Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1976, Blaðsíða 32

Samvinnan - 01.05.1976, Blaðsíða 32
sagna samkvæmt athugun Hoffmans, að of fáar rann- sóknir hafa verið gerðar á á- hrifum uppeldis á þau svið sið- gæðiskenndar, sem kenning Piagets tekur til, að nokkuð sé hægt að fullyrða. Eins og áður er getið birtust rannsóknaniðurstöður Piagets árið 1932. Lengi virtist sem það ætti að vera örlög hinnar merku og nýstárlegu bókar að falla í gleymsku, þvi að það var ekki fyrr en á síðari hluta sjötta áratugsins, sem líf tók að færast í athuganir á siðferðisþroska með viðmiði við rannsóknir Piagets, — en síðan hefur Piaget lika verið mikið í sviðsljósinu. Mikilvirk- asti fræðimaðurinn i þessari endurvakningarstarfsemi er bandariski sálfræðiprófessor- inn Laurence Kohlberg og nokkur hópur manna, sem með honum hafa unnið. Allar meginforsendur í kenn- ingum Kohlbergs eru frá Pia- get runnar, en þó er um nokkr- ar veigamiklar breytingar að ræða bæði hvað varðar rann- sóknaraðferð og niðurstöður. Kohlberg litur svo á, að Piaget hafi ekki tekizt að halda sér nægilega fast við kjarna sið- ferðisþróunar, þ. e. hvernig dómgreindin þróast þrep af þrepi i átt til algildra lögmála og skilnings ágildimannlífsins. Til þess hefði Piaget þurft að hnitmiða rannsóknir sinar bet- ur og hreinsa úr þeim efni, sem háð er félagslegum aðstæðum. Þetta telur Kohlberg sig hafa gert. Á grundvelli langvarandi viðtala og athugana á 75 drengjum, sem hann fylgdist með frá 10—16 ára aldurs staðlaði hann eins konar þroskapróf, þar sem barnið átti að taka afstöðu til hliðstæðra siðferðilegra vandamála, er náðu yfir 30 efnissvið. Athug- anir hans sýndu að afstaða drengjanna byggðist á mati, sem féll með auðveldum hætti í sex flokka og að þessir flokk- ar táknuðu mismunandi þrosk- uð viðhorf. Hverjir tveir flokk- ar voru innbyrðis skyldastir og skoðaði Kohlberg þá því sem tvö mishá þrep innan sama á- fanga eða skeiðs, þannig að hið staðlaða þroskamat á sið- ferðislegri dómgreind skiptist í þrjú þroskaskeið með tveimur þrepum í hverjum. Kohlberg og samverkamenn hans hafa lagt þetta þroska- mat fyrir mikinn fjölda barna og unglinga víðs vegar um heim og telja þeir sig hafa rannsóknagögn til þess að slá eftirfarandi föstu: 1) Náin tengsl eru milli vitsmuna- þroska og siðferðilegs þroska. Fylgnitölur rannsókna eru frá 0,31 til 0,50, sem er allgóð já- kvæð fylgni. 2) Hvert þrep, sem er fyrir ofan annað, er frá þvi lægra sprottið, en felur samt í sér annað gildismat. 3) Röð þrepanna er ávallt sú sama og gengur frá fyrsta þrepi til hins sjötta. 4) Þróunarferillinn er ávallt hinn sami (röð þrepa), hvert svo sem hið menningar- lega umhverfi er, enda þótt tjáningarmátinn sé mjög mis- munandi og sums staðar sé þróunin hægari og hinn end- anlegi þroski minni en annars staðar. 5) Betra samræmi er milli siðgæðismats einstaklings samkvæmt prófun og hegðun- ar hans, þegar ofar dregur i þroskaþrepunum. Einkum gild- ir þetta um sjötta þrepið. 6) Þróun siðgæðiskenndar er ó- gagnhverf, þ. e. maður getur ekki hrapað af hærra þrepi á lægra. 7) Hvert þrep er ein heild, þ. e. einstaklingur metur og hegðar sér samkvæmt grundvallarreglum tiltekins þreps, hvert svo sem efnissvið- ið er. 8) Eins og áður getur taldi Piaget, að barn hefði náð lokastigi siðferðisþroska um 11—12 ára aldur eða a. m. k. öðlazt skilning á höfuðlögmál- um fullþroska siðgæðis. Kohl- berg heldur því aftur á móti fram, að siðferðiskennd taki miklu lengri tíma að þroskast, stundum allt fram til 25 ára aldurs. 9) Einungis fáir ein- staklingar ná fullum siðferðis- þroska, þ. e. 5. og 6. þrepi sam- kvæmt staðli Kohlbergs. Nefnd hefur verið talan 10% í þessu sambandi. Ástæðurnar eru sjaldnast þær að vitsmunaleg- 1 ar forsendur skortir, heldur standa andstæðar félagslegar aðstæður í vegi. Ekki hefur ýkja mikið borið á gagnrýni á rannsóknaraðferð eða niðurstöðum Kohlbergs, og fær hann t. a. m. væga með- ferð hjá áðurnefndum Hoff- mann. Eina verulega og vel studda gagnrýnin, sem ég hef séð, er i ritgerð eftir tvo bandaríska fræðimenn, en hún birtist á miðju ári 1974. Þeirri gagnrýni verða ekki gerð skii i stuttu máli. En þar er aðal- lega sýnt fram á meiriháttar meðferðafræðilega galla, auk þess sem þroskaprófið sjálft er talið mikið gallað sem mæli- tæki. Höfundar fullyrða, að til þess að hægt sé að ganga úr skugga um áreiðanleika þeirra niðurstaðna, sem Kohlberg og félagar hans hafa sett fram, þurfi að endurtaka flestar ef Hvers vegna Vegna þess að hjá okkur færðu prentun alls konar, frá nafnspjaldi til bóka og tímarita - Offsetprentun - Litmyndaprentun - Prentum einnig samfelld eyðublöð fyrir allar gerðir skýrsluvéla og bókhaldsvéla PRENTSM IÐJ AN EDDA H F. Lindargötu 9A — Reykjavík — Sími 26020 (4 línur) 32

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.