Verklýðsblaðið - 14.02.1931, Blaðsíða 1
VERKLYÐSBIAÐIÐ
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ISLANDS (DEILD ÚR A.K.)
II. árg. Reykjavík 14. febrúar 1931 7. tbl.
Island á að ganga í Þjóðabandalagið
Leynimakkið við „Framsókn“. Kratarnir svíkja verkalýðinn
, Það var ekki alls fyrir löngu, að Jónas og
kratarnir sátu á rökstólum um ýms stjómar-
frumvörp komandi þings. Var þar ráðgert um,
hversu að því skyldi farið að samrýma hags-
muni auðvaldsins og „baráttu verkalýðsins“.
Varð það, sem oftar niðurstaðan, að fyrra at-
riðið var kosið, en jafnframt stofnað til eins-
konar „Pílatusarþvottar“, sem hreinsi kratana
,af allri synd.
Stjómin flytur frumvai’p um, að Island biðj-
ist upptöku í þjóðabandaJagið. Nú þykir henni
og Bretum, sem nógu vel sé í pottinn búið til
að bera þetta fyrir þjóðina. Þjóðhátíðin í sum-
ar og fyrirlestrarnir í útvarpið hafa verið eins-
konar forspil að þessari athöfn. Nú skal at-
Kugað lítillega hvað Þjóðabandalagið er. Þjóð-
bandalagið er bandalag sigurvegaranna úr sein-
ustu heimsstyrjöld og til þess ætlað að verja
ránsfeng þeirra og gæta þess, að hann vaxi
þeim ekki yfir höfuð. Það á að verja aðstöðu
þessara sigurvegara og fjötra sem flestar
þjóðir inn í hagsmunanet þeirra. England og
Frakkland ráða þar lögum og lofum, því að öll
smáríkin í bandalaginu eru alháð þeim annað-
hvort í gegnum auðmagn og bankavald eða á
beinni hátt. Einmitt af þessum ástæðum hafa
Bandaríki Ameríku eigi viljað ganga inn í
bandalagið og komið því til leiðar að amerísk
ríki, er áður voru í því hafa gengið út. Þetta
atriði afhjúpar einna ljósast hagsmunastreit-
una og sýnir eðli bandalagsins. Loks er þessu
bandalagi ætlað það hlutverk að berja niður
Ráðstjómarríkin og allar uppreistir verkalýðs-
ins.
Hver verður svo afstaða Islands innan slíks
bandalags? Samkvæmt lögum bandalagsins er
hægt að nota það eins og þeim herrum þykir
henta í hernaði. Sérhvert ríki innan bandalags-
ins missir því algerlega hlutleysi sitt. Það er
skylt að slíta öll viðskiptasambönd við svokall-
aðan friðrofa. ísland gæti einnig orðið allheppi-
leg flotastöð milli Bandarikjanna og Englands
eða flugvélastöð í stríði milli Bandaríkjanna
Á nýafstöðnu þingi Verklýðssambands Norð-
urlands var eftirfarandi tillaga samþykkt í
einu hljóði:
„4. þing Verklýðssambands Norðurlands, sem
skipað er fulltrúum 1700 verkamanna og verka-
kvenna, lýsLr ánægju sinni yfir stofnun Komm-
únistaflokks Islands og óskar þess, að þeim
flokki takist að sameina innan sinna vjebanda
læsta forustulið verkalýðsins og leiða verka-
lýðinn og alla fátæka alþýðu til endanlegs sig-
urs yfir auðvaldsskipulaginu, eins og kommún-
istaflokk Ráðstjórnan-íkjanna svo glæsilega
hefir tekizt á síðustu árum“.
og Rússlands. Einnig yr*ðu fiskimið þess tekin
einskonar eignanámi af Bretum og verðið á öll-
um útflutningi skamtað að þeirra vilja. Inn-
gangan í bandalagið táknar það, að íslandi er
flækt enn betur inn í hagsmunastreitu auð-
valdsins og að verkalýðurinn er notaður sem
skákpeð til að drepa niður Ráðsstjórnarríkin
og allar frelsisvonir verkalýðsins.
Kratamir eiga að leika bróðurhlutverkið.
Þegar stjómin hefir lagt fram frumvarpið,
á einhvea* þingmaður sósíaldemókrata að standa
upp og gera fyrirspum um, hvort Island þurfi
að leggja til her eða taka þátt í viðskiptabanni.
Skal því svarað neitandi og lýsir þá þingmað-
urinn yfir samþykki sínu og annara krata. Þó
skal Erlingur Friðjónsson sitja hjá. Er það tal-
ið betur henta vegna þess, að verkalýðurinn
norðanlands hefir fylgzt betur með þessum
málum. Kynni vel svo að fara, að hann sæi það
við Erling í einhverju, ef hann væri opinber-
lega með þessu. Er þetta í fullu samræmi við
annað hræsnisstarf krata. Má segja, að flestir
þeir hafi erft hinn guðlega eiginleika að vera
tví- og þríeinir, sbr. Erling Friðjónsson, krati í
Reykjavík, en „stendur fullt eins nærri komm-
únistum norður á Akureyri" o. fl. o. fl. Má
segja að stuðningsleysið við núverandi stjórn
sé nú komið svart á hvítu. Bankastjóraembætti
Haraldar er ágætt vottorð um það. Fá þeir þar
að sýna sem fyr hversu vel þeim tekst að berj-
ast fyrir verkalýðinn og auðvaldið í einu. Inn-
gangan í Þjóðabandalagið er svívirðilegt hnefa-
högg framan í íslenzkan verkalýð og alheims-
samtök stéttarinnar. Kratarnir styðja þetta og
leika „Pílatusarhlutverkið". Þeir standa fast
með auðvaldinu, en gráta krókódílstárum
frammi fyrir verkalýðsstéttinni. Islenzkur
verkalýður verður að sameinast og mótmæla
einum rómi inngöngunni í Þjóðabandalagið. —
Hann verður að sameinast gegn auðvaldinu og
skósveinum þess.
