Neisti - 01.09.1970, Blaðsíða 1
# ju /^yö
KREPPA í AB
Líklegt er, að einhverjar stöðubreytingar
verði innan Alþýðubandalagsins á næstunni.
Hægristefnan er í kreppu.......Lesið grein á bls. 6
MÁIGAGN FYLKINGARINNAR-BARÁTTUSAMTAKA SÓSÍALISTA
RETTARHOID
VEGNA þORLAKS
MESSUSLAGSINS
Réttarhöld munu hefjast á næstunni vegna
hins svonefnda Þorláksmessuslags, 1968.
Aðeins einn maður verður sóttur til saka, a. m.
k. í fyrstu atrennu, en það er Ragnar Stefánsson.
Ekki virðist hins vegar neinn verða sóttur til
saka í sambandi við bloðsúthellingarnar á Aust-
urvelli og við Tjarnarbúð tveimur dögum áður,
eða 21. des. 1968.
Hinn 19. janúar 1969 sendu milli 30 og 40
manns kæru til yfirsakadómara, vegna líkams-
árása , meiðsla og annarra óþæginda, sem þeir
höfðu orðið fyrir af hendi lögreglunnar, bæði
hinn 21. des. ""óS við Tjarnarbúð og á Austur-
velli, svo og á Þorláksmessu i Austurstræti
Það hefur nú komið í" ljós, að yfirsakadómari
lét ekki framkvæma neina rannsokn a grundvelli
þeirrar kæru .
Saksoknari ríkisins virðist hafa þurft mikinn
tima til að velta málinu fyrir sér, því" það var
ekki fyrr en í" apríl s. 1. , að hann sendi Saka-
dómi Reykjavfkur kröfu um málssókn á hendur
Ragnari Stefánssyni. Þeir sem kæra vegna
meiðsla, sem þeir höfðu orðið fyrir af hendi
lögreglunnar eru ekki virtir viðlits.
Sú saga, sem hér er rakin kemur okkur ekki
á óvart. Lögregla og dómsvald er augljóslega
í höndum versta afturhalds landsins, sem beit-
ir þessum stofnunum fyrir sig á hinn níðings-
legasta hátt. Það glittir viða í fasisma á fslandi.
-SV
jOv
vV)fc 21.DES 196».
^AUS^ .............
Fylkingin og Félag róttækra stúdenta héldu
þennan dag sameiginlegan fund í Tjarnarbííð
í tilefni alþjóðlegs Vietnamdags. Fundinn
sátu um 100 manns. Að fundinum loknum var
ætlunin að ganga með mótmælaorðsendingu
að bandaríska sendiráðinu og afhenda hana
þar. Var lögregluyfirvöldum tilkynnt um göng-
uleiðina, þótt ekki væri um að ræða serlega
mikinn fjölda. Lögreglan gat hins vegar ekki
unnt þessu folki að ganga vissar götur. Stóð
í stappi og þófi um þetta þar til fundurinn var
búinn og menn fóru að tínast út úr Tjarnarbúð.
Var fyrst reynt að króa fólk af, þannig að það
kæmist ekki frá húsinu. Þo smugu ýmsir á
milli, svo lögreglan sá ekki annan kost en
handtökur og barsmíðar. Nokkrir fóru út á
Austurvöll, en þar átti gangan að hefjast og
biðu þar hinna með fána . Þar gerði lögregl-
an aðra árás og bera sumir enn merki eftir
kylfuhöggin, sem þar voru veitt. Þetta var
einhver sú fruntalegasta og ástæðulausasta
lögregluárás, sem um gat þá.
*&
^°%
&SSU !968
^GTUN OG **........T-bRv^V
Tveimur dögum eftir þá atburði, sem að
ofan eru nefndir, héldu Fylkingin og Felag
róttækra stúdenta fund fSigtúni. Var markmið
fundarins og göngunnar, sem farin var á eftir
að leggja áherzlu á kröfur um skoðana og
tjáningarfrelsi. Frelsi til að fara hópgöng-
ur, frelsi til að útbreiða skoðanir sínar.
Þetta markmið göngunnar var að sjálfsögðu
tengt atburðunum tveimur dögum áður. #
Einnig var það markmið fundarins og göng-
unnar að styðja kröfur verkalýðsins um þær
mundir. Var lögreglunni tilkynnt urri fundinn
og gönguna. A síðustu stundu gerðu lögreglu-
yfirvöld athugasemd við gönguleiðina. Voru
forsvarsmenn göngunnar tilbúnir að semja
um þetta við lögregluna innan vissra takmarka
Vildi lögreglan hins vegar stytta mjög göngu-
leiðina og færa hana þannig til, að það hefði
veikt áhrif hennar mjög mikið. Gat lögregl-
an ekki fallizt á neinar málamiðlunartillögur
göngumanna. Hafði ekki náðst neitt samkomu-
lag um gönguleið, þegar gangan átti að hefjast
Stóð því ekki annað til en að fara þá göngu-
leið, sem upphaflega hafði verið tilkynnt lög-
reglunni. Fundarmenn í" Sigtúni og göngumenn
að loknum fundi voru 500-700. Þegar gangan
kom að gatnamótum Lækjargötu og Austur-
strætis.var þar fyrir mikill fjöldi lögreglu-
manna og hjálparmanna þeirra og hindruðu
göngumenn að ganga fyrir fram ákveðnu leið
Fór gangan þétt að lögreglunni, sem fljót-
lega hóf kylfubarsmíð , meiðingar og hand-
tökur. Var Ragnar Stefánsson m. a. handtek-
inn strax i upphafi. Siðar hélt hluti göngu
manna áfram hina fyrirfram ákveðnu leið og
var göngunni slitið á Lækjartorgi.
Reykiavi'kurgangan 5. janúar.
Strax eftir áramót, 5. janúar,
1969, efndu sömu aðilar til Reykja-
vikurgöngu undir sömu kröfum og
gangan á Þorláksmessu. Var göngu-
leið mjög löng, gengið um bæinn frá
Austurvelli, alla leið austur að Kri
Kringlumýrarbraut, og göngunni
slitið með útifundi við Miðbæjarskól-
ann. Hörkufrost var og norðanhvass-
viðri þennan dag. Þrátt fyrir mjög
slæmar aðstæður, tóku þátt í Reykja-
víkurgöngunni 5. janúar 1500 manns.
Verður þetta að teljast mjög mikil
þátttaka miðað við aðstæður, og
benti til þess, að málstaður Fylking-
arinnar og Félags róttækra nyti
mikils stuðnings. Það er líklegast
einmitt vegna þessa, sem málssókn
hefur dregizt þangað til nuna. Reiði
almennings í garð lögreglunnar var
mikil á þessum tíma, og hefur vafa-
laust verið talið öruggara að bíða
með málssóknina, þangað til al -•
menningi væri runnin reiðin.
HAN^ARNUÐ^^ *hj^Í\
Bæði 21. des. og á Þorláksmessu hlutu
fundarmenn talsverð meiðsl. Voru jafnvel
nokkur dæmi um það, að mönnum væri mis
þyrmt handjárnuðum inni f lögreglubilum
og inn á lögreglustöð.
hCsnæðissjóður
FYLKINGARINNAR
Póstgírónúmer 101
Greiðið í sjóðinn í"
næsta pósthúsi.
FYLKINGIN