Verklýðsblaðið - 14.02.1931, Blaðsíða 4
Fjórðungsráðstefna
Kommúnistaflokksins á Norðurlandi
Að afloknu þingi V. S. N. var haldin á Akur-
eyri fj órðungsráðstefna Kommúnistaflokksins
á Norðurlandi. Dag'skrá ráðstefnunnar var
þannig:
1. Skýrslur um flokksstarfsemi deildanna.
2. Pólitíska ástandið og framtíðarstarfið.
3. Ástandið í verklýðsmálunum og deilurnar
í vor.
4. Samvinnumálin og starfsemin meðal bænda
og smáútvegsmanna.
5. Skipulagsmál og fjármál.
6. Útilokun kommúnista frá atvinnu.
öll þessi mál voru rædd mjög ítarlega í sam-
bandi við ályktanir stofnþings flokksins í
Reykjavík í haust. Starfslínur voru dregnar
upp fyrir starfið meðal bænda og smáútvegs-
manna. Ákveðið var að senda fulltrúa til ýmsra
staða til að gangast fyrir stofnun verklýðsfé-
laga og skipuleggja verklýðshreyfinguna. Við-
víkjandi útilokun kommúnista frá vinnu, var
samþykkt eftirfarandi tllaga:
„1. ráðstefna K. F. 1. á Norðurlandi skorar
á allan verkalýð, að svara útilokun róttækra
verklýðssinna frá atvinnu með verkfalli hjá við-
komandi atvinnurekenda. Ennfremur skorar
þingið á verkalýðinn að láta ekki skoðanamun
hafa áhrif á þessa sjálfsögðu ráðstöfun gegn
árásum auðvaldsins. Kjörorðið sé: Stétt gegn
stétt"
Ráðstefnan kaus 9 manna stjóm fyrir fjórð-
ungssamband flokksins á Norðurlandi. 5 þeirra
eiga sæti á Akureyri.
S. U. K.
Krónuveltan
Enn þá meiri hraða verðum við að setja í
krónuveltuna, félagar. Árangur síðustu viku
er allt of lítilL Sérstaklega er nauðsynlegt að
félagar út um land velti krónunum hraðar inn
í Baráttusjóð S. U. K.
I seinustu viku skoraði Hallgrímur Jakobs-
son, Rvík á Stefán ögmundsson Rvík og
Kjartan Gíslason Rvík.
Ásgeir Bld. Magnússon Rvík skorar á Stefán
Pétursson Húsavík og Helgu Guðmundsdóttur
Siglufirði.
Halldór Ólafsson ísafirð i skorar á Ragnar
G. Guðjónsson ísafirði og Ingibjörgu Steins-
dóttur Rvík.
Sigurður Halldórsson Rvík skorar á Jón
Grímsson Rvík og Gunnar Bjömsson Rvík.
Björn Carlsson Rvík skorar á Hallgrím Jak-
obssn Rvík og Sæmund Sigurðsson Rvík.
Halldór Þorsteinsson Rvík skorar á Helga
Guðlaugsson Rvík og Björgvin Þorsteinsson
Reykjavík.
Baráttustjóður S. U. K.
Á ísafirði hafa félagamir safnað vel í Bar-
áttusjóðinn. Nú þegar era komnar kr. 50.
Akureyrarfélagamir virðast heldur ekki
liggja á liði sínu, því að þeir hafa safnað kr.
40 og í Rvík komu kr. 10,28 inn á síðasta fundi
F. U. K.
Félagar. Við hvetjum ykkur til frekari söfn-
unar í Baráttusjóðinn.
Sovét-stjömumar
em komnar. Hver stjama kostar kr. 1, og
verða þær seldar í Bókaverzlun Alþýðu í
Reykjavík. Einstakar deildir S. U. K. geta
fengið stjörnumar eftir pöntun til stjómar
S. U. K.
„V erklýðsblaðið".
Ábyrgðarm.: Brynjólfur Bj&maaon. — Árg. 5 kr., 1
Jausasölu 15 aura eintakið. — Utanáskrift blaSsina:
Verklýðsblaðið, P. O. Box 761, Reykjavík.
Rektor háskólans í Kaup-
mannahöfn talar um
kommúnismann
„Þróunin í Ráðstjómarríkjunum sýnir að
jafnaðarstefnan er möguleg“.
