Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 20
18
KRISTINN KRISTMUNDSSON
ANDVARI
þrátt fyrir þjáningar sjóveikinnar, svefnleysi og mikla þreytu í fiskihrotum og
iðjuleysi í frátökum.7
Athyglisvert er hvaða atriði sjósóknarinnar voru löngu síðar minnistæð-
ust skólastjóranum til eftirbreytni:
Nákvæmni, þegar ýtt var frá landi og í lendingu, sameining mannsaflsins og
órofa samheldni skipshafnarinnar alltaf og allsstaðar, þegar þess var krafizt.8
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði var stofnaður 1882, næstfyrstur
íslenskra gagnfræðaskóla, Möðruvallaskóli í Hörgárdal var tveimur
árum eldri. Skólastjóri Flensborgarskóla frá stofnun hans til ársins
1908 var Jón Þórarinsson, síðar fræðslumálastjóri. Hann var sem kunn-
ugt er meðal helstu frömuða og forgöngumanna alþýðumenntunar á
íslandi. Hann hafði kynnt sér uppeldis- og skólamál bæði í Danmörku,
Þýskalandi og Englandi. Samkennarar hans á skólaárum Bjarna Bjarna-
sonar voru m.a. Jóhannes Sigfússon, síðar menntaskólakennari, sr.
Magnús Helgason, sem varð skólastjóri Kennaraskólans við stofnun
hans 1908, og Ögmundur Sigurðsson frá Kröggólfsstöðum í Ölfusi sem
tók við skólastjórn af Jóni Þórarinssyni þegar hann varð fræðslumála-
stjóri 1908. Flensborgarskólinn var um þetta leyti tveggja ára skóli en
auk þess starfaði við hann kennaradeild frá 1896. Gagnfræðanemar litu
upp til kennaranemanna og reyndar voru mörg dæmi um að gagnfræð-
ingar réðust til kennslu. Fyrsta starfsár Kennaraskólans 1908-1909 voru
samskipti milli skólanna og gagnkvæmar heimsóknir. í afmælisviðtali
við Bjarna 75 ára kveðst hann hafa hrifist af gjörvilegum mönnum er
hann sá við þau tækifæri; einn þeirra nafngreinir hann sérstaklega,
Jónas Jónsson frá Hriflu, sem hann kveðst þá hafa séð í fyrsta sinn.9
Þessi kynni Bjarna af kennaraskólafólki urðu til þess að hann sett-
ist ásamt 22 öðrum í 1. bekk Kennaraskólans haustið 1909; hann var
þá þriggja ára skóli og lauk Bjarni þaðan kennaraprófi vorið 1912.
Samkvæmt prestsþjónustubók Arnarbælis fluttist hann frá Auðsholti
til Reykjavíkur árið 1910. Hann hefur þó flutt heimilisfang sitt
aftur að Auðsholti því að árið 1913 er hann meðal brottvikinna úr
Arnarbælissókn, titlaður kennari og þá sagður flytjast frá Auðsholti
til Hafnarfjarðar. Hann hafði lokið kennaraprófi 1912 og fengið kenn-
arastöðu það ár við Barnaskóla Hafnarfjarðar. Vigdís móðir hans mun
hafa verið í Auðsholti allt til 1914 því að til þess árs var hún sem fyrr
segir ljósmóðir í Ölfusi austan Varmár10. Hún fluttist til Reykjavíkur og