Samvinnan - 01.11.1974, Page 24

Samvinnan - 01.11.1974, Page 24
MINNING l—^ T li -J ER Afl FRÍTTA? Menntunarkröfur sífellt að aukast Nemendur í 3. og 4. bekk fram- haldsdeildar Samvinnuskólans, er stofnuð var í fyrra. Samvinnuskólinn að Bifröst var settur við hátíðlega athöfn 24. september kl. 18. Hinn nýi skólastjóri, Haukur Ingibergsson, cand. mag., bauð gesti velkomna og gerði i upp- hafi máls síns grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á starfsliði skólans. Af störfum hafa látið: Sr. Guðmundur Sveinsson skólastjóri, Guðlaug Einarsdóttir húsmóðir skóla, Snorri Þorsteinsson yfirkenn- ari, Sigurður Hreiðar Hreiðars- son tómstundakennari og Benedikt Jónasson húsvörður. Auk hins nýja skólastjóra, Hauks Ingibergssonar cand. mag., hafa komið til kennslu- starfa Guðbrandur Gíslason M.A., Jóhanna Margrét Guð- jónsdóttir B.A., Guðmundur Arnaldsson tómstundakennari og Svavar Lárusson B.A., sem er yfirkennari við framhalds- deild skólans í Reykjavik. Helga Karlsdóttir tók við stöðu húsmóður og Grétar Ingimars- son við stöðu húsvarðar. Umsækjendur um skólavist í 1. bekk skólans voru um 200 talsins, en húsnæðisins vegna var einungis unnt að taka á móti 42 nemendum, og segir það í senn sína sögu um gott Haukur Ingibergsson, skólastjórí. orðspor skólans sem og hús- næðisvandræði. Nemendur í 2. bekk eru 36 og alls eru því 78 manns við nám að Bifröst í vetur. Þetta er annað árið sem framhaldsdeild skólans starfar í Reykjavík og stunda 20 nem- endur nám i 3. og 4. bekk skól- ans, sem þar eru til húsa. Rakti skólastjóri nokkuð þau rök, sem lágu til stofnunar framhaldsdeildarinnar. í fyrsta lagi væru menntun- arkröfur alltaf að aukast, sem og þekkingarforðinn, og ef tek- ið væri tillit til þjóðfélagsþró- unar og allra aðstæðna væri það fjögurra vetra nám, sem Samvinnuskólinn byði upp á nú, næsta sambærilegt við tveggja ára nám skólans fyrir 20 árum. Svo mikið hefðu menntunarkröfur aukizt. f framhaldsdeild væri mest á- herzla lögð á hagnýtt nám í tungumálum og verzlunar- og stærðfræðigreinum. í öðru lagi sagði skólastjóri, að Samvinnuskólinn hefði ver- ið blindgata í skólakerfinu. Þótt nemendur hefðu hugað á framhaldsnám, hefði engin greið leið verið opin hér innan- lands, þótt Samvinnuskóla- menn væru velkomnir til náms við ýmsar erlendar mennta- stofnanir. Með framhaldsdeild opnuðust nýir möguleikar til frekara náms. f þriðja lagi hefði Samvinnu- skólanum verið ætlað mikið og verðskuldað hlutverk í frum- varpi til laga um viðskipta- menntun á framhaldsskóla- stigi, sem lagt hefði verið fyrir seinasta reglulegt Alþingi, en ekki orðið útrætt. Væri stofn- un framhaldsdeildar nauðsyn- ieg, ef Samvinnuskólinn ætti að geta gegnt hlutverki sínu með sóma í framtíðinni. ívar ívarsson, kaupfélagsstjóri fvar fvarsson, kaupfélags- stjóri, Kirkjuhvammi í Rauða- sandshreppi, er látinn. Hann var jarðsettur í heimabyggð sinni að Saurbæ á Rauðasandi 17. september síðastliðinn. ívar var fæddur 25. septem- ber árið 1889 í Kirkjuhvammi, sonur ívars Magnússonar bónda þar og konu hans Rósu Benjamínsdóttur. Hann gerð- ist bóndi á Kirkjuhvammi árið 1930 og bjó þar til dauðadags. Samhliða búskapnum hafði ív- ar á hendi fjölda trúnaðar- starfa fyrir sveit sína og sýslu. Merkustu þættirnir í lífsstarfi hans voru þó störf í þágu sam- vinnufélaganna, en hann var í meira en þrjá áratugi kaup- félagsstjóri eins minnsta og af- skekktasta kaupfélags lands- ins, Kaupfélags Rauðasands á Hvalskeri. Samvinnumenn minnast hans að leiðarlokum með virðingu og þakklæti. Kynntu sér verzlunina í Svíþjóð Dagana 22.—30. sept. síð- astliðinn efndi Skipulags- og fræðsludeild Sambandsins til kynnisferðar til Svíþjóðar fyrir verzlunarstjóra og verzlunar- ráðunauta samvinnufélaganna. Þátttakendur voru 14 frá ýms- um stöðum á landinu, en farar- stjóri var Sigurður Jónsson, verzlunarráðunautur. Ferðin var skipulögð i samráði við KF - sænska samvinnusambandið. Skoðaðar voru allar helztu gerðir samvinnuverzlana 1 Stokkhólmi, Lundi, Malmö og víðar, bæði vörumarkaðir og vöruhús, og einnig var birgða- stöð KF i Bro heimsótt, en hún er hin stærsta sinnar tegundar í norðurálfu. Þátttakendurnir kynntust vel rekstri sænskra samvinnuverzlana svo og nýj" ungum í útbúnaði þeirra og að- stöðu, en ör þróun og miklar breytingar hafa orðið á þessu sviði í Svíþjóð undanfarin ár. 24

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.