Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1977, Blaðsíða 98

Andvari - 01.01.1977, Blaðsíða 98
96 VALDIMAR BJÖRNSSON ANDVARI Mér finnst, þegar ég er kominn á Þing- eyingafund og boðið að flytja þar ræðu, að það sé sannarlega hægt að vera „allra sveita kvikindi". Sjálfsagt er ég Amerí- kani - en með tilliti til íslenzka upprun- ans þá hef ég frekar talið sjálfan mig Aust- firðing. Ég hafði þann heiður að mæla fyrir minni kvenna á Austfirðingamótinu nýlega - og þá heyrði ég einhvern segja, þegar ég gekk fram hjá tveimur mönnum: „Hvað er þessi að gera hérna? Ég hélt hann væri Breiðfirðingur." Ég hafði, nefnilega, flutt ræðu á Breiðfirðingafundi fyrir skömmu og gat sagt, að mér væri heimill aðgangur þar, því að móðir mín er fædd í Dölunum. En faðir minn er fæddur í 'Norður-Múlasýslu, og byggð sú í Minnesota, þar sem ég fæddist og ólst upp, var algerlega Austfirðingabyggð - nærri því eingöngu Vopnfirðingabyggð. íslendingar geta samt rakið ættir sínar til flestra landsfjórðunga, og þannig er það, að ég slepp hingað inn til Þingeyinga, af því að föðurannna mín, hún Kristín heit- in Benjamínsdóttir, var fædd í Axarfirð- inum, komin í fjórða ættlegg af Skíða- Gunnari. Amma fór austur á Hérað barn að aldri, en ekki man ég til þess, að hún hafi nokkurn tíma gleymt því, að hún væri fædd Þingeyingur. Sumum mun finnast það einkennilegt, að svo mikil áherzla sé lögð á það að halda uppi fjórðungsfélögum hér í höfuð- staðnum. Og ekki eru það bara fjórðungs- félög - maður hefur lesið um fundi Esk- firðinga, Stokkseyringa og Eyrbekkinga, að nefna aðeins fáein dæmi, hér í Reykja- vík. Kannske þetta gangi of langt, en fólk hefur gaman af því, og varla gæti það talizt skaðlegt. Það er ekki frítt við það, að það sé hroki og þröngsýni í þessu margumtalaða sveitaáliti, sem virðist vera svo ríkt í eðli Islendinga. En ég ætla alls ekki að fara að gagnrýna það - hér er hvorki staður né stund til þess. Það væri miklu skárra, ef ég reyndi bara að segja eitthvað smávegis um Þingeyinga í byggð- inni okkar fyrir vestan - því að þótt flest fólk þar hafi verið af austfirzkum upp- runa, þá höfðum við fáeina dugandi Þing- eyinga, innan um og saman við. Það var, til dæmis, hann Guðmundur Grímsson í byggðinni okkar í Minnesota, sem kallaði sig Dalmann. Hann var Þing- eyingur, varð sveitarómagi austur á I lér- aði og fór á tvítugsaldri með ‘stóra hópn- um’, sem kom til Minnesota fyrir 65 ár- um, árið 1879. Guðmundur hafði engar kærar endurminningar af gamla landinu, og það var kannske eðlilegt. Hann hafði aldrei þekkt annað en fátækt; þrátt fyrir aldurinn tók hann út vöxt eftir að hann kom vestur, því hann hafði ekki náð eðlilegum þroska bara vegna hungurs, kominn á hreppinn og látinn þræla, solt- inn og lúinn, austur á Fljótsdalshéraði. Hann sagði einu sinni við mig: „Ja, þeir hugsuðu ekki mikið um okkur börnin þarna heima í mínu ungdæmi. Þeir heimt- uðu það eitt, að við yrðum fermd og bólu- sett, og þá var skyldunni fullnægt." Guð- mundur var hnyttinn, stundum nærri því meinyrtur. Hann samdi stundum smásög- ur, er birtust í Heimskringlu fyrir fjölda mörgum árum. Hann hélt við þeim gamla íslenzka sið, að uppnefna fólk. Einhverj- um mistókst að fyrirfara sér, missti bara annað augað; síðan var hann alltaf ‘Jón hálfskotinn’ hjá Guðmundi þaðan af. Sér- vitur karl, sem gat alltaf sagt öðrum til um nærri því allt milli himins og jarðar, varð ‘ráðgjafinn’; lögfræðingur - sem var líka bóndi - og fæddur, vel að merkja, í Bárðardalnum í Suður-Þingeyjarsýslu, fékk þann heiður að vera beint út ‘Njáll’, og allt eftir því. Dalmann var hrifinn af Ameríku, eins og svo margir aðrir vestur- farar. Hann hafði verzlun í næsta húsi við prentsmiðjuna, þar sem ég ólst upp. Einu sinni var hann að sýna landa einum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.