Andvari - 01.01.1971, Blaðsíða 141
ANDVARI
UM ÞJÓÐLEGAN METNAÐ JÓNS SIGURÐSSONAR
139
inni í þeim efnum, svo að forstöðumenn félagsins verði sannnefndir
forstöðumenn þjóðarinnar. Við eigum að reyna að hjálpast að til að
veita frarn þeim lífsstraumi, sem rennur undir niðri og vill fá framrás.
Skólapiltar, sem ætti að vera fjörugastir, ætti fremstir í flokki að hvetja
almennt til samtaka og til framkvæmdar í allri atvinnu til sjós og lands,
en forðast þessa sérvizku og útúrdúra, sem því miður hafa sýnt sig stund-
um, og ekki sízt hjá embættismönnunum. Þeir sem taka bezt eftir göll-
unum, ætti að geta bezt lýst þeim og varað við þeim. Það má líka vera
mönnum til upphvatningar, að ekkert félag hefir enn í dag á íslandi
haft eins fljótan viðgang og Þjóðvinafélagið. Það er handvömm, ef það
fer, og það er hviklyndi landa vorra, og einurðarleysi, sem dregur það
niður. Mér finnst, að það megi vera hægt fyrir yður og hvern gáfaðan
pílt að sýna og sanna þetta og að sameina ykkur við Magnús Andrésson,
Láms Halldórsson og aðra góða drengi til að halda góðu fjöri í félaginu;
og þó forstöðumennirnir yrði daufir, þá er ykkur engin vorkunn að hafa
fram það sem þarf, semja ritgjörðir og senda mér, hvetja unglinga til að
læra það, sem til atvinnu heyrir, lista og frægðar, og svo útvega fé, sem
megi hafa til að styrkja slíka menntun. Eg vona að geta stutt nokkuð að
þessum framkvæmdum, ef fé er fyrir hendi, og því má safna um allt
land. Ef þér hafið athugasemdir þessu til gagns, þá komið með þær.
Takið þér þessar tvær konur og blásið í þær einurðinni, svo þær hveti
okkur betur og vinni allt kvenfólkið."
45. Til Halldórs Kr. Friðrikssonar (I, 628).
Kaupmannahöfn, 26. september 1876.
Jón ver ritgerðir þær, er birtar voru í 3. árgangi Andvara 1876, m. a. rit-
gerð Sveins Sveinssonar: Um meðferð mjólkur og smjörs og um osta tilbúning.
,,Ritgerð Sveins játar þú sé góð, og um það erum við samdóma, en
þér þvkir eyðsla að prenta hana sér í lagi auk þess, sem hún er í Andvara.
Elitt er annað mál, að ekkert verði lesið, hvorki lnin né annað, sem
snertir húfræði, en þú veizt sjálfur, að það er tilgangur okkar að reyna
að vekja eftirtekt á því, sem viðvíkur atvinnu til sjós og lands. Annað-
hvort er það að hreyfa ekki við þessum efnum eða nudda á þeim aftur
og aftur til að reyna að vekja hinn sofanda. Ef ekkert er hreyft um
önnur efni en þau, sem alþýða vill, þá er bezf, að Þjóðvinafélagið fái
Símon Dalaskáld til að yrkja.