Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 28
24
Barði Guðmundsson
ANDVARI
engu og var rauður sem dreyri. Þá voru þeir með Eyjólfi Kolbeinn
grön og Ari Ingimundarson . . . og voru þeir þá enn harðir í
tillögum við Gissur." (I, s. 481).1)
Hefndarbrýning Þuríðar er bér kjarni málsins. Hún hefur
þau áhrif, að Eyjólfur gerist litverpur. Þannig fór einnig fyrir
Flosa Þórðarsyni, er Hildigunnur í Vorsabæ eggjaði hann til
hefnda eftir Höskuld Hvítanesgoða. Var hann þá í „andliti stund-
um sem blóð,“ segir í Njálu (K. 116).2) Sanrdægurs ræðir svo Flosi
við menn sína um það, hvemig haga skuli vígsmáli Höskulds.
Tóku þeir þá báðir í „senn til orða, Grani Gunnarsson og Gunnar
Lambason: „Sektir viljum vér að fram komi og mannráð.“ (K.
117). Ekki er getið um harðræðistillögur annarra manna í liði
Flosa. Gegnir þannig sama máli um þá Grana og Gunnar sem
fylgdarmennina tvo hjá Eyjólfi á Möðruvöllum.
Eyjólfur Þorsteinsson ákveður að fara að Gissuri Þorvaldssyni
og þrem sonum hans, safnar liði og ríður til Skagafjarðar. „Og
er þeir komu til Skeljungsskála, segir Eyjólfur öllu liðinu, að
hann ætlar að stefna á Flugumýri öllum flokkinum að sækja Gissur
og sonu hans, annaðhvort með vopnum eða með eldi, ef eigi
fengi þeir öðmvísi sótt.“ (I, s. 485). Nálega sama sagan er sögð af
Flosa. Hann „stefndi öllum sínum inönnum upp í Almannagjá."
Bað þá vera komna á ákveðnum tíma á Þríhyrningshálsa og segir
síðan: „Mun ég nú og segja yður alla rnína fyrirætlun, að þá er
vér komum þar saman, skulu vér ríða til Bergþórshvols með öllu
liðinu og sækja Njálssonu með eldi og járni og ganga eigi fyrr
frá en þeir eru allir dauðir.“ (K. 124). Sóknaráform Eyjólfs og
Flosa eru nákvæmlega eins. „Öllu liðinu" skal skipað til árásar.
Fyrst skal beita vopnavaldi, en bera eld að húsum, ef ekki auðn-
ast að brjóta á bak aftur óvinina með öðru móti. Báðir foringjar
brennumanna líta á íkveikjuna sem neyðarúrræði.
Sturlungu og Njálu ber einnig saman um það, að hefndar-
áforminu sé beint gegn þremur hræðmm og föður þeirra. Sturl-
ungudæmið hefur þegar verið nefnt, en hliðstæðan í Njálu birtist
í samtali Ingjalds á Keldum og Hróðnýjar systur hans, sem á að