Fyrir nokkra síðan hélt hinn kunni gáfu-
maður, prófessor Birck hagfræðingur, rektor
við háskólann í Kaupmannahöfn, ræðu um jafn-
aðarsteínuna. Þess er skylt að geta að Birck
hefir um langt skeið verið andstæðingur jafn-
aðarstefnunnar. En Birck er fyrst og fremst
vísindamaður og það er fjarri honum að láta
þjónslund við borgarastéttina blinda augu sín
fyrir staðreyndum. í ræðu þessari sagði Birck
meðal annafs:
„Þróun tækninnar er komin á það stig, að
framkvæmd jafnaðarstefnunnar er möguleg. I
auðvaldsþjóðfélaginu er framleiðslan meiri en
kaupgetan. Nú er um tvo kosti að ræða: Ann-
aðhvort fárra manna stjóm, sem lætur skjóta
á fjöldann og svelta hann í hel eða — jafn-
aðarstefnan. Þróunin I Ráðstjórnarrússlandi
sýnir, að jafnaðarstefnan er möguleg. I Rúss-
landi fer raunverulega fram stórkostlegt við-
reisnarstarf. En auðmennimir hafa rétt van-
ans yfir auðlindunum og þessum rjetti sleppa
Jæir ekki með góðu. Verkalýðurinn má ekki
leggja eyran við friðarskrafi sósíaldemókrata,
ekki láta afvopna sig, heldur halda vopnunum“.
„Núverandi tækni bendir á nýtt þjóðskipu-
lag. Auðvaldsskipulag nútímans er næst því að
vera mannætuskipulag og skapar einkennilega
yfirstétt, yfirstétt atvinnurekendanna. Af fús-
um vilja lætui- eignastéttin ekkert af hendi.
Sem stendur er afturhaldið sterkara í Evrópu
en byltingastefnan. Ástæðan er friðsemi verka-
lýðsins, sem lærði að fara með vopn og horfast
i augu við dauðann í stríðinu. Þessvegna geng-
ur borgarastéttin nú á lagið og ég er ekki viss
um að jafnaðarstefnan sé eins sterk og menn
halda. Ég held ekki að vandamálin verði leyst
með endurbótum innan hins borgaralega Iýð-
ræðis. Hefði einhver þingsamkunda átt að Ieysa
átthagabandið, myndu bændumir vera ánauð-
ugir enn í dag“.
Að endingu skoraði prófessor Birck á stúd-
enta þá, er dreymdi um kommúnismann, að
láta ekki sitja við draumana, heldur taka ötul-
lega til starfa fyrir framkvæmd hans. „Og sú
vinna krefðist mikillar fómfýsi“.
Höfuðmálgagn danskra krata, „Sósialdemó-
kraten“, rjeðst mjög á Birck fyrir ræðu þessa.
Taldi blaðið meira af jafnaðarstefnu í Dan-
mörku enn í Rússlandi(! !> Fer þá skörin að
færast upp í bekkinn, þegar farið er að kalla
danskt auðvaldsskipulag, arðrán, vinnuþjökun,
atvinnuleysi og neyð jafnaðarstefnu! En þegar
hið volduga ríki kommunismans rís hærra og
hærra, skapað af höndum öreiganna í verk-
lýðsríkinu, stinga þessir herrar höfðinu í sand-
inn. Ætti þetta að sýna hversu fráleitt það er
þegar sagt er, að kommunistar og sósíal-
demókratar stefni að sama marki. Sósíaldemó-
kratar óttast framkvæmd jafnaðarstefn-
unnar.
Mannaskiftl
Ritstjóraskifti hafa orðið við Alþ.bl. Er
Ólafur Friðriksson orðinn ritstjóri þess, en
Haraldur Guðmundsson er orðinn bankastjóri
við útbú Útvegsbankans á Seyðisfirði.
Hver skyldi taka við ritstjóm Alþýðublaðs-
ins, þegar Ólafur er orðinn bankastjóri?
Munið að Verklýðsblaðið
er í fjárþröng.
Safnið ný|um áskrifendum.
Safnið í pappírssjóðinn.
