Verklýðsblaðið - 03.01.1931, Page 1
l AN0S6ÓKASAFN
Jrt 128907
rk; AÞlbó
VERKLYÐSBIAÐIÐ
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ISLANDS (DEILD ÚR A. K.)
II. árg.
Reykjavík 3. janúar 1931
1. tbl.
Atvinmileysið
Atvinnulausir verkamenn krefjast atvinnu. Auðvaldið lætui- lögreglustjóra svara fyrir sig.
Lögreglustjóri svarar með því að siga lögreglunni á atvinnulausa verkamenn.
Fundur atvinnulausra verkamanna.
Fundui- var haldinn með atvinnulausum
verkamönnum 29. des. kl. 2 e, h. í Templara-
salnum við Bröttugötu. Á þeim fundi voru
mættir ca. 200 manns og skiluðu að þeim 180
skýrslum um atvinnu sína síðastliðið ár. Af
þessum 180 voru 119 fjölskyldumenn er höfðu
1—12 ómögum fyrir að sjá. Hafa þessir 119
menn tii samans 446 manns í heimili til að sjá
fyrir. Það eru því 506 manns er þurfa að lifa
á vinnu þessara 180 manna, sem létu skrá sig.
Það er óhætt að fullyrða, að þetta er ekki nema
örlítill hluti þeirra, sem nú ganga atvinnulaus-
ir, enda var fundurinn fremur illa boðaður.
Á fundi þessum kom það greinilega í ljós, að
neyðin er byrjuð að sverfa að hjá allmörgum
og með hverjum deginum sem líður eru það
fleiri og fleiri, sem eyða sínum síðasta eyri og
taka út á sitt síðasta lánstraust, sem er eins og
kunnugt er mjög takmarkað allra helzt á svona
timum.
Kröfugangan.
Þegar fundurinn hafði staðið í rúma klukku-
stund, skipuðu verkamennimir sér í fylkingu til
að hefja kröfugöngu. Hafði Félag ungra komm- j
daginn eftir. Meðan nefndin átti tal við bovgar-
stjóra hélt kröfungangan upp að Stjórnarráðs-
húsi og fór einn nefndarmanna þangað með
þeim og tók tvo með sér inn. Fengu þeir þegar
áheyrn hjá atv.m.ráðh., sem tók fremur vel 1
kröfur þeima, en áleit sig þó hafa litla vetrar-
vinnu nú, en lofaði að gera eitthvað ef unnt
væri. Bað hann nefndina að finna sig aftur
eftir nýjárið, Verður þá séð hvaða atvinnubæt-
ur ríkisstjórnin lætur af hendi rakna. Biðu
kröfugöngumennirnir úti á meðan undir rauð-
um fána og sungu jafnaðarmannasöngva. Var
svo haldið af stað þaðan og gengið um bæinn
og sungið. Var göngunni hætt við afgreiðslu
Verklýðsblaðsins og spjöldin borin þar inn og
geymd þar.
Viðtal við Guðm. Ásbjömsson.
Eftir hádegi 30. des. fór nefnd sú, er kosin
var á fundi atvinnulausra verkamanna, á fundi
forseta bæjarstjórnar Guðm. Ásbjömssonar og
| og beiddi hann þess, að atvinnubætur vrðu
teknar á dagskrá á aukafundi bæjarstjórnar er
þá átti að halda um kvöldið. Tók hann því mjög
fjarri, því fjárhagsáætlun bæjarins væri á dag-
skrá og myndi taka tímann mesta hluta nætnr.
Guðjón Benediktsson, Haukur
Björnsson og Þorst. Pétursson
teknír fastir. Búíst víð fleiri fangelsunum
Rétt þegar blaðið var að fara í pressuna
bárust oss þær fregnir, að búið væri að setja
þá Guðjón Benediktsson, Hauk Björnsson og
Þorstein Pétui’sson, í Hegningarhúsið.
Hvaða hafa þessir félagar til saka unnið?
Þeir hal'a borið fram kröfur atvinnulausra
verkmanna og talað fyrir þeim. Þessvegna
vora þeir teknir fastir til að ræna atvinnu-
lausa verkamenn forustunni.
Þegar verkamenn heimta brauð handa böm-
unum sínum er þeim svarað með fangelsunum.
Það er veri-a en steinar fyrir brauð.
Verkamenn! Komið allir á atvinnuleysingja-
fundinn í Bröttugötu kl. 2 í dag ogr svarið
Jiessum nýju ofbeldisverkum fasistanna!
