Verklýðsblaðið

Issue

Verklýðsblaðið - 01.09.1931, Page 1

Verklýðsblaðið - 01.09.1931, Page 1
VERKLYÐSBIAÐIÐ ÚTGEFANDI: KOMMÚNIST AFLOKKURISLANDS (DEILD ÚR A.K.) II. árg. Reykjavík 1. september 1931 40. tbl. OU forðabúr full matar SjÓMffliakjÖrÍll. " en fólkið sveltur. Dauðadðmur blutasklRanna Fisk* kjöi• og síldarbirgöir liggja óseldar og óseljanlegar -- og undir skemduml En atvinnuleysi og sulfur þjáir alþýðuna. Sífellt versnar ástandið hér á Islandi. í atvinnuleysingjahópinn, sem fyrir er alstaðar á landinu, bætist nú verkafólkið af sjó og landi, sem kejnur frá síldaryinnunni, flestallt peningalaust eða jafnvel með skuldir á baki — og atvinnuleysi framundan — og hungur. En samtímis safnast birgðirnar fyrir óseld- ar hér sem annarsstaðar í heiminum. Jafnvel íhaldsblöðin verða nú að viðurkenna það. Mogginn segir: „íshúsin hafa fyrra árs birgð- ir af frystu kjöti“, og samt er nýja kjötið að koma á markaðinn og selst ekki. „Ekki tekur betra við, þegar kemur að sjávarútveginum. Þgr er allt í kaldakoli. Öll pakkhús eru full af verkuðum fiski, en lítið sem ekkert selst enn þá“. (Mgbl. 27. ág.) Og svo klikkir „Mgbl.“ út með því að „eymd og sultur sé fyrir dyrum hjá alpienningi“. Frekari viðurkenningu er ekki hægt að heimta hjá aðalblaði auðvalds- ins um ástandið. AUt fullt af mat —- en sultur fyrir dyrum hjá almenningi. En alþýðan ætlar ekki að láta svelta sig xnitt í allsnægtunum. Alþingi hefir neitað Bretinið bómullina! Fyrir nokkru sendi landbúnaðarráðuneytið áskorun til baðmullarbænda Bandaríkjanna um að brenna x/s hluta af baðmullaruppskeru þessa árs. Enn fremur lofaði það því að baðmullar- birgðum sem eftir eru frá fyrra ári, sk’yldi verða haldið frá markaðinum, ef þeir brendu */3 hlut- anum enn af baðmullaruppskerunni. Allar þess- ar ráðstafanir voru gerðar til þess að hækka verðið á baðmull. Nokkru eftir að þetta var, skoraði landstjór- inn í New Orleansríkinu í Bandaríkjunum á þingmenn í öðrum baðmullarríkjum að taka þátt í þingi til þess að setja lög um að banna að rækta baðmull á árinu 1933. Þannig líta „meðölin11 út, sem eiga að bjarga auðvaldinu, úr kreppu þess. í Ráðstjórnar-Rúss- landi mundu þessir menn vera settir í vitlausra- spítala. „Men det kalder vi for vise Mænd í Norge, faru ! Bómullaruppskeran hefur í ár orðið enn þá meiri enn í fyrra í Bandaríkjunum, 151/, miljón ballar (en 14 milj. í fyrra), — en 9 milj. lágu fyrir frá i fyri'a og ársneyzlan í heiminum ei' 11—12 milj. Það liggur þá meir en ársforði af bómull fyrir í heiminum, — og miljónir ganga klæðlausar, — en auðvaldið segir: hættið að rækta, brennið bómullina, en fólkið getur geng- ið klæðvana áfram! 4. þing S. U. K. verður háð í Reykjavík dagana 23. október til 1. nóvember. henni um einar 100,000 kr. til að bæta úr sár- ustu neyð, — en hún mun halda baráttunni áfram. Og nú krefst alþýðan þess að birgðirnar, sem hér hrúigast nú niður af mat séu ekki látnar liggja ónotaðar, uns farið verður að fleygja þeim í sjóinn í vetur eða næsta vor. Krafa alþýðu er, eins og strax var sam- þykt á fundunum, sem Kommúnistaflokkurinn boðaði til 15. og 16, júlí, — og mun sú krafa hljóma margraddaðri og sterkari er frá líður: Matvælum — saltfiski, salt- og frystu kjöti og síldinni — sé nú þegar úthlutað ókeypis til hverrar verklýðs- og bændafjölskyldu, er æskir þess, eftir þörfum hennar. Bankarnir og ríkið geta vel tekið þann skell, sem af því hlýst nú þegar eins og að bíða með vörurnar uns þær eru orðnar ónýtar og engum að gagni og taka skellinn þá. Við viljum ekki svelta mitt í allsnægtunum, sem við höfum skapað! Matinn til þeirra, sem hafa framleitt hann, þrátt fyrir öll eigna- og veðbönd auðmanna og banka! Eyðíleggið kaffið! „Ráð“ auðvaldsins við kreppunni, Borgarablaðið, „Kölnische Zeitung“, segir 8. ágúst: „Kaffieyðileggingin heldur áfram. 