Verklýðsblaðið - 08.09.1931, Page 4
Keykjaríburd. K. F í.
oskva hafnarborg
í júaímánuði síðastliðnum var ákveðið að
grafa skipaskurð milli fljótanna Volga og
Moskava, sem rennur gegnum Moskva. Skurð-
urinn, sem verður 200 kílómetrar á lengd, á að
verða fullgerður eftir 4 ár og er undirbúningur
að verkinu þegar hafinn. Búist er við að skurð-
urinn kosti 200. miljónir rúbla. Með skurði
þessum opnast siglingaleið frá Moskva ekki að-
eins til Kaspíhafsins, heldur einnig til Svarta-
hafsins gegnum Volga-Don skurðinn.
Þá er og í ráði að gera annan skipaskurð
milli Oka og Moskava. Hann verður 150 kíló-
metra langur og kostar 250 miljónir rúbla. Sá
skurður á að vera fullgerður eftir 5 ár.
Þannig verður á næstunni opnuð siglingaleið
frá Moskva til þriggja hafa, Eystrasalts,
Kaspíhafs og Svartahafs. Skurðirnir verða svo
djúpir, að djúpskreið hafskip geta siglt eftir
þeim og jafnframt verður byggð hafskipahöfn
í Moskva, svo að eftir 5 ár verður hægt að
flytja afurðir milli Moskva og umheimsins án
nokkurrar umhleðslu.
Slíkar samgöngubætur eru gerðar í Sovét-
Rússlandí, enda er það eina landið, þar sem all-
ar framkvæmdir miðast við þarfir og þægindi
íbúanna, en ekki við gróðavonir einstakra
kapítalista. Samskonar skipulagi verða verka-
menn og bændur að koma á á íslandi, því að
með því einu móti geta þeir skapað sjálfum sér
lífsskilyrði, sem eru boðleg nútímamönnum.
Leiðin til slíks skipulags liggur yfir rústir
kapítalismans. Þessvegna verða verkamenn og
bændur að taka höndum saman gegn kapítal-
ismanum til þess að geta byggt upp sósíalism-
ans þegar hinn fyrnefndi er yfirunninn.
Sameinist til baráttu undir forustu Kommún-
istaflokks íslands!
4. þingr S. U. K.
verður haldið í Reykjavík 23. okt. til 1. nóv.
Ár er nú liðið frá því að sósíaldemókratarnir
klufu samtök verklýðsæskunnar íslenzku á
þinginu á Siglufirði í fyrra. Þrátt fyrir það að
óreglusemi ungkratanna í allri starfsemi hafði
haft mjög slæm áhrif á samtökin, hefir hin-
um ungu kommúnistum á þessu fyrsta starfs-
ári sínu undir forustu Alþjóðasambands ungra
kommúnista tekist að skapa harðvítugt bar-
áttulið. Ungkommúnistarnir hafa átt við mikl-
-ar ofsóknir frá hendi borgaranna og sósíal-
demókratanna að etja. Má þar til dæmis nefna
brottrekstur félaganna Eggerts Þorbjarnarson-
ar og Ásgeirs Magnússonar úr skólanum á Ak-
ureyri, fangelsun félaganna Þorsteins Péturs-
sonar og Hauks Björnssonar í atvinnuleysis-
baráttunni nú í vetur, og loks ofsóknir ’ krat-
anna þegar þeir ráku Eggert Þorbjarnarson úr
Dagsbrún fyrir baráttu hans í máli sendisvein-
anna. Allar þessar ofsóknir hafa aðeins orðið til
þess að stæla félagana í baráttunni og opna
augu íslenzkrar verklýðsæsku fyrir því hverjir
gæta hagsmuna hennar.
Samband Ungra Kommúnista hefir eflst
mjög á þessum stutta tíma og telur nú á 6.
hundrað meðlimi.
Þann 23. október næstkomandi verður hald-
ið 4. þing sambandsins hér í Reykjavík. Verð-
ur það haldið á tíma vaxandi kreppu og harðn-
andi stéttabaráttu. Þessi ráðstefna ungu kom-
múnistanna hefir því það verkefni með hönd-
um að ákveða baráttuna í vetur og búa sig und-
ir það hlutverk sjtt að safna allri verklýðsæsk-
unni inn í samtökin. Hin fjölbreytta dagskrá
þingsins er auglýst á öðrum stað í blaðinu.
í sambandi við þingið hefir S. U. K. nú hafið
baráttu fyrir meðlimasöfnun og hefir það sett
sér það takmark að ,auka meðlimatölu sína
um 25% fyrir þingið.
4. þing S.U.K.
verðnr haldið í Reykjavík dngrana 23. október til 1. nóv>
ember nk. í Alþýðuhiisinn „Iðnó“.
