Verklýðsblaðið

Útgáva

Verklýðsblaðið - 18.07.1931, Síða 1

Verklýðsblaðið - 18.07.1931, Síða 1
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ISLANDS (DEILD II. ápg. Reykjavík 18. júlí 1931 34. tbl. Verblýðsfnndnr Atvinnuleysiö rætt og teknar ákvarðanir F'irnmtudaginn 16. þ. m. hélt Reykjavíkur- deild K. F. 1. almennan verkalýðsfund í K. R. húsinu út af atvinnuleysinu. Fundinn sóttu um 400 manns, mest allt verkamenn, og voru þess glögg merki að verkamenn eru að vakna til skilnings á eðli yfirstandandi atvinnuleysis, vexti þess og þeim voða, er verkalýðurinn er ofurseldur, ef hann tekur ekki sjálfur í taum- ana til þess að tryggja sér brýnustu lífsþarfir. Fundarstjóri var Otto Þorláksson og fundar- ritari Gísli Indriðason. Málshefjandi var Guðjón Benediktsson og auk hans töluðu: Þorsteinn Pétursson, Einar Olgeirsson, Hannes Guðmundsson, Gísli Ind- riðason og Erlendur Vilhjálmsson. Að loknum umræðum voru eftirfarandi kröfur samþykktar í einu hljóði: Almennur verklýðsfundur í Reykjavík sam- þykkir eftirfarandi kröfur út af atvinnuleys- inu: I. Greiðsla nú þegar á styrk úr ríkissjóði til allra atvinnulausra verkamanna og verka- kvenna í landinu, er nemi minnst 100 krónum til einhleypra og 200 krónum til fjölskyldu- fólks og sé þetta ekki talinn fátækrastyrkur. II. Jafnframt sé komið á föstum atvinnu- leysisstyrk frá ríki og bæjarfélögum. Greiðsla allra styrkjanna fari fram undir eftirliti verka- lýðsins sjálfs. III. Atvinnulausir verkamenn fái ókeypis gas, rafmagn og annað, sem hið opinbera sel- ur almenningi. Einnig séu þeir undanþegnir útsvörum og sköttum. Ennfremur sé úthlutað til þeirra ókeypis þeim matvælum, sem landið framleiðir og óseld liggja, svo sem fiski, síld, kjöti og öðru, er verða kann. Ennfremur sé öllum atvinnulausum verkamönnum seld mjólk við því verði, sem bændur fá fyrir hana, en allri álagningu mjólkurhringsins sleppt. IV. Stytting vinnutímans niður í 8 stundir á dag við alla vinnu án skerðingar á dagkaupi, til þess að útvega þannig fjölda verkalýðs vinnu. V. Atvinnubætur séu hafnar í stórum stíl, svo sem: 1. Verkamannabústaðir séu byggðir, svo um muni og húsnæðiskjör verkamanna batni verulega og þeim sé tryggt að verða ekki hent út á götuna. 2. Fé sé veitt í veðdeild til þess að byggingar einstaklinga einnig geti hafizt á ný með fullum krafti. 3. Öll sjófær vieiðiskip séu látin fara til veiða nú þegar á síld, ísfisk eða annað. 4. Allar síldarbræðslustöðvamar séu reknar méð fullum krafti og vilji einstaklingarn- ir ekki reka þær, séu þær teknar eigna- námi og- reknar af ríkinu. Eignanámið sé skaðabótalaust. . 5. Síldarsöltunin sé aukin og framleitt ótak- markað eftir því sem veíðist, en sjómönnum á síldarskipum tryggð lágmarkslaun, minnst 640 kr. yfir vertíðina, svo verðfall skelli ekki á þeim. 6. Opinberar framkvæmdir, svo sem vega- vinna, símalagning, brúargerð, hafnarmann- virki o. s. frv. séu auknar að miklum mun og tryggt að þeim verði haldið áfram næsta sumar í stórum stíl. 7. Sogsvirkjunin sé hafin nú þegar. Þá var og samþykkt svohljóðandi tillaga: „Fundurinn kýs 11 manna nefnd til að skipu- leggja baráttu atvinnuleysingja, bera fram og kynna kröfur þeirra, bindast samtökum við nefndir atvinnulauss verkalýðs annarsstaðar og fylkja verkalýðnum til baráttu gegn atvinnu- leysi og neyð auðvaldsþjóðfélagsins“. I nefndina voru kosnir eingöngu verkamenn. Með samþykktum þessum hefir allmikill hluti reykvísks verkalýðs sýnt að hann ber tkki lengur traust til þeirra, er valdhafar ríkis og bæjarstjómar kallast; að hann væntir það- an einkis, sem létt geti af honum því oki, sem atvinnuleysið leggur honum á herðar. Með fundi þessum hefir reykvískur verkalýð- ur lagt grundvöll að sínu eiginlega og sjálf- sagða baráttuliði, er með krafti stéttarsam- takanna geti skelft svo mörvambar íslenzkrar auðstéttar og áhangendur þeirra, sem auðæf- unum halda, og nú vísa verkalýðnum á guð og