Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1977, Blaðsíða 122

Andvari - 01.01.1977, Blaðsíða 122
120 PÁLL BJÖRNSSON ANDVARI fyrir sjálfum oss og fram leiða, svo sjáist hans lýti. Ekkert sinni afmyndar svo andlitið, né flekkar svo yfirlitin, eður gjörir hann illúðlegan. Oll augnanna hýra yfirgefur þá reiðu. Fötin á líkamanum lætur reiðin flaka út í loftið. Hárið flæk- ist um kinnarnar, æðarnar bólgna, brjóstið másar, hljóðaorgið grenjar, liðirnir skjálfa, hendurnar aldrei kyrrar. Allur líkaminn gengur upp og niður. Augun sem brennisteins eldur, yfirbragðið sem sót, stundum bleikt, stundum bólgið. Tennurnar gnísta, sem þær væru að gófla á seigu. Höndunum samanbarið, var- irnar skjálfa. Allt það illt djöfullinn kann hugsa á tunguna, þá blístrað, þá bölvað, þá brigzlað. Allt hvað Satan getur til tínt, ber hann að þeim eldi, hvörn liann setur í þetta púður. Hvílíkan ætlar þú þá innri manninn og hjartað, hvörs svo herfileg mynd sést svo útvortis? Hvað óguðlegra skal vera yfirbragðið innvortis? Ákafari andi, gríðuglegri urribrot, víst kroppinn sprengjandi nema rennsli næðu. Líka sem þeir gömlu uppmáluðu gríðirnar girtar ormum og eld- gusum af munninum. Eður ef þú vilt, leika sem Granatus [byssukúla] með púðri og járnmolum fljúgandi. Vil eg þó varla trúa, að fullt contrafej [spegil- mynd] þessa lösts verði af nokkrum appelle [ákæranda] svo málað sem í sjálfri reynslunni finnst sig að útrýma." Eftir þennan lestur geta menn skemmt sér við að velta vöngum yfir því, hvort „meistari Jón“ hefur haft ritgerð séra Páls fyrir augunum eða kvæði Gregóríusar um reiðina, er hann útmálaði heiftina með slíkum kynngimögn- uðum orðum. Skiptir það í sjálfu sér nokkru máli, þar sem honum tókst að gera betur en séra Páll í þessu ákveðna dæmi? Ekki held ég það. En þetta sýnir þau tengsl, sem voru á milli þessara frænda og andlegu stórmenna sautjándu og átjándu aldar. Séra Þorsteinn Pétursson á Staðarbakka kunni eina slúðursögu um „meistara Jón“. Hún er þannig: „Og þótt menn kunni að liafa lærdóm og gáfur embætt- isins, þá eru þó dæmi til þess, að slíkir hafi strandað í prédikun, svo sem skeð skal hafa vorn nafnfræga sál. biskup Vídalín, þá hann á vísitazíureisu prédikaði hjá frænda sínum, síra Páli Björnssyni að Selárdal, hálærðum manni." (Þorst. Péturss., Sjálfsæfisaga, s. 16.) Þarna mættust tvær prédikarakynslóðir í einum og sama ættlið, og meistara Jón rak í vörðurnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.