Dagrsskrá þingsins verðnr þessi:
I. a) þingrsetning:
b) Kosning kjörbréfanefndar
c) Kosning starfsmanna þingsins
II. Skýrsla sambnndsstjórnar
III. Reikningar sambandsins
IV. Hin pólitíska barátta verklýðsæskunnar
Afstaðan tii borgaralegu æsknlýðslireyfitigarinnar
Stríðshætta og baráttan gegn stríðinu
V. Hagsmnnabarátta verklýðsæskunnar:
a) liarátta verkiýðsæsknnnar alment
b) Iðnneraar
c) Sendisveinar
d) Verklýðsæskan í sveitum
e) Hagsmunabarátta verknkvenna
f) Atvinnnleysið og verklýðsæskan
VI. Skipulagsmál S.U.K.
S.U.K. ogr flokkurinn
VII. Fræðslu ogr útbreiðslustarfsemi sambandsins
a) Rauði fáninn og bókaútgáfa
b) Fræðslnstarfsemi (leshringnr, skólar)
c) Barnahreyflngin
d) Íþróttahreyíing verkalýðsins
VIII. Önnnr mál
IX. Kosningr sambandsstjórnar og annara starfsmanna
X. þingslit.
í sambandi við þingið. er ráðgert að hnlda útbreiðslu-
fundi í Reykjavík og nágrenninu. Eftir þingslit verð-
ur haldin fjölbreytt æskulýðsskemtun (langardag 31.
okt.)
Tiliögrnr um breytingar, eða viðauka við dagskrá
þingrsins frá deildum eða einstöknm félögmn sendist
sambandsstjórninni hið fyrsta.
Reykjavik 6. sept. 1031
Stjórn Sambands ungrra kommúnista
Haukur Björnsson.
Bóka-útsala Gyldendals
sem hófst 26. ágúst, er hin stærsta,
sem nokkurntíma hefir átt sér stað
á Norðurlöndum. Mörg hundruð þús-
und bindi verða seld við stórlega
niðursettu verði. Skrá yfir bækurn-
ar, hátt á þriðja hundrað tvídálk-
aðar síður, má fá frá bókaverzlun
Snæbjarnar Jónssonar í Reykjavík,
gegn 50 aurum í óbrúkuðum frí-
merkjum.
A. S. Y. A. S. Y.
Fundur í K. R. húsinu föstud. 11.
sept. kl. 8V2 e. h.
Dagsskrá:
Ýms télag'smáí og undirbúningur
undir vetrarstaríid.
r
Aríðandi að allir mæti.
Ganga Kveldúlfur og Alliance
með sigur af hólmi?
Heyrst hefir að útgerðarmannasamlagið hafi
gefist upp við að þvinga Kveldúlf og Alliance
inn í samtökin með og láti þau selja fyrir sig
sem umboðssala og appkaupendur.
Þetta þýðir að Kveldúlfur og Alliance ganga
með sigur af hólmi og velta kreppunni yfir á
þá smærri eftir vild. Einmitt í kreppunni mél-
ast þeir smærri og auður stórlaxanna og völd
aukast.
„TURKSIB“, rússneska kvikmyndin, sem a.
S. V. hefir fengið til sýningar hér á landi, var
sýnd í Nýja Bíó fyrir húsfylli nú á sunnudag-
inn. — Myndin vakti almenna hrifningu áhorf-
enda og háfa fjölda áskoranir borizt um að
endurtaka sýningu hennar.
Fundur í K. R. húsinu uppi, fimmtudaginn
10. þ. m. kl 8V2 e- h.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Þingmál
3. Ástandið á Sigluf.
4. Erlendar fréttir
Stjórnin.
Á þessn ári hafa Bosch rafmagnslugtir enn þá
verið endurbættar. Þær lýsa nú raeð fullum styrk-
leik. straks á hægri ferð, og eru þrátt fyrir það
ódýrari.
SOSCH
Heildsala
S m á s a 1 a
FALKINN
Vanti þig kennara þá
hittu Gunnar Benediktss.
frá Saurbæ, Mímisveg 2
Stoppuð húsgögn
• fjölbreytt og vönduð
einuig’ D IV A N A
fáiö þér
á HVERFISGÖTU 30
Friðrik J. Olafsson.
Lægsta verð í bænum
Allar
nýlenduvörur
hreínlætisvörur
tóbak,
sælgæti.
Verkamenn
og
smábændur!
Bkiftið við ykkar eigin verslun
Kaupfélag Verkamanna
Yestmanimeyjum
VERKLÝÐSBLAÐIÐ.
Ábyrgðarm.: Brynjólfur Bjarnason. — Árg. 5 kr., í
lausasölu 15 aura eintakið. — Utanáslcrift blaðs-
ins: Verklýðsblaðið, P. O. Box 761, Reykjavík.
Afgi'eiðsla Aðalstræti 9 B. Sími 2184.
Prentsmiðjan Acta.