Niður með Þjóðabandalagið!
Mótmæli gegn klofningsákvæðum kratanna.
Ennfremur samþykkti þingið eftirfarandi
tillögu:
„4. þing V. S. N. mótmælir harðlega þeim
lagaákvæðum Alþýðusanvbands Islands, sem
útiloka menn, sem tilheyra öðrum stjórnmála-
flokkum og þá fyrst og frenist kommúnista,
frá rjettindum í sambandinu og hvetur allan
verkalýð til að hefja öfluga bai*áttu fyrir þvi
að fá þessi sundrunarákvæði afnumin, þar sem
þau þverbrjóta allt lýðræði í sambandinu. Skor-
ai' þingið á félögin að virða þessi ákvæði að
vettugi og að mótmæla þeim harðlega“
4. þing Verklýðssam-
bands Norðurlands.
Merkasta þíng sambandsins
Dagana 19.—23. jan. var 4. þing Verklýðs-
sambands Norðurlands háð á Akureyri. Mættir
voru 38 fulltrúar frá 15 félögum í sambandinu.
Á 8íðasta þingi sambandsins voru í því 12
félög, með 1200 meðlimum alls, en nú eru fé-
lögin 17 og hafa samtals tæpl. 1700 meðlimi.
Sýnir þetta hversu mjög sambandið hefir eflst
á þessum árum, enda hefir sambandið og félög
þess, háð harðvítugri stéttabaráttu og unnið
stærri sigra en nokkru sinni áður,. brotið á bak
aftur kúgunarvígi, sem talin bafa verið illvinn-
andi, eins og Krossanesverksmiðjuna og hækk-
að kaupið svo, að á tímabili hefir kaupið sum-
staðar verið hærra en í Reykjavík.
Af 39 fulltrúum þingsins voru 31 kommúnisti
og 8 sósíaldemókratar. Kratarnir voru í svo
miklum minnihluta, að þeir stóðu gjörsamlega
ráðþrota og gátu ekki koipið fram neinu af
klofningsáformum sínum. Þó sýndi meirihlutinn
þeim meira eðallyndi en góðu hófi gegnir. Eins
og skýrt hefir verið frá í blaðinu, gerðu krat-
arnir á Siglufirði tilraun til að kljúfa jafnaðar-
mannafélagið þar og stofnuðu nýtt félag. í því
eru ýmsir, sem áður liafa verið opinherir and-
stæðingar verklýðshreyfingarinnar. Til þess að
gefa krötunum ekki hið minsta tilefni til hinn-
ar langþráðu sprengingar, tók meirihlutinn krata-
félag þetta inn S sambandið, og leyfði fulltrúum
þess setu með fullum réttindum á þinginu. Er
þetta ærið ólíkt framkomu kratanna á Alþýðu-
sambandsþinginu, er þeir ráku Jafnaðarmanna-
félagið í Eyjum úr sambandinu, vegna þess að
kommúnistar eru þar í meirihluta, en tóku í
þess stað útvegsmanna- og verkfallsbrjótafélag-
ið „Þórshamar“, þvert ofan í fyrirmæli sam-
bandslaganna.
Þegar kratarnir frá Siglufirði sáu að vonlaust
var að þeir fengju komið fram nokkru af klofn-
ingsfyrirætlunum sínum, fóru þeir heim, án þess
að taka þátt í störfum þingsins eða bera fram
nokkrar af tillögum þeim, sem þeir höfðu með
sér í veganesti frá félögunum heima. Sat þá
einn krati eftir á þinginu. Er þetta með end-
emum aumleg frammistaða.
4. þing V. S. N. skilaði af sér miklum og
merkilegum störfum og gerði mjög merkilegar
samþykktir í ýmsum málum.
Þingið samþykkti ályktun um nauðsyn óháðs
verklýðssambands á grundvelli stéttabaráttunn-
ar og ákvað að vinna að því að öll verkalýðs-
félög á landinu og minnihlutahópar, sem eru
fylgjandi verklýðssambandinu, myndi með sér
„Baráttubandalag verkalýðsinsu, til þess að
hrinda áleiðis sameiningu alls verkalýðs á land-
inu á grundvelli stéttabaráttunnar. Ennfremur
voru samþykt mótmæli gegn klofningstilraunum
kratanna á verklýðsfélögum. — Samþykkt krat-
anna á Alþýðusambandsþinginu, sem gekk út á
það, að kljúfa núverandi fjórðungssambönd og
koma sein mestum hluta þeirra undir algerða
stjórn Reykjavíkurkratanna, fékk þá útreið á
fjórðungsþinginu, að samþykkt var að skipulag
V. S. N. skuli haldast eins og verið hefir, en
hinsvegar skuli unnið að því að koma félögun-
um inn í Alþýðusambandið tii að „efla stétta-
Fulltrúar 1700 verkamanna og kvenna
fagna Kommúnistaflokki ísands