Verklýðsblaðið - 27.10.1931, Side 4
Islenzkt auðvald á barmi gjaldþrotsins
Frh. af 1. síðu.
Fyrir fjöldann allan af mönnum úr milli-
stétt merkir þessi ráðstöfun að þeir fara á
vonarvöl.
Nú er mælirinn fullur. Slíkar árásir þolir
alþýðan ekki lengur. Er það hámark ósvífn-
innar, þegar komið er á aðflutningsbanni á
nauðsynjavörum almennings, en leyft að flytja
ótakmarkað af áfengi til landsins. Bannað er
að flytja inn alla óáfenga drykki, en hinsvegar
engin takmörk sett ef drykkirnir eru á-
fengir (!!). Tóbak má líka flytja til landsins,
eftir nýár, þ. e. eftir að ríkið tekur að verzla
með það!
Stjómmálaflokkar borganna, sem eru í mála-
myndarmótstöðu við stjórnina, sósíaldemó-
kratar og íhaldsmenn, láta sér eftir atvikum
vel líka þessar ráðstafanir, þó þeir séu með
aðfinnslur fyrir siðasakir. Nefnd hefir verið
sett til að stjóma innflutningshöftunum, og
eru í henni menn, sem landstjómin, bankarn-
ir, Verzlunarráðið, Samband ísl. samvinnufé-
laga og Alþýðusambandið hafa skipað. Alþýðu-
sambandið hefir útnefnt Kjartan Ólafsson í
Hafnarfirði. Þar með hafa kratamir viður-
kennt ráðstöfun stjórnarinnar og öll þeirra
„gagnrýni“ fellur um sjálfa sig.
Þá hefir verið skipuð verðlagsnefnd, til þess
að láta líta svo út sem skorður eigi að setja
fyrir verðhækkun. Eru í henni fulltrúar borg-
araflokkanna, fýrir kratana Sigurður Jónasson.
Það eru eins og gefur að skilja hreinasta
blekking að nefnd geti hindrað takmarkalausa
hækkun á vörun.
Öll alþýða, verkamenn og millistétt verða
að gera sameiginlega uppreisn gegn innflutn-
ingshöftunum. Þeirri baráttu má ekki létta
fyr en stjórnin verður þvinguð til að létta
þessari vitfirrtu ráðstöfunun af. Heimild hefir
stjórnin enga til slíkra verka. Þetta er algert
einræðisbrölt eins og þingrofið.
Verkamenn verða nú fyrir alvöru að búast
til að mæta hinum margendurteknu árásum
á lífskjör þeirra. Nú þegar verður að hefjast
skipulagður undirbúningur undir það að hækka
kaupið að sama skapi og dýrtíðin vex.
Þeim foringjum verður að ryðja úr vegi, sem
dirfast að telja það úr að samtökunum sé
beitt til að halda sama raunverulega kaupi
og áður. Gætið þess, verkamenn, hvílík ósvífni
það er að brýna það fyrir ykkur að svelta
möglunarlaust mitt í allsnægtunum.
Kaupið verður að hækka minnsta kosti jafn-
mikið og vörur hækka í verði.
Verkamenn verða strax að búast til baráttu
til að hrinda þessari kröfu í framkvæmd.
Lúxusbyggingar fyrir yíirstétt-
ina, gatan fyrir verkamenn
(Verkamannabréf).
Húsnæðisskorturinn er nú með versta móti
bæði hér í Reykjavík og annarsstaðar. Fjöl-
margar fjölskyldur eiga úthýsingu yfir höfði
sér og aðrar hafa verið reknar út nú þegar.
Sífellt vaxa kröfur húseigenda um að bera
menn út, sakir þess að þeir hafa ekki getað
greitt húsaleigu. En ríkisvaldið og bankarnir
draga úr byggingum fyrir verkamenn eins og
þeim frekast er unnt.
En á meðan húsnæðisskortur og ill húsa-
kynni þjá alþýðu, byggir yfirstéttin sér dýr-
indis samkomusali til að skemta sér í fyrir fé
það, er hún græðir á vinnu verkalýðsins, okur-
íbúðunum og verzluninni við hann. Við Hverf-
isgötu rís upp „þjóðleikhúsið", byggt af Fram-
sóknarstj órninni, sem skipar alþýðu að neita
sér um allt, og við tjörnina á að byrja á stór-
hýsi „Oddfellowa“, líldega stærsta fundarsal
bæjarins. Og yfir borgina gnæfir katólska
kirkjan sem talandi tákn um að nógir séu pen-
ingarnir í allt — nema handa verkalýðnum til
að lifa sómasamlegu lífi.
Skemtiu
verður haldin í tilefni af heimför fulltrúanna
af 4. þingi SUK, laugardaginn 31. okt. 1931
kl. 9 síðdeg'is í Iðnó.
SKEMMTIATRIÐI:
1. Skemmtunin sett: Skúli Magnússon.
2. Ræða: Forseti SUK.
3. Blástakkar.
4. Upplestur: Halldór Kiljan Laxness.
5. Blástakkar.
6. Dans (Hljómsvéit Hótel íslands).
Ath.: Músik milli atriða.
Aðgöngumiðar fást í Bókaverzlun Alþýðu og
í Iðnó eftir kl. 4 á laugardag; kosta 2 krónur.
