Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 56
54
KRISTINN KRISTMUNDSSON
ANDVARI
öfundarlaust að taka við búi með nýreistum stórlega vönduðum húsum
yfir allan búfénað og halda jafnframt sem ábúandi sama íbúðarhúsi
sem almennt var litið á sem skólastjórabústað. Enda þótt kunnugir
vissu að Bjarna gekk það til að láta staðinn halda þeirri reisn sem hann,
og margir fleiri, töldu að best yrði gert með glæsilegum stórbúskap
urðu ýmsir til að mikla fyrir sér þá aðstöðu sem þarna var í té látin.
Mjólkursala hans til skólamötuneytanna var gerð að ásteytingarsteini. I
Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 15. júlí 1956 er bent á það að bændur
í Laugardal, sem selji mötuneytunum ógerilsneydda og óflokkaða
mjólk, fái sömu ríkisuppbót, 98 aura á hvern lítra, og mjólkurbúin fái
greidd í vinnslukostnað til að koma í veg fyrir að sá kostnaður lendi á
neytendum. Þannig fái þeir bændur 3,30 + 0,98 kr.= 4,28 kr. fyrir hvern
lítra, en aðrir bændur aðeins 2,60 kr. á lítra sem lagður var inn í mjólk-
urbúin. Bjarni er ekki nafngreindur en að honum sveigt: „Mun skýr-
ingin vera sú, að sami maður er í senn aðalframleiðandi landbúnaðar-
afurðanna til mötuneytisins og jafnframt forstöðumaður þess“92. Þetta
var meðan Bjarni var enn skólastjóri héraðsskólans. I öðru lagi ger-
breyttust viðhorf til landnýtingar. I stað eldri hugmynda um skynsam-
lega nýtingu lands komu hugmyndir um algera friðun. Þetta átti bæði
við um skóglendi og byggðu svæðin á staðnum. Þessi viðhorfsbreyting
gerðist ört. Árið 1967 undirrituðu skólastjórar á Laugarvatni, fjórir alls,
bréf til skólanefndar héraðsskólans, sem leitað hafði álits þeirra á þörf
staðarins fyrir búskap. Þar kveður við allt annan tón en nokkrum árum
áður þegar stórbúskapur á Laugarvatni þótti sjálfsagður:
Skólastjóraráð telur, að skólanna vegna sé ekki þörf á búskap á Laugarvatni.
Það telur að búskapur og skepnuhald á staðnum eigi enga beina samleið með
skólahaldi þar og geti því ekki orðið til eflingar eða stuðnings skólunum í því
starfi, sem þeim er nú ætlað að rækja og vænta má að þeim verði ætlað að
rækja framvegis. - Ennfremur vill skólastjóraráð benda á það, að skepnuhald á
staðnum getur torveldað nauðsynlega friðun hans.93
í ársbyrjun 1960 varð alvarlegur árekstur milli skólamötuneytanna
og Bjarna fyrir hönd búsins. Oánægja með mjólkina hafði komið upp
meðal nemenda. Almennt var álitið að óánægjan stafaði af því að æ
færri nemendur voru vanir ógerilsneyddri mjólk beint úr kúnni eins og
lengstum hafði verið einrátt í sveitum og fersk nýmjólkin jafnvel talin
betri og hollari ef geymsla og kæling var í góðu lagi. Til þess að ganga
úr skugga um gæði mjólkurinnar var sýnishorn tekið til rannsóknar