Andvari - 01.01.1971, Blaðsíða 18
16
BERGSTEINN JÓNSSON
ANDVARI
ég, að halda megi fræðiritaútgáfunni nokkurn veginn í horfi, ef styrkur til
félagsins yrði settur 3000 kr. eða að minnsta kosti látinn halda sér eins og
hann er í ár.....“
Ríkisstyrkurinn var 1000 kr. fyrir 1923 og eins 1924, en það ár var auk
þess 5000 kr. styrkur til fræðiritaútgáfunnar. Kostnaður við fyrstu bókina í
þeim flokki varð hins vegar kr. 6221,60, svo að eðlilega var hægt að selja
hana vægu verði.
I árslok 1923 skuldar félagið kr. 3190,05, og þá íslandsbanka. Á næsta
ársreikningi, 1924, er skuldin úr sögunni, en þá á félagið í sjóði kr. 1048,74,
auk bókaleifa og bankavaxtabréfs (200 kr.).
Síðan hefur hagur félagsins yfirleitt verið allgóður, þó að tölur á reikn-
ingum séu ekki einhlítar vegna verðfalls peninga síðustu áratugina.
Starfið.
Andvari, tímarit Hins íslenzka þjóovinafólags, er eins og alkunnugt er beint
framhald af Nýjum félagsritum. Kom síðasti árgangur félagsritanna út 1873,
en Andvari hóf göngu 1874. Lengi vel var hann í sama fonni og félagsritin
höfðu verið, en einbeitti sér þó lengi öllu meira að náttúrufræðilegum efnum.
Stjórnmálagreinar flutti hann þó oftast árlega þau árin, sem deilumar um
endurskoðun stjórnarskrárinnar stóðu sem hæst i lok síðustu aldar. Árið 1880
flutti hann sem forystugrein æviágrip Jóns Sigurðssonar, og hefur sú venja
haldizt síðan, að hver árgangur Andvara hefjist á æviágripi nýlátins merkis-
manns. Eru söguþættir þessir því orðnir býsna margir og sumir hinir merk-
ustu, þó að margir þeirra beri þess ef til vill óþarflega glöggt vitni, að þeir
eru ritaðir af alúðarvini 'hins látna, áður en sá sem greinin fjallar um er kom-
inn í þann fjarska, að greina megi rétt hlutföll í rnynd hans.
Um efnisval Andvara 1915—1958 má bezt fræðast í 83. árg., 1958, en þá
kom hann síðast út í sinu gamla formi. Llefur hann síðar verið meiri um sig
á alla vegu og efnisval hans líkast til verið öllu fjölbreyttara en lengstum áður.
Ritstjórn Andvara önnuðust stjómendur félagsins yfirleitt í sameiningu,
venjulega fyrst og fremst forseti að því er virðist. En ófáir eru þeir stjómar-
nefndar- (eða ritnefndar-) fundir í félaginu, sem einkum eða eingöngu hafa
snúizt um greina- og höfundaval í Andvara og Almanakinu. Frá og með 1959,
84. árgangi, hafa sérstakir ritstjórar annazt Andvara. Gils Guðmundsson og
Þorkell Jóhannesson vom ritstjórar 1959, en 1960 tók Helgi Sæmundsson við
af Gils, og voru þeir Helgi og Þorkell saman ritstjórar, unz Þorkell lézt í október
i