Verklýðsblaðið

Útgáva

Verklýðsblaðið - 14.03.1931, Síða 4

Verklýðsblaðið - 14.03.1931, Síða 4
Jafnaðarmannafélagid „SPABTA“ IFnndnr verður haldinn í kvöld (laugardaginn 14. mars) klukkan 8 e. h. í Kaupþingsalnum Dagskrá: 1. Fyrirlestur um galdraofsóknir gegn alþýðu á 17. öld. 2. Togarastöðvunin og atvinnuleysið. 3. Þingmál Allir verkamenn velkomnir! Stjórnin TogarastööYnnin og atYinnnleJsiö mönnunum ef vélabilanir yrðu um lengri eða skemmri tíma. Út af þessu urðu nokkrar snarp- ar umræður á milli stjórnarinnar annarsvegar og róttækra verkamanna hinsvegar. Var svo gengið til atkvæða og var tillaga stjómarinnar felld með jöfnum atkvæðum 34 á móti 34. En formaðurinn, Erlingur Friðjónsson, varð >á ekki ráðalaus, hann hafði nefnilega grun um það, að einhverjir hefðu farið út af fundi, sem hefðu greitt atkvæði á móti tillögunni. Þess- vegna heimtaði hann atkvæðagreiðslu í annað sinn og fékk þá tillöguna samþykkta með tveggja atkvæða meirihluta. Síðast á fundinum var svo borin fram tillaga, þar sem fundurinn krafðist þess, að stjómin augiýsti framvegis fundi félagsins í Verka- manninum. Þessa tillögu neitaði formaður að bera undir atkvæði og neitaði umræðum um hana að undanteknum Ilalldóri Friðjónssyni, sem stóð upp og lét mjög dólgslega og jós úr sér svívirðilegum skömmum yfir blaðið Verka- manninn. Sleit svo formaður fundinum, þrátt fyrir mótmæli félagsmanna. Vora foringjar kratanna þá orðnir svo æstir, að þeir slógu tinefanum niður í borðin og veltu um blekbytt- um og öðru sem fyrir varð. íslenzkir verkamenn! Þið munið eftir því, að 1 vetur sendi Verkamálaráð Alþýðusambands- ins út áskorun til allra verkalýðsfélaga þar sem það var brýnt fyrir félögunum, að kaupgjald mætti hvergi lækka og menn yrðu að standa saman um það, sem einn maður. En hvað hefir Erlingur Friðjónsson gert nú, sá maður, sem er útvörður Alþýðusambandsins hér á Norður- og á að starfa í fvllsta samræmi við það. Hann hefir unnið að því að kaupið við tunnuverk- emiðjuna yrði 40 aurum fyrir neðan settan kauptaxta Verkamannafélags Akureyrar og um leið lagt grundvöllinn undir kauplækkun á þessu iri. Og það er áreiðanlega ekki Erlingi Frið- jónssyni eða hans nótum að þakka, ef að verka- lýðnum tekst það að halda velli í kaupgjalds- málunum, þrátt fyrir ótrúleik þeirra manna, gem troðið hafa sér í trúnaðarstöður verkalýðs- ins. Eða er þetta spegilmynd af Alþýðusam- bandsstjóminni, er þetta fyrsta sporið, sem verið er að stíga til þess að kaupgjald verka- lýðsins lækki ekki? (!) Svo framarlega sem að Alþýðusambandsstjómin vill sjá sóma sinn, þá híýtur hún að víta harðlega aðra eins fram- komu og Erlings Friðjónssonar í þessu um- rædda máli. Við bíðum og sjáum hvað setur. Verkamenn! Standið á verði, og umfram allt verið nógu fljótir að sparka þeim foringjum, gem ætla að svíkja ykkur og láta atvinnurek- endur arðræna ykkur ennþá meir en áður, svo* jþið fallið dýpra niður í örbyrgðina. Eftir verk- imum skulu þeir dæmdir verða. Akureyri 12. febr. 1931. Jóhann Kúld. Verklýðsbiaðið berst fyrir tilveru sinni Verkalýðurixm, sem heldur uppi Verklýðs- blaðinu hefir orðið fyrir þungum búsifjum af