gaddinn, — að þeir af ótta hundskist til að sleppa úr greipum sér því, sem nægir til þess að forða verkalýðnum frá sulti á komandi vetri. En til þess þarf allur verkalýður að fylkja sér saman, fylkja sér um sitt eigið baráttulið, fyrst og fremst, svo hinar brýn- ustu stundarkröfur fáist uppfylltar, en jafn- framt til þess að festa stéttarbaráttu sinni svo fast form að dæmi verkalýðsins í Ráð- stj órnarríkj unum, að fullnaðarsigur náist, og hin fegursta hugsjón mannkynsins verði hér sem fyrst að veruleika. Verkamenn og konur! Stöndum saman um kröfur okkar, bægjum skortinum frá börnun- um okkar, því þeirra á að bíða annað og göf- ugra en að verða fórn á altari auðvaldsins. Fundarmaður. „Réttur" Félagar! Hafið þið gert skyldu ykkar við flokkinn í því að utbreiða „Rétt“? Takmarkið var minst 100 áskrifendur fyrir I. ágúst. 54 eru komnir. En betur má, ef duga skal. Það eru að mestu 2 félagar, sem útvegað hafa þessa kaupendur. Hver einasti kommúnisti og sannur verk- lýðssinni verður að hefjast handa! Kreppan og ráð kratanna Neyðin, atvinnuleysið ' og sulturinn sverfa harðar að vei'kalýðnum með degi hverjum. íhaldsflokkamir tveir taka höndum saman um að vernda nú auðvaldsþjóðfélagið, sem veldur vandræðum og hörmungum, gegn öllum árás- um alþýðunnar. En þriðji borgaraflokkurinn —kratarnir — lýsa því yfir, að þeir vilji ekki vernda þjóðfélag þetta. Það er því bezt að at- huga nú þeirra ráð við kreppunni og neyð verkalýðsins. Ráð kratanna birtist mjög áþreifanlega í grein Alþbl. 15. júlí, „Alþingi kemur saman“. Er þar ritað af fjálgleik miklum um krepp- una og hið illa auðvald, um neyðarástand verkalýðsins og að lokum kemur ráðið við öllu þessu böli og hljóðar á þessa leið: „Og frá Alþingi, meðan það er skipað sem nú, er engra verulegra bóta að vænta. Fjrrst þegar þjónar verklýðsfélaganna skipa þar meiri hluta, kemur breytingin“. Þetta er þá bjargráð íslenzku sósíaldemó- kratanna, sem þeir gefa alþýðunni á hinum! verstu neyðartímum, þegar atvinnuleysið heimtar úrlausn undir eins, eða örbyrgðin vof- ir yfir ella. Til næstu kosninga geta vel orðið 4 ár og efasamt um nokkrar breytingar þá. Yerkamenn! Þið, sem hafið verið atvinnu- lausir í vetur og sjáið fram á skort og atvinnu- leysi framvegis! Bíðið þið minnsta kosti næstu 4 ár og líklega lengur! Verkakonur og mæður af alþýðustétt! Þið, sem horfið upp á böm ykkar svöng og þjáð af skorti! Bíðið þið og látið þau hrópa á brauð næstu 4 ár og líklega lengur. Sjómenn, sem togaravaldið fleygir frá fram- leiðslunni, þegar brezku bankarnir skipa! Sveltið rólega, uns „þjónar verklýðsfélaganna" skipa meirihluta Alþingis! Allir þið, sem fátækir eruð og þjáðir af óréttlæti og kúgun auðvaldsins! Berið alla kúgun og’ réttindarán, sult og esryu með þögn og þolinmæði, uns alþýðusambandsstjórnin, er glatáði Hafnarfirði frá verkalýðnum fyrir of- stopa og kastaði Akureyrarkjördæmi í gin ihaldsins af illvilja, hefir fengið meirihluta á þingi! Það verður vafalaust ekki langt að bíða. Síð- asta kjörtímabil hafði Alþýðusambandsstjórn- in 5 þingmenn, nú hefir hún 4, og við næsta landkjör missir hún líklega Jón Bald. og hefir þá 3, svo haldi það áfram eins 'og hingað til, þá er auðséð hve lengi þai’f að bíða! Þetta eru þá ráð Alþýðusambandsstjórnar- innar til alþýðu. Verkamenn! Finnst ykkur ekki auðsjeð að það eru menn, sern ekki þurfa að svelta sjálfir næstu 4 ár, sem svona ráð- leggja, hvað svo sem yfir okkur dynur. Séu „ráðin“ krufin enn betur til mergjar sést live ósvífinn blekkingavaðall hér er á ferð- inni. Alþbl. viðurkennir sjálft og öllum er vit- anlegt, að „engra verulegra bóta“ sé að vænta frá Alþingi og þá auðvitað síst á kjördæma- skipuninni. Við næstu kosningar eru því engin líkindi til að Framsókn tapi nokkru þingsætí, I svo breyting gæti fengist. En ki-atarnir hafa ' sarnt eina veika von, sem þeir grípa í sem

x

Verklýðsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.