Samvinnan - 01.03.1986, Blaðsíða 52
7. ÖRK B
Allt athafnalíf okkar er í höndum fáeinna manna, sem
hafa drepið í dróma efnahagslegt frelsi þjóðarinnar,
sagði Woodrow Wilson.
Leiðin til Hvíta hússins
Grein um
Woodrow
Wilson,
einn merkasta
forseta
Bandaríkjanna
Woodrow Wilson ásamt fjölskyidu sinni.
Thomas Woodrow Wilson var
fæddur í Staunton í Virginíu 28.
desember 1856, sonur prests í
söfnuði presbytera, Joseph Ruggles
Wilson, og konu hans, Jessie, fæddrar
Woodrow, en feður þeirra beggja
höfðu verið prestar og framættir
beggja voru skoskar. Föðurfaðir
Thomas hafði 1807 flust til Bandaríkj-
anna frá Ulster á Norður-írlandi, en
móðir hans var fædd í Carlisle á
Norður-Englandi. Thomas var naum-
ast ársgamall, þegar foreldrar hans
fluttust til Augusta í Georgia, þarsem
faðir hans hafði fengið annað brauð.
Þar ólst Thomas upp til 1870, eða 14
ára aldurs, að faðir hans varð kennari
við prestaskóla í Columbíu í South
Caroline og prestur þar, en fjórum
árum síðar 1874, varð hann prestur í
Wilmington í North Caroline. Elsta
minning Thomas litla var að heyra um
52
kjör Lincolns til forseta og stríð í
vændum.
# Ólst upp við ástríki
Borgarastyrjöldin var háð, meðan
Thomas var á fimmta til níunda ári, og
var faðir hans um skeið herprestur og
úr stólnum í kirkju sinni varði hann
þrælahald. Og drengnum virðist hafa
orðið minna um styrjöldina sjálfa en
eftirstríðsárin. „Nálega allir suður-
ríkjamenn af kynslóð hans báru sár
borgarastyrjaldarinnar. Hann bar
hennar engin sár. Án beiskju minntist
hann þess að hafa níu ára gamall
staðið að baki gluggatjalda og horft á
hermenn norðurríkjanna hrekja fang-
aðan forseta suðurríkjasambandsins,
Jefferson David, og annan forystu-
mann þeirra, Alexander Stephen, eftir
götum Augusta á leið í fangelsi. Með
honum leyndust ekki glæður hins
glataða málstaðar. í hjarta sínu var
hann ekki suðurríkjamaður, heldur
skoskur presbytari, sem fyrir tilviljun
hafði fæðst í Virginíu.“'
Thomas ólst upp við mikið ástríki.
Átti hann tvær systur, sem voru hon-
um eldri, önnur sex árum, hin fjórum,
og bróður eignaðist hann tíu ára
gamall. Á barnsaldri var hann veill
heilsu og hlaut tilsögn í heimahúsum.
„Tilfinningar hans fengu útrás í kirkj-
unni og á prestssetrinu. Orgelleikar-
inn í kirkjunni tók eftir, að sonur
prestsins hreifst af tónlist, og þegar
hátíðleg lög voru leikin svo sem
„T’was on that dark and doleful day“,
sem oft var sungið við guðsþakkar-
gerðir, brast litli drengurinn í grát.“2
Hann leit mjög upp til föður síns, og
hlýddi með athygli á hvert orð sem féll
af vörum þess skrúðmálga klerks, en
að sínu leyti lét faðir hans hann njóta
þess. „Faðir hans lagði sig allan fram
til að vekja með honum ást sína á
tungunni. Hann lét barnið aldrei kom-
ast upp með að misbeita orði eða að
klúðra setningu.“3
Þrettán ára gamall gekk Thomas
fyrst í barnaskóla í Augusta, aðeins
i
M3iSi93B|3HlN1D