atvinnuleysinu. Margir skilvísir menn sjá eng- in ráð til að greiða áskriftargjöldin eins og sakir standa. Það er þessvegna afskaplegum fjárhagslegum örðugleikum bundið að láta Verklýðsblaðið koma út áfram. En Verklýðsblaðið verður að halda áfram að koma út. Og það getur því aðeins orðið, að allir, sem vilja að það lifi áfram, leggist á eitt. Hjá Bókaverzlun Alþýðu liggja nú söfnunar- listar fyrir pappírssjóðinn. Fáið ykkur Iista og safnið í pappírssjóðinn. Greiðið skílvíslega öll gjöld. Látið skrá ykkur sem styrktarfélaga. Aðstoðið við innheimtu. „V erklýðsblaðið4'. Ábyrgðarm.: Brynjólfur Bjamason. — Árg. 5 kr., i Jausasölu 15 aura eintakið. — Utanáskrift blaðsins: Verklýðsblaðið, P. O. Box 761, Reykjavík. Prentsiniðjan Acta. "Viixixa-ix á eyriimi Frá því í október í haust höfum við geng- ið niður á „Eyri“ og oftast komið jafnnær heim að kvöldi. Fleiri hundruð verkamenn hafa leit- að þangað daglega árangurslaust. Aldrei svo eg muni eftir hefir verið eins brennt fyrir það að fá nokkurt handtak. Einstaka kolaskip með mjög löngu millibili og áætlunarskipin hálftóm. Þetta hefir verið það, sem um hefir verið að ræða. Á þessu hefir þessi stóri hópur átt að lifa. Árstekjur margra þessara maxma hafa ekki farið fram úr 15—1600 krónum. Sumir hafa haft nálægt 20—2200 krónum. Þessir menn hafa haft 4, 5, 6, 8 og jafnvel þaðan af fleiri fyrir að sjá. Á hverju hafa þessir menn lifað? Hvemig hafa þessir menn farið að því að fæða og klæða sína fjölskyldu og greiða hina háu húsaleigu? Hafa valdhafar þessa bæjar setið til borðs með þessum mönnum og séð mat- föng þeirra? Hafa þeir kynnt sér húsakynni þeirra og húsaleigu? Hafa þeir kynnt sér fatn- að þeirra og bama þeirra? Vita þeir, að sökum klæðleysis hafa bömin orðið að liggja í rúminu til skiftis? — Ég þarf ekki að spyrja að þessu. Þeir hafa ekkert af þessu gert. Þeir láta sig litlu skipta hvemig ástæður okkar þrælanna eru. Þeir hugsa meira um að laða okkur í kirkju og K. F. U .M. og bömin okkar. En vita skuluð þið það, háu herrar, að slíkar kjaftaromsur eru léttar í magann. Bömin okkar hafa sagt þegar þau hafa komið heim aftur: „Mamma, eg er svangur, mamma, eg er svöng, gefðu mér bita“. Börnunum okkar hefir reynst það heldur létt fóður sem þið hafið boðið þeim upp á. Þið hafið ekki mettað neinar 5 þúsundir manna, en þið hafið þótzt vera að flytja okkur guðsorð, en við álítum ekki neitt guðsorð, sem út af ykkur gengur, faríseamir ykkar. Þið hafið haft fé til að halda uppi „kristileg- um“ samkomum á hverju kvöldi, fé til að reisa stórar og skrautlegar kyrkjur og önnur slík samkomuhús og ætlið að fara að reisa eitt slíkt stórt og veglegt guði til lofs og dýrðar, en þið hafið ekki haft peninga til að seðja með hungur okkar né barnanna okkar. Hungurstunur okkar hafa ekki skafið innan á ykkur eyrun. En vita skuluð þið það, að einhvemtíma skuluð þið fá að heyra þær og vei ykkur þá, sem daufheyrist núna. Hin háttvirta landsstjóm hefir verið svo ein- staklega hugulsöm, eftir að vera búin að gera sitt til að svelta okkur í allan vetur, að fara nú að gera varðskipið „Þór“ út til fiskveiða og selja okkur „ódýran“ fisk. Þetta