinn
á og sumir aðrir lesendur Sam-
vinnunnar að þakka fyrir síð-
asta hefti með nokkrum línum.
Þetta hefti var óvenjugott, og
kannski bezt fyrir það, að nú
eru þeir hættir að skrifa þessir
leiðinlegu brandarasmiðir, sem
áður komu þar flestum til leið-
inda, nema sjálfum sér. Það er
fátt leiðinlegra en menn, sem
alltaf eru að reyna að vera
fyndnir, en skortir allan hú-
mor. En með því marki er núna
mest að þessum svokallaða
skemmtanaiðnaði okkar. Mér
þykir alltaf gaman að lesa það
sem rauðsokkurnar láta frá sér
fara, þótt ég sé þeim í sumu
tilliti ósammála. Ég viðurkenni
réttmæti baráttu þeirra, og það
er ekki tiltökumál þó barátta
fyrir nýjum stefnum og nýjum
samfélagsháttum verði stund-
um ofurlítið öfgakennd á köfl-
um, en ekki meira um það.
Auðvitað sakna ég þess, að
Magnús Torfi skuli nú hættur
að skrifa í ritið um erlend mál,
en skil þó, að hann muni hafa
öðrum hnöppum að hneppa að
taka við menntamálaöngþveit-
inu eftir fyrrverandi mennta-
málaráðherra og reyna að
koma reiðu á þau mál.
Sú greinin, sem mér þótti
skemmtilegast að lesa, var um
kosningarnar og stjórnarmynd-
unina. Það er óvenjulegt í ó-
háðu tímariti að fá svo hressi-
lega og heiðarlega skilgrein-
ingu á pólitík dagsins. Það er
ekki bara von okkar fylgis-
manna núverandi stjórnar,
heldur einnig fjölda margra
kjósenda Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðuflokksins, að henni
takist að framkvæma stefnu-
mál sín, og ég hef trú á, að
það takist. Þessi stjórn er á
margan hátt mikið gæfulegri
en vinstri stjórnin 1956—1958,
og hefur hún þó aldrei verið
látin njóta sannmælis. Tvennt
það merkasta, sem eftir hana
liggur, það er útfærsla land-
helginnar og uppbygging at-
3