únista útbúiö spjöld, þar sem voru áletraðar
kröfur atvinnulausva verkamanna. Fyrir fylk-*
ingunni gekk þriggja manna nefnd er kosin
var á fundinum til að bera fram kröfur verka-
manna fyrir borgarstjóra og ríkisstjóm. Blakti
rauður fáni með sovjetmerki í brjósti fvlking-
ar. Tóku allir verkamenn er á fundinum voru
þátt í kröfugöngunni og brátt bættust fleiri
við. Var numið staðar á móts við skrifstofu
borgarstjóra og gekk nefndin upp. Varð hún að
bíða stundarkorn eftir því að fá talað við borg-
arstjóra. Bar hann sig illa undan slæmum fjár-
hag bæjarins og taldi litlar líkur til nokkra
verulegra atvinnubóta og ekki vildi hann bein-
íínis lofa því, að atvinnubótamálið yrði tekið
fyrir á aukafundi bæjarstjómar, er halda átti
Nefndin sýndi honum fram á, að neyðin væri
farin að sverfa að hjá mörgum verkamönnum
og nauðsyn bæri til að bæta úr því atvinnuleysi,
sem nú ríkir hér. Svaraði G. Á. því einu til, að
dýrtíðin gæti ekki minnkað meðan verkakaup
væri eins hátt og það væri nú, húsaleigan væri
svona há vegna hérra vinnulauna, sýnir þetta
vel skilning íhaldsmanna á kreppunni og öðru
böli er auðvaldið veldur mannkyninu. Kvöddu
nefndarmenn G. Á. með þeirri fullyrðingu að
hitta hann aftur á bæjarstjómarfundi þá um
kvöldið.
Bæjarstjórnarfundurinn.
Bæjarstjómarfundur var settur kl. 4 ura
kvöldið og var tekin á dagskrá fjárhagsáætlun
Frh. á 4. síðu
Einar Olgeirsson
rekinn
frá Síldareinkasölunni
Síldareiukasalan iiettir af sér
grímunni
Þau tíðindi hafa nú gerst, sem lengi hafa
verið yfirvofandi: Einar Olgeirsson hefir verið
rekinn frá starfi sínu við Síldareinkasölu ís-
lands.
Síðan Einar varð framkvæmdarstjóri einka-
sölunnar hafa íhaldsmenn aldrei á lint á kröf-
um sínum um að Einari væri vikið frá starf-
inu. Svo að segja vikulega og stundum daglega
hafa íhaldsblöðin krafizt brottreksturs Einars
og íhaldsmennimir í stjóm einkasölunnar hafa
hvað eftir annað borið fram tillögur um að Ein-
ari væri sagt upp starfinu. En Framsóknar-
menn hafa ekki viljað fallast á það fyr en nú.
Engin furða þó íhaldsblöðin telji Jónas á bata-
vegi!
Hver ei- ástæðan fyrir brottrekstri Einars?
Síldareinkasalan er hringur síldarútgerðar-
manna, skipulagður og studdur af ríkisvaldi
auðvaldsins. Það er því „skylda“ starfsmanna
hennar, að gæta í öllum atriðum hagsmuna
þeirra, sem eiga einkasöluna og ráða yfir
henni, að gæta hagsmuna útgerðannanna. Nú
eru hagsmunir útgerðarmanna algerlega and-
stæðir hagsmunum sjómanna og verkafólks.
Það getur því ekki samrýmst að berjast fyrir
hagsmunum verkafólksins og að vera fram-
kvæmdarstjóri hrings, sem er fjandsamlegur
verkafólkinu.
Síðan Einar tók við starfi sínu við Einka-
söluna, hefir hann jafnan staðið á oddinum í
baráttu verkamanna og sjómanna fyrir bætt-
um kjörum. Og þessi barátta hefir borið
árangur. Mennimir, sem Einar átti að þjóna,
útgerðarmenn og atvinnurekendur, hafa hvað
eftir annað orðið að láta í minni pokann fyrir
samtökum verkalýðsins norðanlands, sem Einar
hefir verið lífið og sálin í. 1 annan stað hefir
Síldareintfasalan þrengt mjög kosti sjómanna
með venjulegri kaupkúgun, með takmörkunum
á saltsíldarframleiðslunni og með því að halda
fyrir þeim kaupi sínu. Einar hefir jafnan bar-
izt drengiega fyrir málstað sjómanna í öllum
þessum málum, gegn hagsmunum útgerðar-
manna. Hann hefir staðið fremstur í flokki í
kaupbaráttu sjómanna, hann hefir unnið af
alefli gegn öllum takmörkunum á saltsíldar-
framleiðslunni og löks greiddi hann þeim sjó-
mönnum, sem óskuðu þess, hlut þeirra beint
við afskráningu síðastliðið sumar. Með þessari
ráðstöfun gætti Einar skyldu sinnar við sjó-
menn og greiddi þeim réttmæta eign þeirra, en
með þessu brást hann líka „skyldu“ sinni við
utgerðannenn, sem er í því fólgin að halda
kaupinu fyrir sjómönnum. Fyrir þetta kærðu
útgerðarmenn Einar fyrir atvinnumálaráða-
neytinu.
Og fyrir alt það, sem hér hefir verið talið.