Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1986, Side 76

Andvari - 01.01.1986, Side 76
74 GUNNAR KRISTJÁNSSON ANDVARI lausa andspænis miskunnarlausu valdi (flótdnn til Egyptalands); eða reynt að túlka von í vonsviknum heimi með skírskotun til jólabarnsins eða upp- risunnar, í vissu þess að slík skírskotun hefur einhverja merkingu í vitund lesandans? Það er verkefni guðfræðingsins að fjalla um hina guðfræðilegu þýðingu texta. Bókmenntafræðingurinn spyr ekki um hvað trúin sé í verkinu heldur hvernig: hvernig birtist hún í einhverjum ákveðnum texta, hvert er hlutverk hennar í honum? Hann kann að hafa áhuga á guðfræðilegum þáttum bók- menntanna — en þá er það væntanlega ekki vegna þess að þeir snerta trú hans eða vantrú heldur vegna þess að þeir tilheyra þeirri menningu, sem hann er sjálfur afsprengi af. Rétt eins og hann athugar hvernig sálgreining eða marxismi birtast í einhverju tilteknu bókmenntaverki án þess að hafa sérstakan áhuga á inntaki þeirra fyrirbæra að öðru leyti. Áhugi guðfræð- ingsins beinist oftast meir að inntakinu: gildi trúarinnar, þýðingu hennar. Margir líta svo á, að róttækar breytingar á hugsun og lífsviðhorfum eigi sér stað í samtímanum, eitthvað svipað því, sem gerst hefur þegar eitt menningarskeið víkur fyrir nýju og heildarskilningur manna á mörgum meginþáttum lífs- og heimsskilnings tekur breytingum. Hið gamla verður merkingarlítið en við tekur ný heildarsýn (paradigma), þar sem nýjar hug- myndir ráða og ný sannfæring tekur völdin. Það er guðfræðinni lífsnauð- syn að skynja og skilja tímanna tákn að þessu leyti1). Til þess lítur guðfræð- in meðal annars til bókmenntanna. Ekki aðeins til þess að skilja tímann betur, heldur einnig til þess að huga að þeim sessi, sem trúnni er ætlaður í hinni nýju vitund nýs tímabils. Bókmenndrnar hafa sýnt það svo ekki verður um villst að þær eru þess megnugar að skilgreina og túlka reynslu mannsins, ekki síður en hin sundurgreinandi vísindi. Stríðið, firringin, eyðingin, óttinn, vonin: allt er það ítarlega krufíð og túlkað í ýmsum grein- um samtímabókmennta. Áhugi guðfræðinnar beinist að því meðal annars, hvernig hún sjálf speglast í bókmenntum hins nýja tíma, hún sjálf og sá boðskapur, sem hún fæst við. Staðreyndin er sú, að bókmenntir samtímans fjalla mjög um atriði, sem höfða til guðfræði og trúar. Þess vegna getur guðfræðin litið á skáldið og raunar listamenn yfirleitt sem samverkamenn í nýjum skilningi. Guð- fræðin er því ekki að leita að „kristnum" skáldum, heldur hefur hún áhuga á skáldinu, sem túlkar mannlega reynslu og finnur æðaslátt samtíðarinnar. Slík verk hljóta að kalla á athygli guðfræðingsins sem fæst við sömu spurn- ingar og telur sig einnig þess umkominn að benda á einhver svör. En hvers virði eru svör trúarinnar? Skilst tungutak hennar? Bókmenntirnar geta gefið til kynna, hvers virði svör trúarinnar eru í mannlegri reynslu. í grein þessari verður í fyrstu reynt að gera almennt grein fyrir þeirri meginhugsun, sem býr að baki ljóðum Snorra Hjartarsonar en í framhaldi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.