Verklýðsblaðið - 26.05.1931, Page 1
VERKLYÐSBIAÐIÐ
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ISLANDS (DEILD ÚR A.K.)
II. árg. Reykjavík 26. maí 1931 24. tbl.
Hiati KomiinlstaMxs M Hl Mrii iltíli
Verkamenn og vinnandi alþýða til sjávar og
sveita!
Kosningar þær, er nú fara í hönd, marka að
mörgu leyti tímamót í sögu íslenzkrar stétta-
baráttu. Til kosninga þessara gengur í fyrsta
skipti sá flokkur, sem sagt hefir öllum flokk-
um borgarastéttarinnar st-ríð á hendur, og
varaliði hennar, sósíaldemókrötum, meðtöldum.
í annan stað verða þessar kosningar til upp úr
hinu mesta pólitíska róti er menn vita dæmi til
á íslandi síðan sjálfs-tæðisbaráttunni lauk.
Viðburðir þeir, er gerzt hafa hinar síðustu
vikur, sýna glögglega, að atvinnugrundvöllur
borgarastéttarinnar riðar undir fótum hennar.
Heimskreppa auðvaldsins hefir skellt hramm-
irium yfir ísland og atvinnulegt og pólitískt
skipulag borgarastéttarinnar engist sundur
og saman í klóm kreppunnar. Hin kynlegustu
fyrirbrigði hafa orðið í herbúðum borgaranna.
líin pólitíska sveitasæla „Framsóknar“ og
sósíaldemókrata er rokin út í veður og vind og
um leið veltust tveir ráðherrar úr sætum sín-
um. „Sjálfstæðisflokkurinn“ svonefndi, sem
hefir flaðrað við danska valdið við hvert tæki-
færi, er orðinn „lýðveldissinnaður“ og ókon-
unghollur, þótt hann hafi skriðið fyrir kóngi
við hvierja konungskomu. Borgaraflokkarnir
þrír keppast hver um annan þveran að leika
loddaralistir sínar frammi fyrir almenningi. En
á bak við skrípaleik auðvaldsflokkanna skín á
alvöru auðvalds-veruleikans. Það er sá veru-
leiki sem hver einn einasti verkamaður til
lands og sjávar finnur á sínum eigin skrokk:
vaxandi atvinnuleysi, engar atvinnubætur,
engin opinber vinna, stopull síldarútvegur,
lækkað kaup — steinar fyrir brauð! Allt hið
pólitíska moldviðri sem borgaraflokkarnir hafa
þyrlað upp seinustu vikur er aðeins til þess að
leyna þessum veruleika! Öll öskur þeirra eru
aðeins til þess að yfirstíga hróp þeirra stað-
reynda, að auðvaldið íslenzka getur ekki leng-
ur fullnægt óbrotnustu þörfum hins vinnandi
lýðs!
Kommúnistaflokkur íslands varar alla verka-
menn við að láta glepjast af blekkingum borg-
araflokkanna og sósíaldemókrata. Berið loforð
þeirra saman við gerðir þeirra á þeim árum
sem þeir hafa verið við völd, berið saman. orð
þeirra og athafnir!
Verkalýður Islands er þess enn minnugur,
er hinn illræmdi Ihaldsflokkur fór með völd,
þegar tollum og óbeinum sköttum var velt
yfir á herðar hinnar vinnandi alþýðu — svo að
hún fékk vart risið undir þeim. Ofan á allt
ætlaði sami floltkur að koma upp hvítum her,
ríkislögreglunni, til þess að geta bælt niður
verkalýðinn, ef hann risi upp gegn launapóli-
tík og skattastefnu auðvaldsins íslenzka.
