Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Side 90

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1924, Side 90
84 Tímarit íslenskra samvinnufélaga. á allar stéttir, aðalsmenn sviftir dómsvaldi og hirtingar- rétti yfir bændum og leiguliðum, og ábúðarrétturinn gerð- ur tryggari en áður. Búauðgiskenningin var afturkast á móti kaupauðgis- stefnunni. Henni fór á sama hátt og oft vill verða, þegar nýjar kenningar koma fram gegn öðrum eldri kenningum, að það er gengið lengra en rétt er. Margt í kenningu búauð- unga hafði við rök að styðjast og ýmsar tillögur þeirra beindu í rétta átt. Öfgarnir voru hinsvegar afsakanlegir. Stór meirihluti frönsku þjóðarinnar lifði á jarðyrkju. Stærstu jarðeigendur landsins, stóraðallinn í borgunum, fékk ár hvert feikna tekjur af jörðum sínum, er veittu fjölda manna beint eða óbeint viðurværi sitt eða atvinnu. Borið saman við landbúnað bar lítið á iðnaði og verslun. Fjöldi manna í þessum stéttum virtist ekki bera meira úr býtum en til viðurværis. Landbúnaðurinn er að vísu þýðingarmesti atvinnuveg- ur hverrar þjóðar, og aðallífsnauðsynjar manna eru land- búnaðarafurðir. Búauðungar fóru þó út í öfgar, er þeir töldu jarðyrkjuna (og aðra hrávöruframleiðslu) eina arð- sama atvinnuveg þjóðanna, þar eð hann einn gæfi hreinan arð. Gildi hvers atvinnuvegar fyrir þjóðfélagið, hvort held- ur það er landbúnaður eða iðnaður, verður eigi eingöngu metið eftir því, hvort hann gefur meiri eða minni hreinan arð. Ber miklu fremur að líta á það, hve mikill hluti þjóð- arinnar fær lífsuppeldi sitt af honum. Hinsvegar getur það brugðist í landbúnaðinum, eins og í öðrum atvinnuvegum, að um nokkum hreinan arð sé að ræða. Fæstar af gjöfum náttúrunnar eru svo lagaðar, að mennirnir geti hagnýtt sér þær alveg óunnar, eins og þær koma frá hennar hendi. pað þarf að sníða eða vinna efnin, svo að þau geti full nægt þörfum manna, og flytja vöruna til þeirra, er geta hagnýtt sér hana. Sú vinna getur gefið hreinan arð eins og jarðyrkjan. það, sem skiftir mestu máli, er það, að vmnan í heild sinni geti framfært sem best alla einstakl- inga þjóðfélagsins. Tilgangurinn með allri starfsemi, hvort heldur er í landbúnaði, iðnaði eða öðrum atvinnugreinum,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.