Héðinn Valdimarsson framkvæmdarstjóri og
formaður „Dagsbrúnar", er nýkominn frá
Vestmannaeyjum. Á mánudagskvöldið í vik-
unni, sem leið mætti hann og félagar hans úr
Þórshamri á fundi í Verkamannafélaginu
„Drífandi“. Á fundi þessum voru um 300
manns. Á fundinum var Héðinn harðlega vítt-
ur fyrir framkomu hans og Verkamálaráðsins
í Gullfoss-verkbanninu.
Verkamannafélagið hefir þrásinnis lýst því
yfir, að það tæki verkamönnum, hverrar póli-
tiskrai- skoðunar sem væra, opnum örmum. Fé-
lagið hefir gert allt til þess að hvetja þá menn
í „Þórshamri“, sem ekki eru atvinnurekendur,
til að ganga í „Drífanda". Nú flutti Héðinn þá
kröfu, fyrir hönd félaga sinna í „Þórshamri",
að öllum „Þórshamarsmönnum", einnig þeim,
sem era stórútgerðarmenn og verkfallsbrjótar,
yrði veitt viðtaka. Þessu svaraði félagið með
eftirfarandi tillögu, sem var samþykkt með
öllum atkvæðum:
„Verkamannafélagið „Drífandi“ lýsir sig
hreint stéttarfélag verkamanna. Vill benda
mönnum úr öðram stéttum, sem hafa samúð
með verkamönnum, á jafnaðarmannafélögin,
sem vettvang, J>ar sem starf þeirra í þágu
verkalýðsins geti notið sín“.
í Reykjavík vill Héðinn neita verkamönnum
um upptöku í „Dagsbrún“. Það var hann sem
knúði það í gegn, að þeim Hauk Björnssyni og
Sigurði Halldórssyni var neiitað um upptöku í
„Dagsbrún“, með örfárra atkvæða meirihluta á
fámennum fundi, af því þeir era kommúnistar.
Sjálfur er Héðinn einn af stærstu atvinnurek-
endum landsins og fleiri stóratvinnurekendur,
góðvinir Héðins, eru í Dagsbrún. í Vestmanna-
eyjum krefst Héðinn þess, að stórútvegsmenn
og verkfallsbrjótar séu teknir í verkamannafé-
lagið.
Hvort mælir Héðinn í umboði auðvaldsins
eða verkalýðsins? Þessar staðreyndir taka svo
greinilega af skarið, að enginn verkamaður,
sem hefir augun opin, getur svarað nema á
eínn veg. , ,
ITerkamannabréf
frá SandLg’erði
2. febr. 1931.
„Héðan ganga 25—80 bátar og era á þeim
10—11 menn og helmingaskipti. Fiskirí frem-
ur tregt. Loftur Loftsson kaupir fiskinn upp
úr sjónum með haus og hala af 7 bátum á 10
aura kílóið af þoi’ski en 6—7 aura af öðrum
fiski*). Kauptaxti er hér sá sami og í fyrra, kr.
1.00 í dagvinnu og kr. 1.40 í eftir- og nætur-
vinnu, en kr. 2.00 í helgidagavinnu, en svo era
ýmsir taxtar á mánaðarkaupinu. Sumir eru
ráðnir upp á 600 kr. vfir veturinn til 11. maí,
sumir fyrir 200 kr. um mánuðinn og frítt fæði,
og eftirvinna innifalin og svona fram eftir göt-
unum. 16 íhaldssinnaðir afturhaldsseggir gengu
úr verkamannafélaginu um áramótin og hafa
manna helzt vinnu, þó í samningum standi, að
félagsmenn gangi fyrir vinnu. Hér er íhaldið
yfirléitt í blóma sínum, á lóðirnar og kofana,
sem fólkið býr í og í hreppsnefnd sitja 5 í-
haldsmenn“.
Nokkrar smellnar alþýðuvísur um Ólaf
Thors, sem bréfritari skrifar Verklýðsblaðinu,
sýna, að verkamönnum þar syðra þykir lítill
sómi að slíkum fulltrúa fyrir kjördæmi, þar
sem yfirgnæfandi meirihluti kjósenda eru
verkamenn og smábændur.
PrentsmiOjau Acta.
*) Hér selur Loftur ýsuna á 20 aura kílóið.