Fjögur ár eru síðan að íhaldsflokknum var
velt úr völdum. I fjögur ár hefir „Framsóknar-
flokkur hins íslenzka auðvalds haldið um
stjómartaumana og reitt þingflokk alþýðunn-
ar fyrir aftan sig. íslenzkur verkalýður hefir
fjögra ára reynslu að baki sér um það, hvemig
fer málum hans og baráttu, er hans eigin
þingflokkur gengur í bandalag við stjómmála-
flokk borgarastéttar og stórbænda. öll fögru
loforðin, sem gefin voru við kosningarnar 1927,
hvar era þau? Var ekki lofað niðurfærslu ó-
beinna skatta og tolla? Jú, vissulega var það
gert! En hverjar urðu efndimar? Óbeinir
skattar og tollar voru hækkaðir, hinir göimlu
tekjustofnar íhaldsins vora framlengdir og
allt var þetta gert með atkvæðum og' stuðningi
þingmanna Alþýðuflokksins! Hvað hafði verka-
lýðurinn upp úr kaupunum?Ánægjuna af að sjá
tvo alþýðuflokksfulltrúa setjast í bankastjóra-
sæti auðvaldsins, þriðja alþýðuforingjann
verða bankaráðsmann og aðra minni spámenn
flokksins fá það bein er þeim hæfði. Þetta er
árangurinn af fjögra ára „umbótastarfsemi"
Alþýðuflokksþingmannanna, þannig var málum
verkalýðsins komið, þegar Alþýðufl. „sleit“
sambandinu við „Framsókn", til þess að geta
að minnsta kosti í orði kveðnu komið fram
sem sjálfstæður flokkur við þessar kosningar.
En ekki er Alþýðuflokkurinn fyr búinn að
slíta hinni hneykslanlegu sambúð sinni við
„Framsókn“, en hann býður Sjálfstæðisflokkn-
um blíðu sína, þó með því að ganga í borgara-
legt hjónaband við hann, þ. e. mynda stjórn
með honum. Svo djúpt hefir vai'la nokkur sósí-
aldemókratískur flokkur sokkið, og er þá mikið
sagt.
Þannig líta staðreyndimar út í stjórnmálalífi
íslands þessa stundina. Það era lærdómsríkar
staðreyndir, og allur verkalýður landsins verð-
ur að draga af þeim þær ályktanir, sem eru í
samræmi við stéttarhagsmuni hans.
Hinn ungi íslenzki kommúnistaflokkur á sér
enn ekki langa æfi, en þótt stutt sé frá stofn-
un hans, þá hefir hann þó á öllum stöðum
landsins, þar sem hann hefir náð til, gengið í
fylkingarbrjósti í baráttunni fyrir kröfum
verkalýðsins. Hann er eini flokkurinn í land-
inu, sem hefir barizt gegn fasisma „Framsókn-
ar“stjórnarinnar, hann er fyrsti flokkurinn, er
hefir bent á yfirstandandi kreppu og e i n i
flokkurinn, sem hefir kvatt verkalýðinn til
virkilegrar baráttu -gegn árásum auðvaldsins,
er sprottið hafa upp af kreppunni. Kommún-
istaflokkur Islands er einn allra flokka, sem
hefir ekki andstæða hagsmuni við heildarhags-
muni hins vinnandi lýðs í landinu. Þess vegna
er hann hinn eini flokkur, er getur leitt frelsis-
baráttu verkalýðsins íslenzka til fullra lykta.
Verkamenn, verkakonur og annað alþýðu-
fólk! Þið standið á krossgöitum í stéttabaráttu
ykkar! Önnur leiðin liggur með sósíaldemó-
krötum og öðrum borgurum til uppgjafar og
ósigurs hinnar íslenzku verklýðshreyfingar. Ef
þið farið þá leið, þá mun auðvaldið og leppar
þess ná forustu i hreyfingu ykkar og frelsis-
baráttu og þá eruð þið ofurseld ykkar verstu
féndum.