var mjög fall- ega gert, einmitt núna fynr kosningarnar. En vildi hinn elskuverðugi Jónas, — sem er allt í öllu og ekki fellur einn „bitlingur til jarðar án hans vilja“ og vakir yfir okkar velferð(!) eins og hverjum góðum hirði ber að gera yfir hjörð sinni — vildi hann ekki láta okkur hafa nokkra aura til að geta orðið hins ódýra fiskjar að- njótandi, því okkur er ekki nóg að sjá hann koma upp á bryggjuna, okkur vantar aurana til að kaupa hann fyrir. Þessi Jónasarútgerð er náttúrlega mjög góð fyrir Knút -borgarstjóra, Jón Baldvinsson, Héðinn Valdimarsson og fl. peningamenn, en hún nær skammt til okkar sem enga peninga höfum. Atvl. verkam. Fhh. af 1. síðu. göngum um götur borganna í mótmælaskyni gegn atvinnnuleysinu. í Kaupmannahöfn tóku 10.000 verkamenn þátt í kröfugöngunni, eftir því sem blöð herma. Hér á landi varð sam- göngubannið því til trafala, að íslenzkur verka- lýður tæki þátt í þessari alþjóðlegu baráttu. Á Akureyri var haldinn mótmælafundur, en hér í Keykjavík gat ekki orðið úr neinni samkomu vegna samkomubannsins. Enn gerir bæjarstjóm og ríkisstjórn ekkert til að bæta úr atvinnuleysinu. Fjárskorti er borið við, þó vitanlegt sé að bæði bæjarstjórn og ríkisstjóm hafa nægilegt að reiðu fé, ef þær væru þeirrar skoðunar að líf verkamannanna ætti að ganga fyrir öðra. 43 þúsundir til Þjóða- bandalagsins þykja ekki umtalsins verðar. (Raunar má búast við að kostnaðurinn vegna Þjóðabandalagsins verði minnsta kosti helmingi meiri). Hvað munar um svoleiðis smáræðis styrk til stórveldanna! En til atvinnubóta eða atvinnuleysisstyrks handa íslenzkum verka- mönnum, sem búa við sárustu neyð, er ekki til einn einasti eyrir. Nefnd atvinnulausra manna, sem stóð fyrir undirbúningnum undir 25. febr. boðar til mót- mælafundar gegn atvinnuleysinu og togara- stöðvuninni á morgun (sunnudag) kl. 5 í K.R.- húsinu (Bárunni). Kröfur alls verkalýðsins eru nú: Út með togarana! Atvinnu handa hverjum einasta verkamanni! Borgarstjóra, atvinnumáláráðherra, banka- stjórum Útvegsbankans og stjóm Félags ís- Ienzkra botnvörpuskipaeigenda er boðið á fund- inn. Átvínnuleysið er sameiginlegt böl alls verka- lýðsins. Þessvegna verða allir verkamenn, hvort heldur þeir eru atvinnulausir eða ekki, að koma á fundinn annað kvöld. Nauðsynlegt er að allar verkamannafjölskyldumar komi á fund- inn, eftir því, sem ástæður frekast leyfa. Konumar má ekki vanta. Látum valdhafana sjá að allur verkalýðurinu stendur einhuga, sameinaður um kröfumar. AUir á fundinn á morgun. Stjóm S.U.K. hefir nú tekið upp samskonar skipulagningu og stjómir annara S.U.K og A.U.K., þannig, að henni er nú skift niður í nefndir: Pólitíska nefnd, faglega nefnd, skipulegsnefnd og út- breiðslu- og fræðslunefnd. Þessi skifting hefir allsstaðar reynst hin árangursmesta og er hins sama vænst af stjóm S.U.K. SO V JET-ST JÖRNUR eru til sölu í Bókaverzlun Alþýðu, Læltjargötu 4, Reykjavík Faglegu nefnd S.U.K. hefir verið falið að skipuleggja leik- hópana í deildum sambandsins. Einnig að koma á fót bréfaskriftum milli F.U.K. félaga á hinum ýmsu stöðum.

x

Verklýðsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.