1 júlí voru alls eyðilagðip í Santos 253,000 sekk- ir af kaffi/ í Rio 21,000, í Viktoría 7000“. Og meðan kaffið er eyðilagt í Brasilíu, til að hækka verðið gagnvart neytendunum, t. d hér á íslandi, — ganga þúsundir manna í Brasilíu atvinnulausir og hungrandi, — en á fslandi liggur saltfiskurinn undir skemmdum, og verður ef til vill síðar hent í sjóinn eins og kaffinu í Brazilíu. Að eyðileggja matinn og láta fólkið hungra áfram, — það eru auðvaldsráðin! Leiðrétting. f síðasta „Vklbl.“ var sagt um dómana gegn atvinnuleysingjunum, að Magnús Þorvarðsson hefði verið dæmdur áður, en það er ekki rétt. Hin harða hegning, er hann hlýtur (60 daga fangelsi), er ekkert annað en hefnd of- beldisvaldsins, sem kallar sig valdstjórn og réttvísi, fyrir ærlegt hnefahögg verkamanns á dulklædda lögreglunjósnara þess, sem hegn- ingarlaust helzt uppi að berj a menn með gúmmíkylfum sínum í verkföllum og ráðast á saklausa menn á gamlárskvöld. Slíkt er borgaralegt réttlæti. Síldveiðinni er að n>estu lokið og sjómenn- irnir eru að koma heim. Þeir koma með tvær hendur tómar. Útborgunip frá Einkasölunni nægir ekki fyrir fæði þeirra — og annað hafa þeir ekki. Jafnvel Morgunblaðið verður að við- urkenna þessa hörmulegu útkomu fyrir sjó- mennina. Síðasta vetur börðust konjmúnistar alstaðar á landinu fyrir því að hætt yrði við hlutaskiftin í útgerðinni, en tekin upp föst laun, eða minsta kosti föst lann og premía. En kratarnir börð- ust á móti og á Alþýðusambandsþingu var það felt í allsherjaratkvæðagreiðsju með 3200 atkv. gegn 2600. Var þarna barist um höfuðatriði sósialismans, stéttasamvinnu eða stéttabaráttu, — og stéttasamvinna kratanna bar augnabliks- sigur úr býtum. Síðan samdi Sjómannafjelag Rsykjavíkur fyrir píldveiðarnar upp á hlut, — og norðlensku félögin treystu sér þá ekki til að leggja út í baráttu fyrir kaup og héldu hlutnum. Eips Sjómannafélag ísafjarðar, þrátt fyrir mikla óánægju með hlutinn. Nú sést árangurinn. Spádómar kommúnista hafa rætst, Með hlutaskiftunum hefir útgerðar- mönnunum tekist að velta afleiðingum krepp- unnar — verðfallinu — yfir á sjómennina, svo þeir bera lítið sem ekkert úr býtum. Ávöxtur stjettasamvinnunnar er — eymd. Þegar í óefni var komið í vor og auðsjeð að hlutaráðningin hjeldist í sumar, gerðu komm- únistar á Akureyri þá kröfu að hásetum á síld- veiðuni yrðu trygð lágpiarkslaun — 640 kr. — yfir vertíðina og greida út beint frá Einkasöl- unni í vertíðarlok. Var þessi krafa samþykt á fjölmennum verklýðsfundi á Akureyri í vor og var fagnað vpl meðal sjómanna. En það skorti á samtök meðal sjómanna á skipunum til að kopia henni í gegn meðan tími var til og því er nú komið sem komið er. Ihaldið reynir að æsa sjómenn upp móti Einkasölunni með því gráta krókdílstárum yfir óförum þeirra og hörmu- legri afkomu, — en ef sjómenn krefjast ein- hvers af Einkasölunni, t. d. útborgunar þessara lágmarkslauna, þá skipar íhaldið sjer undir eins í þjetta varnarfylkingu fyrir Einkasöluna og hagsmuni útgerðarmanna. Nú hafa sjómenn verið nógu oft blekktir af útgerðarstórlöxunum og erindrekum þeirra. Nú er tími til kominn að kasta' trúnni á forsjá þeirra, sem ekkert er apnað en brask á fall- völtum mörkuðum. Auðvaldið getur braskað þannig með gróða sinn, meðan það enn heldur framleiðslutækjunum — skipunum — í sínum höndum, — en að láta það áfram braska þann- ig með laun sjómannanna er glæpur. Heima fyrir bíða fjölskyldurnar og heim koma fyrirvinuurnar, skuldugir eftir uppgripasumar, og frumundan er hinn ægílegasti atvinnuleysis- vetur. Sjómepn af síldarskipunum verða að fá laun síii greidd og það strax! Sjómenn, krefjist útborgunar á hlut ykkar strax — eða lágmarkslaunanna! Og 640 kr. er það minnsta eftir 2 mánaða þrældóm, dag og nótt! Og burt með hlutaskiftin héðan af.

x

Verklýðsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.