Andvari - 01.01.1977, Blaðsíða 141
STEPHAN G. STEPHANSSON:
50 stökur
Finnbogi Guðmundsson valdi
Hinn 10. ágúst í sumar voru liðin 50 ár frá andláti skáldsins Stephans G.
Stephanssonar. í minningu þess hafa hér verið valdar 50 stökur úr Andvökum
hans og þá miðað við, að þær hafi þar birzt sem stökur, en væru ekki teknar
úr kvæðum. Sum þeirra eru full af erindum, er nytu sín einar sér engu síður
vel en þær stökur, sem hér fara á eftir.
Stökurnar eru birtar í aldursröð og fjalla um margvísleg efni, en flestar
lúta þær að lífsviðhorfi skáldsins. Náttúru- og veðurlýsingar eru margar, enda
Stephan manna veðurnæmastur. Þá eru nokkrar ferðavísur, ein t. a. m. frá
því er hann var staddur við Skotlandsstrendur á leið til Vesturheims, önnur
frá járnbrautarferð vestra, nokkrar úr heimförinni 1917. Stakan, sem hann orti
um Esjuna, þegar hann var að leggja af stað á skipi frá Reykjavík áleiðis til Aust-
fjarða, er hrífandi, og vísan úr Drangeyjarförinni um Gretti stórkostleg. Margar
stökur yrkir hann til vina sinna með góðum óskum og hefur þá tíðum fellt þær
inn í bréf til þeirra.
Fátt er hér ádeiluvísna, þótt þar sé af miklu efni að taka, en það er þá ein-
faldlega vegna þess, að oss þykja þær ekki eins snjallar og hinar, enda oft ortar
til manna, er voru naumast drápunnar verðir.
Þótt menn kannist við margar af þeim stökum, sem hér eru saman komnar,
eins og gamla kunningja, vonum vér, að þeir eignist nýja vini í sumum þeirra,
er sjaldnar hefur verið vitnað til, og allar saman bregði þær upp ljúfum og
lifandi myndum af skáldinu Stephani G. Stephanssyni, sem oss sé kært að
minnast, nú þegar hálf öld er liðin frá andláti hans.