Andvari - 01.01.1971, Blaðsíða 13
ANDVARI
HIÐ ÍSLENZKA ÞJÓÐVINAFÉLAG
1]
Engan þann, sem fylgzt hefur með stjómmálabaráttu síðustu fimm ára-
tuga, þarf að undra, þótt deilur manna og flokka bafi á stundum breitt horn
sitt yfir kosningar á aðalfundum Þjóðvinafélagsins innan alþingis. Hitt sætir
meiri furðu, hversu sjaldan slíks gætir. Er þá sennilegast, að samkomulag hafi
oftast tekizt fyrir aðalfund um, hverja kjósa skyldi.
Lengi vel voru meðstjórnarmenn í Þjóðvinafélagi kallaðir ritnefndarmenn
og skiptu ekki formlega með sér störfum. Vom nöfn þeirra jafnan birt á kápu
Almanaks, og á Almanaki ársins 1942 er í fyrsta skipti talað um forseta, vara-
forseta og meðstjórnendur. Lengur er þó slegið úr og í um þetta í gerðabók,
en nokkru fyrr, eða 1935, er að tillögu Barða Guðmundssonar ákveðið, að
stjórnarmenn (eða ritnefndarmenn) skuli skipta með sér störfum á fyrsta sam-
eiginlegum fundi eftir aðalfund 'hverju sinni.
Áður hefur verið getið embættismannakosningar í félaginu 1921. Á aðal-
fundi 8. maí 1923 fór ritnefndarkosning sem hér segir: „Prófessor S. Nordal
37 atkv., skólastj. Magnús Helgason 34 atkv. og Guðm. Finnbogason prófessor
ineð 18 atkv. með bundinni kosningu milli hans og Guðm. Björnsonar." —
Sömu menn voru endurkosnir 1925, 1927, 1929, 1931 og 1933.
Þessi eindrægni landsfeðranna virðist um sinn á enda, er haldinn var aðal-
fundur miðvikudaginn 5. desember 1934. Var þá viðhöfð listakosning í rit-
nefnd, og komu fram þrír listar:
c) A-listi: Þorkell Jóhannesson
Barði Guðmundsson
B-listi: Guðm. Finnbogason
Magnús Helgason
Sigurður Nordal
C-listi: Magnús Helgason
Guðm. Finnbogason
Bogi Ólafsson.
Kosningin féll þannig:
A-listi fékk 25 atkvæði
B-listi fékk 16 atkvæði
C-listi fékk 4 atkvæði.
Kosnir voru því: Af A-lista Þorkell Jóhannesson og Barði Guðmundsson, en
af B-lista Guðm. Finnbogason.
Á næsta aðalfundi, 22. des. 1937, voru sömu menn endurkosnir, sjálf-
kjörnir bver af sínum lista, og 14. des. 1939 einnig sjálfkjömir, en þá allir
á sama lista. Sama endurtók sig vorið 1941.