Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1925, Blaðsíða 60
250 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
Fuglunum er hún orðin svo eiginleg og eðlileg, að frá
henni víkja þeir aldrei.
2. Söngur fugla.
Fuglasöngvar eru einhverjar hinar dýrðlegustu radd-
ir, sem heyrast í náttúrunni. Raddir annara dýrategunda
þola þar engan samanburð. Að vísu eru ekki allir fuglar
jafnsnjallir í tónlistinni. Spörfuglar skara fram úr, þar
næst vaðfuglar og sundfuglar.
Mjög er það undir atvikum komið, hvernig fuglar
beita röddinni. þegar þeir eru í góðu skapi, og kvaka ástar-
Ijóð, er röddin „hugljúf og hrein“, eins og skáldið kvað
um sólskríkjuna. Verði fuglinn þess var að hætta er á ferð-
um kemur óttablandinn hreimur í röddina. Hún verður að-
vörunarkvak. Hafi fuglinn verið rændur eggjum eða ung-
um verður söngröddin líkust gi'átraust eða örvænting-
arópi.
Vorið og öndvert sumar er aðalsöngtími farfugla.
Flestir fara þeir strax að syngja og þeir eru komnir á
vorin. En þó er það jafnan undir veðráttu komið, hve
snemma þeir byrja. þeir láta lítið til sín heyra í kulda og
hráslagaveðri, en í hlýju veðri, sólskini oð blíðviðri tekst
þeim upp. þegar líður á sumarið og ungamir eru orðnir
fleygir láta fuglarnir varla til sín heyra.
Venjulega byrja fuglar að syngja um sólarupprás og
halda því áfram fram yfir hádegi. þá dregur úr söngnum
aftur, og um miðjan dag ber lítið á honum. þegar líður
að aftni og komið er undir sólarlag byrja þeir enn á ný,
og syngja þá fram eftir kvöldinu. Kvöldsöngurinn er þó
aldrei eins fjörugur, hljómmikill og skemtilegur eins og
morgunsöngurinn.
Flestir menn hljóta að hafa yndi af fuglasöng. það
er eins og holtin og móarnir fái mál, þegar hinar sundur-
Ieitu fuglaraddir hljóma þaðan.
Rödd fugla er gefið ýms nöfn eins og t. d. vell, krunk,
hlakk, kvak o. s. fx-v. eftir því, hvaða fuglategund á í
hlut. Hljóð margra fugla hafa verið stafsett. þau