Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 21
ANDVARI
Guðmundur Björnsson landlæknir
17
bylgjuföllum í áherzluþunga og raddblæ, enda hafði hann mestu
skömm á að heyra kvæði lesin í belg og biðu, eða „strokkuð",
eins og hann kallaði það. Mun sumurn hafa þótt nóg um lætin
í landlækni, því að menn voru þá óvanir því að sjá og heyra
leikara lesa upp kvæði, en annars fékk þetta erindi góðan blaða-
dóm.
Það er til rnarks um fjölhæfni landlæknis, að hann var
stærðfræðingur ágætur, og var fingrarím eitt af því, sem hann
ritaði um, en það hafði hann lært í föðurgarði. Sjálfur sagði hann,
að hugur sinn á háskólaárum hefði mest staðið til að leggja stund
á ina „hærri mathematik", en ekki litizt það lífvænlegt lífsstarf.
Hugurinn leitaði út fyrir takmörk þess áþreifanlega eins og hjá
Faust, og eins og Faust veðsetti hann — ekki sál sína að vísu —
heldur heilsu sína og borgaralegt álit.
Arið 1918 olli tímamótum í ævi Guðmundar landlæknis. Á
íyrstu árum hans sem héraðslæknis gerðu sumir gys að varfærni
hans í meðferð næmra sjúkdóma og strangleika hans við sótt-
varnir. Síðar var honum legið á hálsi sem landlækni fyrir það
að hafa ekki sýnt næga aðgæzlu í þessu efni, en þá var mönn-
um fyrir tilverknað hans farin að skiljast nauðsyn þeirra. Vorið
1918 barst hingað allslæm inflúenza og gekk hún þá í tveimur
öldum, að vísu ekki verri en stundum áður. Um haustið barst
hingað þriðja aldan, in magnaða spanska veiki, versta drepsótt í
manna minnum, sem flæddi ylir allan heiminn, án þess að
vörnum yrði neinsstaðar við komið. Geisaði hún allan nóvember-
mánuð í Reykjavík, lagði a. m. k. 3/4 allra bæjarbúa í rúmið og
um 300 manns í gröfina. Allt afhafnalíf lamaðist, varla sást
maður á ferli, meðan veikin stóð sem hæst, hjúkrun öll fór í
bandaskolum og um tíma voru ekki uppi standandi nema 2—3
heknar, sem voru á ferðinni dag og nótt, og var landlæknir einn
þeirra. Að vísu voru af hálfu heilbrigðisstjórnarinnar gerðar þær
ráðstafanir, sem tiltækilegar voru, spítali settur upp í Miðbæjar-
skólanum og sjállTroðaliðar kvaddir til starfa þar og i Reykjavíkur-
apoteki, sem þá var eina lyfjabúð bæjarins.