Verklýðsblaðið - 01.09.1931, Blaðsíða 4
aura kostar nú bókin;
Xm^ ím/jL
'JúmumíniUajÍofckuA+'
Bókaverzluu Alþýðu h.f.
Dag'leg'a fjölgar viðskiftaviuuuum.
« Vegna þess
að verðið er lægst og vörnrnar beztar
Kaupfélag Verkamanna
Vestm annaeyj um.
Allskonar málningarvörur, svo sem Titanhvíta kr. 1.60 pr. kilo.
Fetrahvíta kr. 1.20 og Zinkhvíta 1.40 pr. kilo.
Lagaður farfi í ýmsum litum kr. 1.60 pr. kilo.
Gólflökk frá 2.90 pr. kilo (þorna á 6 tímum).
Einnig gólflökk á kr. 5.50 (þorna á 1-2 tímum) sérstakl. góð og drjug.
Pemia 1.30 pr. kilo ,— Terpentína kr. 1 og 2 pr. kilo.
Copallökk kr. 2.90, 3.90 og 4.90. — Þurkefni kr. 2.30 pr. kg.
Allskonar penslar.
Allar vörur sendar gegn póstkröfu.
Fljót afgreiðsla. Hvergi ódýrara.
Málarabúdin
Skólabrú 3,
P, O. Box 774.
Sími 2123.
NOTie ,8M*RA--SMJÖRUKI,
-Á.^7-a.22:ta.ssLla.t
S±lcLa.rs£Lla.t
íta.l@!k:t salat
IP'yls'U.r
og allskonar annað viðmeti
bezt og ódýrast.
Verzlunin
0!
i!
Bergstaðastræti 61 — Simi 1042
KJÖTFARS
BENEDIKT B. GUÐMUNDSS0N & C0.
Sími 1769 - Vesturgötu 16
Hverjir lifa yfir efni fram?
,,Morgunblaðið“ gerir gjaldþrot Ástralíu nú
að miklu máli og reynir að nota það til sönn-
imar því, að allt kaup verði að lækka og menn
megi ekki lifa yfir efni fram.
Gott og vel. Við skulum nú einu sinni at-
huga tillögur „Mgbl.“ og kryfja þær til mergj-
ar.
Hyerjir eru það á Islandi, sem lifa yfir efni
fram? Eru það þeir, sem hírast í kjallara-
íbúðum þar, sem aðeins er pláss fyrir rúmin
þeirra á gólfinu og borða í eldhúskytrunni ?
Nei, það mun enginn dirfast að halda slíku
iram, jafnvel ekki aðalmálgagn auðvaldsins á
Islandi.
Þeir, sem lifa yfir efni fram, eru burgeis-
arnir sjálfir — mennirnir, sem búa í 6—20
herbergja íbúðum, eyða frá 10.000—50.000 kr.
á ári pg íþyngja atvinnulífi þjóðarinnar með
því að láta hana ala sig.
Kaupið yerður að lækka, segir Mogginn —
og Tíminn tekur undir í sama dúr. 1 þvi fall-
ast Ólafur Thors og Jónas, Sambandið og stór-
kaupmannaklíkan í arma.
Gott og vel. Við skulum einu sinni vera með
kauplækkun. Við skulum vera með því að
kaup allra manna á Islandi lækki niður í 3000
kr. á ári, svo allir hafi jafnt, — því hér á !s-
iandi eru allir jafnir eftir því, sem ,,Mgbl.“
segir. Kauplækkunin byrjar svo á þeim, sem
hafa hæst kaupið, fyrst þeir, sem hafa yfir
10.000 kr. til að lifa af á ári og þegar þeir eru
búnir að lækka sitt, þá lækki þeir, sem hafa
yfir 6000 kr. Ef það þá sýnir sig að fúlgan,
sem sparast hefir, nægir til að tryggja þeim,
sem hafa nú undir 3000 kr. hærra kaup, — og
ef Morgunblaðið ber sig mjög illa yfir kaup-
iækkuninni, þá skulum við ganga inn á að
stöðva kaupið við 6000 kr. Annars lengi-a niður.
Og svo er sparnaðurinn. Það má ekki lifa
yfir efni fram. Þessvegna leggjum við til, að
allir þeir, sem nú hafa yfir 3 herbergi, láti
þau af hendi til annara, er hafa minna. T. d.
má flytja einar 3 verkamannafjölskyldur í hús
Thors Jensens, aðrar í Ólafs Thors, og fjöld-
ann allan í öll „fínu“ húsin sunnan Njarðar-
götu. Þyki einhverjum burgeisanna verra að
búa þannig með verkamönnum, og hafa sam-
eiginlegt eldhús að einhverju leyti, þá geta
þeir auðvitað fengið kjallaraíbúðir þeirra í
staðinn til að vera „út af fyrir sig“.
Og vilja þeir hafa sérstakt burgeisahverfi
fyrir sig, þá má taka 20 þá helztu og láta þá
fá íbúðirnar, sem bæjarstjórnin sjálf hefir út-
búið handa borgurum bæjarins í — Selbúðum.
Frúm þeirra Knud Zimsens, Thorsanna og ann-
ara „fínu“ mannanna mun vafalaust þykja rotn-
andi eldhúsborðin, skólprennurnar fyrir fram-
an dyrnar, vanhúsin bera vott um menning-
arhug heldri mannanna. Og börnum þeirra
mun þykja öskuhaugarnir og óþrifahrúgurnar,
sem börn verkalýðsins eru fordæmd til að leika
sér á nú, úrvals gróðrarreitur dyggðanna, sem
K.F.U.M.prangararnir prédika á fundum sínum.
Luxusbílana þeirra burgeisanna er vafalaust
bezt fyrir þá að stöðva alveg og reyna að selja
þá, til að lifa ekki um efni fram. Sumar-
bústaðina má nota sem barnahæli fyrir alla
þá barnamerg hér í Reykjavík, sem aldrei fá
að njóta náttúrunnar og sumarsins fullkom-
lega. Og þannig mæ'tti fara að á fjölmörgum
sviðum.
Og hafi Morgunblaðið meint eitthvað með
þessu sparnaðar- og kauplækkunarhjali sínu
annað en í hræsni og yfirdrepsskap að blekkja
alþýðu um sitt sanna innræti og heimta allt
tekið af þeim, sem ekkert á, en gefið þeim, j
sem allt á, — þá er bezt fyrir blaðið að ganga
inn á þessar tillögur okkar, — en standa ella
enn þá einu sinni bert að hræsni sinni og
margfeldni frammi fyrir öllum almenningi.
Verkainaður.