Hin leiðin liggur með Kommúnistaflokk Is-
lands, hinum eina sanna baráttuflokki verka-
lýðsins. Ef þið farið þá leið, munuð þið ná
marki ykkar og þið munuð geta leyst ykkar
sögulega hluthverk af hendi, að koma upp al-
ræði öreiganna og skapa stéttalaust þjóðfélag
kommúnismans. Eins og þið sjáið, þá er aðeins
um tvennt að velja — þriðja er ekki til
Verkamenn, verkakonur og annað alþýðu-
fólk! Ef þið viljið þola það lengur að greiða
úr ykkar vösum 90% af öllum tekjum ríkis-
sjóðs, 15 miljónir á ári í bankatöp, — þá kjósið
þið sósíaldemókrata eða borgaraflokkana. Ef
þið berið með þögn og þolinmæði kaupkúgun
ríkissjóðs, sem borgar ykkur 60—90 aura um
tímann, ef þið viljið fá ríkislögreglu til þess
að berja á ykkur í verkföllum, ef þið sækist eft-
ir að fá vinnudóm til þess að skamta ykkur
kaup, — þá kjósið þið auðvitað borgaraflokk-
ana og sósíaldemókrata. Ef þið viljið að allar
opinberar framkvæmdir verði stöðvaðar, að
togurunum verði lagt upp, að síldarverksmiðj-
unum verði lokað, að verkalýðurinn verði svelt-
ur, — þá kjósið þið náttúrlega borgaraflokk-
ana og leppa þeirra. Ef þið viljið, að ungir
námsmenn úr verkalýðsstétt verði reknir úr
skólum fyrir þá sök eina, að þeir eru trúir sinni
stétt og berjast með henni, að sjúklingum sé
vikið af heilsuhælum fyrir pólitískar skoðanir
sínar, að Island verði flekað inn í Þjóðabanda-
lagið og verði meðábyrgt hinni glæpsamiegu
starfsemi þess gagnvart Ráðstjórnar-Rúss-
landi, — þá skipið þið ykkur undir merki auð-
valdsflokkanna og sósíaldemókrata. Ef þið vilj-
ið að Alþýðuflokkurinn verði teygður lengra
á þeirri braut sem hann hefir verið á undanfar-
in ár, að hinn pólitíski flokkur ykkar selji sig
áfram þeim borgaraflokknum, sem bezt býður
og bezt borgar, þá kjósið sósíaldemókrata! '
En ef þið viljið ekkert af þessum hlutum, ef
þið viljið að öllum tollum og óbeinum sköttum
verði létt af hinni vinnandi alþýðu og velt yfir
á auðmennna sjálfa, að framleiðslutækin verði
rekin áfram, að atvinnuleysingjum og öðrum,
sem með þurfa sé veittur lífvænJegur styrkur,
án þess að það valdi nokkrum réttindamissi, að
auðmennirnir beri sjálfir töpin af bönkunum,
— þá kjósið þið Kommúnistaflokk Islands
og engan annan. Ef þið viljið að vinnudagur-
inn verði styttur með lögum, að kosningarétt-
urinn verði aukinn að miklum mun, að verka-
mannabústaðir verði byggðir í stórum stíl, að
skólagjöld verði afnumin,að öryggi verkamanna
og sjómanna verði tryggt, að verkalýðurinn
njóti ávaxta vinnu sinnar og að arðrán auð-
valdsins hverfi, þá kjósið þið Kommúnista-
flokk íslands. Ef þið viljið stéttabaráttu í þing-
inu, en ekki stéttafrið, baráttu fyrir hagsmun-
um verltalýðsins, en ekki pólitísk hrossakaup,
— þá kjósið þið Kommúnistaflokk íslands!
Nú eigið þið að velja og hafna! Þið þekkið
starfsemi hinna sósíaldemókratisku brodda,
makk þeirra og bandalag við borgaraflokkana,
þið þekkið lydduskap Alþýðublaðsins og annara
sósíldemókratiskra blaða, sem hundsa hags-
muni ykkar og kröfur, þið vitið hvemig þeir
haga sér gagnvart róttækum verkamönnum er
þeir reka þá úr verkalýðsfélögunum, þið vitið
einnig að þeir hika ekki við að kljúfa verka-
lýðshreyfinguna, ef þeir eru hræddir um völd
sín.
En þið þekkið einnig starfsemi Kommúnista-
flokkksins. Þið vitið að hann hefir eixm barizt
gegn hinni fasistisku kúgun „Framsóknar" og
meðsektarmanna hennar, sósíaldemókrata. Blöð
kommúnista hafa verið hrein stéttarmálgögn