Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 31
ANDVARI
BJARNI BJARNASON
29
Bjarni Bjarnason skólastjóri á Laugavatni ásamt fjórum kennurum þar skólaárið
1930-31. Fremri röð f.v.: Guðmundur Ólafsson, Bjarni Bjarnason. Aftari röð f.v.:
Guðniundur Gíslason, Þórður Kristleifsson og Kristinn Stefánsson.
ætti hver nemandi að meta slíkt sér til inntekta og venja sig á að halda ódýrum,
smekklegum fötum vel hirtum, en ekki druslast í óþarflega dýrum fötum. Ef
þú kaupir nýtt þá ber þér skylda til að kaupa íslenzk föt og fataefni eftir því
sem mögulegt er. Meira en nóg fæst af sokkum, nærfötum og yfirfataefnum úr
íslenzku efni, unnið í landinu. Tilvera þjóðarinnar byggist á því að við lærum
að hagnýta okkar eigin vörur.
Til stúlknanna sérstaklega vil ég aðeins segja það, að ykkur varðar ekki um,
meðan þið eruð hér á Laugarvatnsskóla, hvað móðnum líður, heldur aðeins
um ykkar eigin efnahag. Eftir að þið komið hingað verður ykkur ekki leyft
að sauma neinar óþarfa flíkur, svo sem kjóla sem þið teljið ykkur þurfa vegna
tískunnar, en er ef til vill alls ekki nauðsynlegt af öðrum ástæðum. Það er lít-
ilsvirðing að ganga í dýrum fötum í annarri eins krepputíð og nú er. Það er
virðulegt að ganga í ódýrum fötum vel hirtum, auk þess sem það er sjálfsagt
efnalitlu fólki. Hreinsaðu og gerðu við gömlu fötin þín og láttu þau sem mest
nægja. Sparnaður, hagsýni, þrifnaður, smekkvísi er markmið sem þroskar og
mannar. Tíska og eyðsla eru fylgifiskar, sem unga fólkið verður að stjaka til
hliðar fyrir því að ryðja sér menningar og þroskabraut.
Sé þröngt um fjárhag en vilji á því að koma hingað í vetur, skaltu ræða við
mig um möguleika til þess að líða þig um eitthvað til næsta sumars. Þetta
getur þó því aðeins komið til mála að í öllum háttum sé sparnaðar viðleitni