Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1986, Page 163

Andvari - 01.01.1986, Page 163
ANDVARI „ÞAÐ LÝSTI OFT AF HONUM .. “ 161 Þaó sem hér fer á eftir á ekki að verða ritdómur, heldur hugleiðingar og minningabrot sem vaknað hafa við lesturinn, svo og kynning á nokkrum efnisflokkum ritsins. 2 Þegar ég var að alast upp vestur í Önundarfírði fyrir um það bil sextíu árum, barst þangað orðstír Vilmundar héraðslæknis á ísafirði. Hann var mjög umtalaður og umdeildur maður. Flestir töldu hann ágætan lækni. Það voru fyrst og fremst stjórnmálaafskipti hans sem deilunum ollu. Samherj- arnir dáðu Vilmund og áttu varla nógu sterk orð til að lýsa leiftrandi gáfum hans, hugkvæmni og framkvæmdaþreki. En andstæðingarnir ýmist hötuðu hann eða báru fyrir honum óttablandna virðingu. Hann var í þeirra augum snjallasti og hættulegasti erkibolsinn í rauða bænum ísafirði. Og þegar ég stálpaðist og bókmenntasmekkur minn efldist til þeirrar hlítar, að mér tóku að þykja Bréf til Láru og Vefarinn mikli frá Kasmír hvað bestar bóka, var ekki ónýtt að frétta að höfundarnir snjöllu, Þórbergur og Laxness, væru eins og gráir kettir á ísafírði hjá Vilmundi. Og ekki leið á löngu uns undir verndarvæng hans var einnig komið vestfirska sagnaskáld- ið Guðmundur Gíslason Hagalín. Hefur það víst hvorki gerst fyrr né síðar að héraðslæknir í afskekktum landshluta hefði hirð verðandi höfuðskálda í kringum sig. Þegar Vilmundur Jónsson settist að á ísafirði að loknu framhaldsnámi haustið 1919, voru þar miklir umbrotatímar. Þau hin sömu missiri urðu gömul útgerðar- og verslunarfyrirtæki í bænum gjaldþrota, en önnur drógu saman seglin, skip voru seld burtu og alþýða hafði rýra atvinnu eða enga. Á þennan stað „gjaldþrota kapítalista“ kom Vilmundur, ungur hug- sjónamaður, gagntekinn af boðskap jafnaðarstefnunnar, og hóf undir merkjum samhjálpar og samvinnu baráttu fyrir nýrri skipan bæjarmála. Hann stóð ekki einn í baráttunni. Þarna var fyrir nokkur hópur jafnaðar- manna undir forustu sérkennilegs gáfumanns, Guðmundar Guðmunds- sonar, fyrrverandi prests í Gufudal. Haraldur sonur hans og fleiri ungir vaskleikamenn létu og að sér kveða. Og árið 1920 bættist í hópinn Finnur Jónsson, síðar alþingismaður og ráðherra. Þeir Vilmundur og Finnur sneru strax bökum saman og urðu ótvíræðir foringjar jafnaðarmanna í bænum. Og þeim varð afar vel ágengt. Þegar árið 1921 náði Alþýðuflokk- urinn meirihluta í bæjarstjórn ísafjarðar og styrkti þann meirihluta enn í kosningum árið eftir. Fram til þessa tíma hafði bæjarstjórn þeirra ísfírð- inga þótt fjarska aðgerðasmá og afskiptalítil. En þar varð skjót breyting á. Undir forustu hinna ungu fullhuga hófst mikið framkvæmdatímabil, jafnt á sviði heilbrigðismála, félagsmála og atvinnumála. Er af því mikil saga, þótt hér verði ekki rakin. 11
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.