Fyrirlestur
hélt séra Gunnar Benediktsson í Iðnó síðast-
liðinn sunnudag. Fjallaði hann um kristilegt
barnauppeldi og nýja kverið. Sýndi höfundur
fram á hversu guðstrúin og kenningar kirkj-
unnar væru tæki yfirstéttarinnar til að sætta
hina þjáðu við eymdir þessa lífs. Hann brá
ljósi yfir hvernig heims-flótta-kenning kirkj-
unnar er skálkaskjól yfirstéttarinnar til að
stunda auð og völd og eftirláta fjöldanum von
um viðreisn og réttlæti annars lífs. Síðan veik
hann að nýja kverinu og þróun kristindóms-
fræðslunnar á þessum síðustu umrótstímum.
Sýndi hann fram á, að í þessu nýja kveri
hefði verið strokið út allt það, sem minnt
gat á kjör og baráttu hinna þjáðu, á það
litla sem eftir er af uppreisnarhug í kristn-
inni, þessari gömlu undirstéttatrú. Aðalkjarni
þess væri velgjuleg, væmin og þokukennd til-
beiðsla og dýrkun eignarréttarins. Lauk höf.
máli sínu með því að vara verkalýðinn við
uppeldi þessu og áhrifum þess. Öll framsetn-
ing höfundar var hin bezta. Ræddi hann með
„platónskri“ ró og röksemd um þessi við-
kvæmu mál og varaðist að særa menn. Er
hann hafði lokið máli sínu gerðu allir góðan
róm að og þótti sýnilega sem höf. hefði talað
vel og þarflega. Prestar voru nokkrir á fund-
inum en eigi tóku þeir til máls, þó að þeim
væri boðið orðið og þótti ■ sennilega ekki á-
rennilegt. Séra Gunnar á miklar þakkir skilið
fyrir viðleitni sína til að vekja alþýðu til um-
hugsunar um þessi mál. En sem komið er, er
það aðeins um hvernig uppeldi á ekki að vera
og vildum vér óska þess, að höfundur segði
oss seinna hvernig verkalýðurinn á að ala upp
börn til að gera þau að starfhæfum mönnum
og þörfum sinni stétt.
Alþýðublaðið lögboðið auglýsingablað.
í lagafrumvarpi því, sem lagt var fram af
undirbúningsnefndinni á stofnfundi kaupfélags-
ins, var lagaákvæði um að aðalfund skyldi
auglýsa í Alþýðublaðinu. Þótti mörgum þetta
harla kynlegt, því lítil líkindi væru til þess að
Alþýðublaðið yrði ódauðlegt.
Einar Olgeirsson bar fram tillögu um að í
staðinn fyrir „Alþýðublaðið" kæmi „í blöðum
verkalýðsins“ og var það samþykkt.
Kommúnistaflokkurinn eflist
Deild stofnuð á Eyrarbakka.
Nýlega hefir verið stofnuð deild úr Kommún-
istaflokk íslands á Eyrarbakka. Telur hún 11
meðlimi, allt verkamenn.
1 hverjum kaupstaðnum á fætur öðrurn rísa
nú upp deildir úr Kommúnistaflokknum og
félög ungra kommúnista.
Verklýðsblaðið býður félagana á Eyrarbakka
heila í hópinn.
Sjómannafél. kýs kaupkröfunefndir.
Á síðasta fundi sjómannafélagsins voru
kosnar tvær kaupkröfunefndir, önnur til þess
að gera tillögur um kjör togarasjómanna, en
hin fyrir línubátasjómenn. Ennfremur var
kosin nefnd til að gera uppástungur um stjórn
fyrir næsta kjörtímabil. Flestir, sem kosnir
voru í nefndir þessar eru starfandi sjómenn.
vikna
á.ætluxi
ITerklýdsbladsins
Daglega fjölgar kaupendum Verklýðsblaðs-
ins. Eftir eins árs starf hefir það unnið hylli
verkalýðsins og fengið þá viðurkenningu að
vera bezta málgagn hans.
En markið:
Verklýðsblaðið inn á hvert
verkamanna- og smábænda
heimili Islands.
á ennþá langt í land.
Til þess að flýta fyrir því að ná þessu
marki og jafnframt til þess að blaðinu tak-
ist að yfirstíga fjárhagsörðugleika þá, sem
sífellt steðja að, sökum hinna almennu pen-
ingavandræða sem alþýðan nú á að búa við,
hefir útbreiðslu- og fræðslunefnd flokksstjórn-
arinnar ákveðið að hefja öfluga baráttu fyrir
blaðið:
5 vikna áætlun Verklýðs-
blaðsins.
Barátta þessi stendur yfir í fimm vikur og
er markið sem keppt verður að:
150 nýjir áskrífendur,
500 blöð í lausasölu,
200 krónur í blaðsjóðinn.
Fyrsta vika 5 vikna áætlunarinnar verður
31. október — 7. nóvember.
Allar deildir flokksins verða nú þegar að
hefjast handa, kjósa framkvæmdarnefndir og
senda skýrslu um árangur baráttunnar í lok
bverrar viku.
150 500 200
áskrif. lausas. kr.
Félagar, náum markinu og förum fram úr
því, eins og bolsévikkum sæmir!
Utbreiðslu- og fræðslunefnd K. F. I.
ð Yikna áætlnp Yerklýðsblaðsíns.
Undirritaður óskar að gerast kaupandi
Verklýðsblaðsins. Sendi hérmeð kr.........í
blaðsjóðinn. Óska að mér verði send .... eint.
af blaðinu til útsölu.
Nafn
Heimili
VERKLÝÐSBLAÐIÐ.
Ábyrgðarm.: Brynjólíur Bjarnason. — Árg. 5 kr., i
lausasölu 15 aura eintakið. — Utanáskrift blaðs-
ins: Verklýðsblaðið, P. O. Box 761, Reykjavik.
Afgreiðsla Aðalstræti 9 B. Sími 2184.
Prentsmiöjan Acta.