Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 53
andvari
BJARNI BJARNASON
51
stjóraráðsins. Bjarni tók að sjálfsögðu þátt í þeim fyrir hönd héraðs-
skólans. Þrátt fyrir breytt valdahlutföll virðist samkomulag, samkvæmt
fundargerðum, hafa verið gott í aðalatriðum ef frá er talin deila Bjarna
°g Sveins Þórðarsonar, skólameistara menntaskólans, varðandi yfirráð
yfir gufubaðinu og vatnsströndinni sem héraðsskólinn vildi ekki láta af
hendi. Bjarni stýrði héraðsskólanum við þessar aðstæður rúmlega fimm
ár, nánar til tekið til ársloka 1958. Hann lauk þann vetur við að skrifa
sögu héraðsskólans í þrjátíu ár, þá sem hér er aftur og aftur vitnað til.
Hann hélt áfram búrekstri sínum á Laugarvatni sem hann hafði tekið
við af skólabúinu og haft samhliða skólastjórninni síðustu fimm árin.
Og eins og maður á besta aldri sneri hann sér nú í vaxandi mæli að
helsta hugðarefni sínu, hestamennskunni.
IX. Bóndi og hestamaður
Þess var áður getið að Bjarni ólst upp við sveitastörf og hafði alla
æv' áhuga á búskap. Bú hans í Straumi við Hafnarfjörð var rómað
fyrir myndarskap. Því ráðstafaði hann árið eftir að hann fluttist að
Laugarvatni, þ.e. 1930. Landkostir Laugarvatnsjarðarinnar hafa fangað
athygli hans og í skólasögu hans margnefndri er nákvæm lýsing þeirra
°g greinargerð fyrir búskap á jörðinni eftir að hún var seld til skólahalds
°g er farið eftir þeirri frásögn hér: Fyrstu sjö árin eftir að skólinn tók til
starfa bjuggu Laugarvatnshjónin á hálfri jörðinni en skólanefndin leyfði
hennurum að nytja hinn helminginn. Árið 1935 hættu þau Böðvar og
tngunn búskap og seldu skólanum umbætur og búpening. Næsta far-
öagaár, 1935-1936, var búið og hálf jörðin leigð Grími Ögmundssyni,
síðar bónda á Syðri-Reykjum í Biskupstungum. Árið 1936 hófst starf-
semi skólabús á allri jörðinni og var Bjarna falið að reka búið fyrir
skólans reikning. Skólabúið var rekið frá 1936-1953. Bjarni kveðst
sjalfur hafa unnið mikið að búinu fyrstu árin, smalað vor og haust og
unnið við heyskap á sumrin. Þegar menntaskólinn var stofnaður og túni
skipt milli skólanna voru fulltrúar ríkisins og Árnessýslu sammála um
að Jörðina yrði að leigja og eignir búsins að seljast. Fyrir lá að rífa yrði
§npahúsin sem stóðu rétt við menntaskólahúsið. Bjarna langaði að ráða
j^stu um gerð gripahúsa og nýrækt og er skemmst af því að segja að
Pað varð að samkomulagi við eigendur skólans að hann tæki jörðina á
eigu; gerður var við hann leigusamningur til lífstíðarábúðar og honum