Andvari - 01.01.1955, Blaðsíða 37
andvari
Magnús Gizurarson Skál-
holtsbiskup.
Eftir Björn Þórðarson.
A þessum tíma, er Páll biskup Jónsson í annað sinn er orð-
inn „öllum mönnum ástgoði“ hér í landi, hvarflar hugurinn einnig
til eftirmanns hans á Skálholtsstóli, Magnúsar Gizurarsonar. ís-
lenzk kristni þjóðveldisaldar rann skeið sitt á enda við fráfall
hans. Hann var síðasti biskup hinnar þjóðlegu íslenzku kirkju
og kom oft við mál um sína daga, en þó fórst það fyrir hjá sögu-
riturum 13. aldar að taka saman sérstaka sögu hans, þótt næg
væru efni til, sem nú eru að mestu glötuð. Alla biskupstíð
Magnúsar Gizurarsonar geisaði öld ófriðar og upplausnar í land-
inu og svo hörmulega \'ildi til, að óöld þessi átti að miklu leyti
rætur að rekja til skapferlis og háttalags embættisbróður hans á
Hólastóli, Guðmundar góða Arasonar. Hér á eftir verður reynt
að tengja saman og greiða úr því sem í heimildum segir frá
Magnúsi biskupi, og þá sérstaklega hver samskipti þessara
embættisbræðra voru.
I.
Magnús biskup var yngsti sonur Gizurar Hallssonar. Ekki
verður vitað með vissu, hvenær hann var fæddur, en hann var
fóstursonur Þorláks biskups Þórhallssonar: ,,EIann veitti ástsamligt
fóstr Magnúsi meðan hann vildi þar verit hafa. Hafði inn sæli
Þorlákr biskup mjök tírarhendi á honum tekit, af því at hann
var hæði forvitri ok vel lærðr ok inn málsnjallasti. Þorlákr biskup
vígði þá til presta Þorvald ok Magnús". Þannig segir í Prestssögu