Samvinnan - 01.06.1972, Blaðsíða 60
HElMILISiJ
« ^
Bryndís
}L, , Steinþórsdóttir
^ snmiRH
Á sumrin er sjálfsagt að leggja niður kökubakstur og hafa heldur
brauð, kex og álegg með kaffi, tei eða köldum drykkjum. Pljótlegast
er að raða brauði og áleggi á bakka og láta hvern um að smyrja fyrir
sig. Við betri tækifæri og einnig ef lítið er til af áleggi er hagkvæmt
og tilbreyting að bera brauðið eða kexið fram tilbúið. Hér koma fram
nokkrar tillögur um kex (eða brauð) með áleggi við betri tækifæri.
Agúrka, sjólax og kapers
Leggið agúrkusneið á smurt kex. Skerið laxinn í
mjóar ræmur, vefjið þær upp og leggið á miðja
gúrkusneiðina. Skreytið með kaperskornum og
dilli eða steinselju. í staðinn fyrir sjólax kemur
reyktur lax eða síld.
Ostur, rækjur og olíusósa (mayonaise)
Smyrjið kex með góðosti eða rækjuosti, leggið
hluta af salatblaði á, raðið rækjum yfir og
skreytið með olíusósu, papriku og dilli eða stein-
selju.
Agúrkur, lifrarkæfa og olívur
Smyrjið kexið með smjöri, leggið gúrkusneið
yfir, því næst ferkantaðan lifrarkæfubita og
olívusneið. Skreytið með steinselju.
Gráðaostur með radísum
Leggið hluta af salatblaði á smurt kex. Skerið
ostinn í hæfilega stóra þríhyrninga og látið einn
bita á hverja köku. Skerið radísur í sneiðar og
skreytið með þeim.
Sardínusmjör og spánskur pipar (paprika)
Hrærið saman sardínur í tómat og lint smjör.
Bragðbætið með hvítlaukssalti eða papriku. Sker-
ið endann af piparhulstrinu og takið innan úr
því. Fyllið því næst með sardínusmjörinu og
kælið í einn til tvo tíma. Skerið í sneiðar, leggið
eina sneið á hverja kexköku og skreytið með
steinselju.
Egg með lauk og kavíar
Leggið eina til tvær eggjasneiðar á smurt kex,
því næst eina tsk af kavíar, laukhrnig, sítrónu-
bita og dill.
Síld, tómatar og eggjasalat
Blandið saman kryddaðri oliusósu, harðsoðnum
eggjum (söxuðum) og söxuðum lauk eða gras-
lauk og karrý og smyrjið því í þykkt lag á kex.
Látið kryddsíldarbita eða ansjósur og tómatbát
yfir.
TVÆR TEGUNDIR AF KEXI í BARNAAFMÆLI
Karlinn í tunglinu
Smyrjið kringlóttar kexkökur með smjöri og
tómatmauki eða sinnepi. Skerið vínarpylsur í
sneiðar ög hafið heilar sneiðar fyrir augu og
hálfar sneiðar fyrir eyru. Hafið rúsinur fyrir
augasteina en tómatbita og ræmu fyrir nef og
munn. Hárið er dill eða steinselja.
Kexblóm
Smyrjið kex með góðosti. Skreytið með hálfum
vínberjum, radísusneiðum og söxuðum hnetum
(peanuts).
60