Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 34

Andvari - 01.10.1960, Síða 34
224 APOSTOLOS DASCALAKIS ANDVARl dáðu og virtu þessa menn, höfði hærri cn aðra menn, glóhærða og fráneyga, klædda hvítum skikkjum með skínandi vopnum. Þegar þeir iylgdu keisaranum að opinberum erindum og við hátíðleg tækifæri, heilsuðu þeir með því að hrista axir sínar yfir öxl sér, drógu þannig að sér athygli áhorfenda og juku þannig að sínu leyti mjög á allan glæsibrag keis- arafylgdarinnar og samkomu tignar- rnanna ríkisins. Væringjaforingjarnir í líf- verðinum, sem næstir stóðu keisaranum og áttu trúnað hans, þágu miklar sæmdir og há laun, og þeir voru valdir úr hópi þeirra Norðurlandamanna, sem tigin- bornir voru. Oft voru þeir af konunga- ættum eða jafnvel konungssynir, eins og til dæmis Haraldur. Af ofansögðu má ekki draga þá álykt- un, að Væringjarnir í lífverði keisara hafi eingöngu verið eins konar sýnis- gripir við hátíðleg tækifæri, og til skrauts kringum keisarann eins og lífverðir kon- unga nú á dögum. Væringjar voru og héldu áfram að vera framúrskarandi her- menn, á sinn hátt eins og Miklagarðs- keisari sjálfur var fyrst og fremst góður hermaður. Þeir fylgdu keisaranum í öll- um stríðum hans og börðust í fremstu víglínu og tókst að halda velli. A hætt- unnar stund vörðu þeir keisarann og börð- ust harðfengilega við hlið hans, stað- ráðnir í að verja líf hans til síðasta manns. Hvenær sem ríkið var í bráðri hættu vegna innrásar barbara, voru þeir sendir í skyndi til þess að skakka leik- inn. Innrásir af hálfu barbara voru mjög tiðar, og þá voru Væringjar settir til varnar á múrum borgarinnar við hlið annarra hermanna og staðarfólks. Og þó að engin styrjöld geisaði í svip, var ekki kyrrð og friði að fagna hjá Væringjum. Hlutverk þeirra var að verja keisarann, en hann var alltaf í yfirvofandi lífshættu. Ættingjar hans og hirðmenn voru sífellt að brugga samsæri og alls konar óánægðir menn blésu að glæðunum. Uppreisnir voru gerðar og tilraunir til stjórnarbylt- inga, herforingjar létu hrópa sig til keis- ara að rómverskri fyrirmynd og beindu síðan her sínum að Miklagarði til þess að hrifsa völdin þar. En Væringjar mættu öllum samsærum með hugrekki og sýndu keisaranum ætíð skilyrðislausa hollustu. Sagnaritarar skýra svo frá, að oft hafi þeir varið keisarann til hins ýtrasta og kostað til þess lífi sínu, barið niður upp- reisnir og átt í höggi við heri þeirra manna, sem sjálfir létu kalla sig keisara og vildu sölsa undir sig völdin. Eins og að líkum lætur, launaði keisarinn þjón- ustu Væringjanna ríkulega. Eftir hverja herferð með keisaranum, eftir hverja sig- urvinning og í hvert sinni sem gengið var milli bols og höfuðs á einhverjum uppreisnarseggnum, voru gefnar margar gjafir og verðlaun auk þess hluta her- fangsins, sem hermennirnir áttu heimt- ingu á. Væringjaforingjarnir voru hækk- aðir í tign og þeirn gefnar stórgjafir, sem gerðu þá að auðugum mönnum. Yfir- maður lífvarðarsveitarinnar var sæmdur nafnbótinni Proximus, sem er titill fylgd- armanns keisarans. Þessi nafnbót gaf hon- urn rétt til að ganga hið næsta keisaran- um, ræða við hann, sitja iðulega við borð hans, vera fulltrúi hans í framandi löndum sem sendiherra hans við samn- ingagerðir og málsvari í mikilvægum er- indum. Sagnaritarar kalla hann oft „Herrann af Varangia". Aðrir foringjar Væringja voru einnig hátt settir liðsfor- ingjar. Væringjar kunnu ekki grísku, og því gerðust menn til að læra mál þeirra og réðust til þeirra sem túlkar og voru kall- aðir Væríngjatúlkar. Fyrirliði þeirra var nefndur Stórtúlkur Væringjanna og skip- aði sæti meðal æðstu tignarmanna i Miklagarði. Á honum hvíldi sú skylda að flytja Væringjum boð og fyrirskipanir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.