Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.10.1960, Qupperneq 37

Andvari - 01.10.1960, Qupperneq 37
ANDVARI VÆRINGJAR 227 Paflagonas. Haraldur var settur yfir Vær- ingjasveitina og barðist mjög hraustlega gegn múhammeðsmönnum á Sikiley og kom aftur til Konstantínópel og þá gerði konungur hann að „manglabítes", sem líklega merkir yfirmaður lífvarðarins. Hann fylgdi keisaranum á herferðum og barðist eins og hetja og góður drengur. Þegar þeir komu aftur til borgarinnar var Haraldur gerður að „Spatharokandidat", en það var mjög mikil virðingarstaða og mundi ef til vill mega kallast staða yfir- skutilsveins keisarans. Þegar Konstantín Monomakos, þriðji maður Zóe drottn- ingar varð keisari, virðist hetjan frá Norðurlöndum ekki hafa átt upp á pall- borðið við keisarahirðina í Miklagarði, heldur hafa reynt að komast á brott frá borginni. Hann var hnepptur í varðhald í kastala, en honum tókst að strjúka og komast til heimalands síns, en þar tók hann við konungdæmi eftir Júlavos bróð- ur sinn. Þetta er það sem hinn nafnlausi býzanzki sagnaritari veit um Harald vopnabróður sinn, en það nægir til þess að sanna, að fornar norrænar sagnir fara með rétt mál í aðalatriðum, þó að aukið hafi verið við síðar. Ef við nú gerum ráð fyrir, að áletrunin á Pireus-ljóninu sé rétt lesin, verður að álíta, að Haraldur sá sem þar er nefndur foringi Væringja, sé enginn annar en hin norræna hetja og síðar konungur Norð- manna. Ef hann hefur komið til Aþenu til þess að berja niður einhverja uppreisn, sem ekki er vitað hvenær gerðist, hlýtur það að hafa verið annaðhvort þegar hann fór til Sikileyjar til að slá Serki eða í leiðangri hans gegn Búlgörum, sem kom- ust alla leið í námunda við borgina Þebu, skamrnt frá Aþenu. Þá verður að teljast líklegt, að hin fræga norræna hetja hafi ekki látið sér nægja að koma við í höfn- inni Pireus, heldur dvalizt á klassískri grund Pallas Aþenu í nokkra daga, farið upp á Akrópólis og svipazt um í Parthen- on-hofi, sem þá var kirkja heilagrar Maríu. Upp úr rniðri 11. öld urðu ferðir nor- rænna hermanna frá Eystrasalti til Mikla- garðs gegnum Rússland mjög örðugar, ef ekki ógerlegar. Hvort tveggja var, að hin nýja gerzka þjóð var að verða meira og rneira slafnesk og hafði engan áhuga á að vernda og býsa fjarskylda ættingja fornra höfðingja í Novgorod og Kiev og löndin austan Eystrasalts voru hrjáð af innrásum og stríðum. Norðurlandamenn tóku þá að fara aðra leið til Býzanz, um Norðursjó, Atlantshaf og Miðjarðarhaf. Um þessar mundir lagði Vilhjálmur, her- togi af Normandí, England undir sig, og þá neyddust margir Danir og aðrir Norðurlandamenn til að flýja Bretland og leita til Miklagarðs, þar sem þeir voru ráðnir sem málaliðar í Væringjasveitun- um. Svo virðist sem margir aðrir Norður- landamenn hafi einnig fyllt þennan flokk. Ef til vill hafa þeir farið hina sömu leið, komið við undir ströndum Bretlands, og þar kunna landar þeirra að hafa slegizt í för með þeim. Þegar svo var komið, að Væringjar Miklagarðs voru að miklu leyti frá Eng- landi komnir, kemst allmikill ruglingur á hugmyndir manna um þjóðerni þeirra. Margir sagnaritarar fara að kalla þá „Inglions", þ. e. Englendinga, og má nefna rnörg dæmi sem sanna, að þeir töldu þá enska menn og mál þeirra ensku. En allt er þetta mjög á reiki. Væringjar þeir, sem komu til Býzanz um Mið- jarðarhaf, voru alltaf Norðurlandamenn, annaðhvort beint frá Norðurlöndum eða frá Englandi. Og málið, sem Væringjar í Býzanz töluðu, var ekki enska, og satt að segja hefðu Býzanzbúar alls ekki getað heyrt mun á ensku og máli norrænna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.