Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 31

Andvari - 01.10.1960, Síða 31
ANDVARI VÆRINGJAR 221 þeirra voru ekki lengur hreinræktaðir Skandínavar. Hinn forni árásarhugur Norðurlandamanna var farinn að dvína, og nú reyndu þeir að styrkja og stækka þjóðina með samneyti við Slafa, og með mægðum við þá urðu þeir smám saman fyrir miklum áhrifum af þeim og menn- ingu þeirra. Á árunum eftir fyrstu herhlaupin gerðu norrænir höfðingjar í Kiev nokkrar vel skipulagðar en árangurslausar atlögur að Býzanz, en síðan fóru þeir að taka upp friðsamleg samskipti og verzlun við gríska heimsveldið. Kaupmenn komu í stórum hópum til Konstantínópel til þess að selja rússneska framleiðslu og kaupa í staðinn vefnaðarvörur, skrautmuni, krydd og annað sem framleitt var í rík- inu eða flutt þangað inn frá fjörrum löndum. Auðlegð kemur með verzlun- inni. Nýlendur risu á legg á ströndum Bosporus, og íbúar þeirra voru engir aðrir en þessir skandinavísku hálfblendingar, sem Býzanzbúar voru nú farnir að kalla „rúss“. En jafnframt héldu nýir hópar nor- rænna stríðsmanna áfram að taka sig upp í hinum norðlægu byggðum sínum og leita suður á bóginn. Þeir dreifðust um rússnesku slétturnar og leituðu sér að staðfestu í ríkjum þeirra manna, sem voru af sama norræna uppruna og þeir sjálfir, en reyndu einnig að hefja her- hlaup til suðlægari landa. En þegar hér var komið sögu, voru gömlu landarnir í Rússlandi farnir að hafa nokkrar áhyggjur af þessuin hópum, sem alltaf voru að koma, og ef til vill voru þeir ekki alveg óhræddir við hernaðarfíknina í þessum görpurn að heiman. Þeir voru þeim engir aufúsugestir, því að þeir höfðu þegar tryggt sér lönd og ríki, komizt vel af við slafnesku þjóðirnar, sem kringum þá bjuggu, og áttu sameiginlega hagsmuni við þær. Þeim var augljóslega meiri hagur í að spilla ekki friðsamlegum samskipt- um og verzlunarviðskiptum við býzanzka heimsveldið en að gera þangað ný her- hlaup. Og þeim tókst að gera tvennt í cinu, losa sig við hina herskáu norrænu óróaseggi og rétta bandamanni sínum, keisaranum í Býzanz, hjálparhönd. Þeir sendu hina nýkomnu norðanmenn til keisarans, ekki sem árásarmenn, heldur sem málaliða til þjónustu við hann. Þetta reyndist vera arðvænleg atvinnugrein, því að keisarann vantaði alltaf góða vana hermenn og borgaði þeim vel. Auk þess var þetta virðuleg atvinna, því að nor- rænu málaliðarnir og þó einkum foringjar þeirra lifðu og hrærðust í siðmenntuðu umhverfi með dýrlegum veizlum, og þeirn voru vcittar háar vegtyllur og íburð- armiklar nafnbætur. En þrátt fyrir þetta fékk hernaðarandinn ekki að dvína í lysti- semdum borgarinnar. Hið eina, sem af þeim var krafizt, var að þeir væru alltaf í bardagaskapi, og keisarinn átti í sífelld- urn styrjöldum, annaðhvort til sóknar eða varnar, á öllum hugsanlegum vígvöllum. Þannig fengu norðurlandamenn svigrúm til að neyta krafta sinna, og nú fóru þeir að leggja leið sína frá rússnesku sléttunum til Býzanz til þess að ganga í þjónustu keisarans. Furstarnir í Kiev voru oft og tíðum meðalgöngumenn við ráðn- ingu þessara hermanna. Býzanzkir sagnaritarar kalla þessa skandínavísku málaliða oft „rúss“ eins og innrásarmennina fyrr á tið. En þetta stafar af ruglingi eða vana. Nafnið „rúss“, sem áður var haft um þessa „menn úr norðri“, árásarmennina frá Norðurlönd- um og rússnesku sléttunum, er nú orðið einkum haft um þá sem búa í Rússlandi og eru orðnir blandaðir Slöfum og runnir saman við þá. Eftir því sem slafnesk menning verður sterkari meðal þessa fólks, þótt af norrænum uppruna væri að nokkru leyti, því nær kemst þetta nafn því að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.