Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 40

Andvari - 01.10.1960, Síða 40
230 WILLIAM IIEINESEN ANDVART Hinar meinfýsnu ægisdætur hljóta að hafa hatað Thygesen skipstjóra alveg sérstaklega mikið. Hann var gamall maður með rauðpokað andlit, sem alltaf lýsti einhverri andhælislegri kátínu eins og þeirri, sem birtist í svip rnanna á undan hnerrakasti, og jafnvel höfuðskepnurnar virtust geta vakið þessa kæti. Strange fyrsti stýrimaður var alvörumaður og gat ekki þolað þetta eilífa áhyggju- leysi skipstjórans; honum fannst það ekki heilbrigt, stafaði sennilega af æða- kölkun á háu stigi. Það var ástæðulaust að hlæja að öðru eins veðri og þessu, tíu vindstig og útlit fyrir vaxandi storm, og það í hafi þar sem rekduflin voru eins og rúsínur í hrísgrjónagraut. Skipið hafði andæft í átján stundir og öll von úti uin að komast heim fyrir jólanótt. Strange stýrimaður sá í anda konuna sína og litlu dæturnar þrjár sitja og horfa lúpulegar og gleðivana á uppljómað jólatré — ef þær hefðu þá yfirleitt nokkuð hirt urn að kveikja á því. Þegar illt er í sjó, breytist farþegaskip í sannkallað sjúkrahús, allt angar sterkt og óhugnanlega af galli og umsnúnum innýflum, uppsölubökkum og kamfúrudropum. Út úr þröngunr farþegaklefum heyrast lág örvæntingarkvein og gjallandi bænir, ásamt hóstum og niðurbældum kverkahljóðum. Sjóveiki er reyndar ekki lífshættuleg, en henni fylgja þjáningar eins og í ormagarði, og hún er í afskræmdri mynd forsmekkur dauðans og eyðileggingarinnar, sem híðtir okkar allra að lokum. Fórnardýr hennar engjast rétt eins og þeir for- dæmdu í helvíti Dantes, þó þeir séu líkamlega ekki eins skrafhreifir. Þegar þannig stendur á, eru gerðar takmarkalausar kröfur til jómfrúarinnar; af henni er beinlínis heimtað, að hún geri kraftaverk og frelsi sálir. Jómfrúin á öðru farrými var sautján ára íslenzk stúlka. Idún stóð sig vel og gerði það sem hún gat næstum því heilan sólarhring, en þá lét hún bugast og varð sjúklingur. og enginn svaraði, þótt hinir sjóveiku hrópuðu og bæðust miskunnar. Þjónninn Ornfeldt, sem annars hafði setið í makindum uppi í tómum rnatsal og spilað dóminó við eina farþegann, sem var á fótum, varð að koma til skjalanna. Það var honum engan veginn að skapi. Hann reyndi að blása lífi í yfirkomna stúlkuna. — Þú getur ekki verið þekkt fyrir þetta, María! sagði hann í umvöndunar- tón. Skipsjómfrú getur ekki látið bjánaskap eins og sjóveiki á sig ganga. Þetta er líka engin veiki, það er ímyndun og ekkert annað! Stúlkan lá í svíma og svaraði ekki. Svitadropar stóðu þétt á enninu á henni, hárið var strítt og ljósrautt á lit. Hún hafði Ijós bráhár eins og kálfur. Hún var í öllum fötunum og rækilega vafin innan í pils og svuntur og drasl. — Þú gætir nú tínt af þér eitthvað af þessum leppum, sefn þú vefur utan um þig! sagði þjónninn. Aklrei á ævi minni hef ég séð aðra eins múnderingu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.